Milli mála - 2022, Síða 264
MILLI MÁLA
Milli mála 14/1/2022 263
viku er talað við börnin á íslensku heima, hvaða mállega þætti þurfa
börnin helst að æfa að mati foreldra eða forráðamanna; spurningar
um námsefni og reynslu af notkun þess heima við. Spurningar í
könnuninni voru sem sagt um fjölda barna á heimilinu, aldur og
kyn barna, samsetningu fjölskyldunnar, móðurmál foreldra, tungu-
mál töluð á heimilinu, búsetu fjölskyldna, hversu líklegt það sé að
þær fjölskyldur sem búsettar eru erlendis snúi aftur heim með börn
á skólaaldri, um þær tegundir námsefnis sem mest og minnst eru
notaðar heima við, það námsefni sem börn hafa mestan og minnstan
áhuga á, hversu oft íslenska er töluð á heimilinu, um þá málþætti
sem börnin þurfa að örva að mati foreldra, hvers konar rafrænt efni
vanti til þess að börnin geti eflt íslenskukunnáttu sína heima að mati
foreldra, og hversu auðvelt eða erfitt það sé fyrir fjölskyldur að finna
íslenskt námsefni fyrir börn á netinu. Þátttakendur máttu einnig
svara opinni spurningu og þannig koma á framfæri öllu því sem þeim
þótti mikilvægt varðandi rafrænt námsefni og sjálfsnám. Hægt er að
skoða allar spurningar á íslensku og ensku í viðauka A.
Könnunin var send á sextíu (n=60) þátttakendur 17. ágúst 2020
og þeim gefnar fjórar vikur til að svara henni. Hægt var að svara
spurningum með því að fylla inn t.d. hvaða tungumál eru töluð á
heimilinu; velja úr gefnum möguleikum varðandi tíðni (mjög oft,
frekar oft, stundum, frekar sjaldan, mjög sjaldan) og tegund efnis
(barnabækur, kennslubækur, gagnvirkt efni á netinu, öpp/önnur
forrit, sjónvarpsefni og myndbönd eða kvikmyndir, vefnámskeið,
námsefni á YouTube, einkakennsla á netinu); merkja viðeigandi svar á
Likert-kvarða t.d. að velja eitt af eftirfarandi „mjög mikið“, „mikið“,
„hlutlaust“, „ekki mikið“, „lítið“; eða skrifa inn athugasemd í opna
spurningu um annað sem til hugar kemur. Úrvinnsla spurninga fólst
í því að safna saman svörum úr opnum og lokuðum spurningum og
setja þau inn í Excel-skjal til að fá heildaryfirlit yfir öll svör. Svör úr
opnum spurningum varðandi fjölda og aldur barna, tungumál for-
eldra og þau mál sem eru töluð á heimilinu, og búsetu fjölskyldna
voru afrituð og sett inn í eitt skjal í Excel-sniði svo að hægt væri að
búa til heildaryfirlit yfir þau. Svör úr öðrum opnum spurningum
voru sömuleiðis sett inn í eitt yfirlitsskjal en svörin voru lesin, lykil-
atriði í þeim merkt og þau sett í almenna flokka. Þemagreiningin (e.
thematic analysis) (Lavrakas 2008) var notuð við úrvinnslu svaranna.
BRANISLAV BÉDI OG KELSEY PAIGE HOPKINS