Milli mála - 2022, Blaðsíða 271
MILLI MÁLA
270 Milli mála 14/1/2022
unina var hefðbundnum færniþáttum ekki skipt í meginfærniþætti
(lestur, hlustun, tal, ritun) og undirstöðuþætti (málfræði og orðaforði).
Spurningar í þessum hluta könnunarinnar voru settar fram með
þessum hætti: „Hversu mikið eða lítið þarf barnið/börnin þín að
örva eftirfarandi þætti í íslensku, að þínu mati?“. Hægt var að svara
á Likert-kvarða með því að velja einn af eftirfarandi valmöguleikum:
„mjög mikið“, „mikið“, „hlutlaust“, „ekki mikið“, „lítið“.
Þeir mállegu þættir sem flestum foreldrum fannst börn sín þurfa
að æfa sig mest í eru: lestur (níu svör), orðaforði og ritun (átta svör
hvort), málfræði (sjö svör), tal (sex svör) og svo hlustun í síðasta sæti
(fimm svör). Aðeins þrír mállegir þættir fengu svarið „lítið“, en þeir
voru tal (tvö svör), hlustun (eitt svar), og ritun (eitt svar). Við undir-
stöðuþættina málfræði og hlustun var valkosturinn „mikið“ valinn
fjórum sinnum (sjá töflu 2).
Tafla 2: Mállegir þættir sem fjölskyldum finnst mikilvægast að örva börnin sín í.
Mjög
mikið
Mikið Hlutlaust Ekki
mikið
Lítið
Lestur 9 1 2 2 0
Hlustun 5 4 2 2 1
Tal 6 2 2 2 2
Ritun 8 2 3 0 1
Orðaforði 8 1 4 1 0
Málfræði 7 4 2 1 0
Niðurstöður sýna að foreldrum finnst mikilvægast að örva börnin
sín í lestri, orðaforða, ritun og málfræði, og síðan í tali og hlustun.
2 .2 .4 Námsefni sem oftast eða sjaldnast er notað í sjálfsnámi
Spurt var um notkun níu tegunda námsefnis: barnabóka á íslensku,
kennslubóka vegna íslenskunáms, hljóðbóka, gagnvirks efnis á netinu
(t.d. tölvuleikja á vefsíðum), smáforrita og annarra forrita, sjónvarps-
efnis og kvikmynda, vefnámskeiða fyrir börn, námsefnis á YouTube,
og einkakennslu á netinu í gegnum forrit á borð við Skype (þar sem
kennari kennir börnum beint og í „eigin persónu“). Hægt var að svara
KORTLAGNING RAFRÆNS NÁMSEFNIS Í ÍSLENSKU SEM ÖÐRU MÁLI FYRIR BÖRN OG
VIÐHORF FJÖLSKYLDNA TIL NOTKUNAR Á NÁMSEFNI Í SJÁLFSNÁMI BARNA
10.33112/millimala.14.1.12