Milli mála - 2022, Page 291
MILLI MÁLA
290 Milli mála 14/1/2022
ekkert unnið markvisst að því, ég á bara einn enskuáfanga eftir [og] mér
finnst ég hafi ekki verið undirbúinn sérstaklega að því að vera að fást við
stórar bækur og að hlusta á ensku.
Hann virðist telja vandamálið vera sitt, þar sem hann bætir við: „Ég
er nettstressaður hvernig ég á að höndla það [að lesa námsbækur á
ensku] þar sem ég er ekki með það góðan orðaforða, en ég hlýt að
klóra mig út úr því.“
Að sögn viðmælenda hefur enskunám í framhaldsskóla sína
kosti og galla. Sumum framhaldsskólanemendum finnst námsefnið
í ensku ekki áhugavert, til dæmis lesefni: „Eitthvað sem þú vilt
ekkert lesa um, einhver kameldýr úti í Ástralíu eða eitthvað svona
kjaftæði.“ Egill kvartar yfir að hafa þurft að lesa „æ bara einhverjar
ástarþvælur, ekkert sem mig langar neitt að lesa. Maður fer í próf,
maður verður að drösla sig í gegnum þetta.“ Annað sem er nefnt er
málfræði, kennarar, skortur á tal- og hlustunaræfingum, skáldsögur:
„Bækurnar eru ekki sérstaklega skemmtilegar, sumar allt í lagi en
sumar ekki sérstaklega skemmtilegar – maður nennir varla að lesa
þær“, og ritunarverkefni: „Það er svo leiðinlegt að skrifa bara um
eitthvað kjaftæði.“
Námið er jafnvel talið of létt: „Þegar við erum að skrifa eitthvað,
kennarinn fer yfir, og þá er eiginlega allt villulaust hjá mér.“ Einn
viðmælandi telur færni sína í ensku „ekkert sérstaklega góð[a]“ en er
þó vanur að fá „alveg fínar einkunnir“.
Hins vegar gagnast kennslan Soffíu vel í söngnámi hennar utan
skóla vegna æfingar í framburði: „Það hjálpar mér mjög mikið með
söngnámið því að hann [framburðurinn] þarf alltaf að vera réttur
til að geta sungið rétt.“ En það eru sérstaklega verkefni sem krefjast
hugmyndaflugs, persónulegs vals og sköpunar sem heilla nemendur.
Bogi útskýrir:
Við áttum að búa til bækling á ensku, máttum velja okkar áhugasvið,
hvort það væri til dæmis ljósmyndari, eða sálfræðingur, eða bifvélavirki,
og búa til bækling. Það var mjög gaman, tilbreyting frá fyrri áföngum.
Númi segir enskukunnáttu sína vera „ekki yfir meðallagi“. Hann
hefur lítið bætt kunnáttu sína í framhaldsskóla: „Aðallega verið að
VIÐHORF NEMENDA TIL ENSKUNÁMS Í FRAMHALDSSKÓLA OG GILDIS ÞESS
10.33112/millimala.14.1.13