Milli mála - 2022, Page 336
MILLI MÁLA
Milli mála 14/1/2022 335
er gaman að kenna fólki það sem ég elska.“ Það hafði verið draumur
nokkurra þátttakenda að verða kennari. Í tilfelli Mary Jane hafði það
alltaf verið draumur hennar og hún ákvað, þegar hún var 11 eða 12
ára, að verða enskukennari og Erik ákvað það sama þegar hann var
13 ára. Kris sagði: ,,Starfið (það að kenna) er svo gefandi, þegar þú
sérð kvikna á perunni hjá þeim (nemendunum), og þeir skilja aðeins
betur og þú sérð að þeir eru sífellt að bæta sig.“
Kennarar greindu frá því að þeir nota alls kyns texta úr enskum
bókmenntum, auk texta úr leikritum, skáldsögum og kvikmyndum,
þá sömu og er að finna í námsskrá margra framhaldsskóla í Nýja-
Sjálandi. Eyore notaði til dæmis To Kill a Mockingbird og nemendur
hans unnu verkefni upp úr þeim texta. Finna notaði fjölbreyttar
skáldsögur fyrir unglinga, til dæmis Harry Potter, stuttar dæmi-
sögur og smásögur eftir Stephen King (Rita Hayworth og Shawshank
Redemption) og kvikmyndir (The Breakfast Club). Tove notaði Burial
Rites eftir ,,ástralskan rithöfund sem hafði búið á Íslandi og skrifað
bók byggða á sönnum atburðum sem áttu sér stað hér (á Íslandi)“.
Tove bað nemendur sína um að velja sér eina skáldsögu úr lista af
fjórum bókum til þess að lesa í námskeiði hjá henni. Erik fannst
skáldsögur eins og The Curious Incident of the Dog in the Night-Time
góðar og ,,það var skemmtilegt að kenna þær“. Kennarar þróa líka
og kenna valnámskeið með enskum textum, svo sem kvikmyndir,
vísindaskáldskap og myndasögur.
Áreiti/ílag og tækifæri til þess að nota ensku
Margir kennaranna höfðu búið og unnið í löndum þar sem töluð er
enska. Tove var au pair í fjögur ár í Bandaríkjunum og bjó seinna í
London. Díana bjó í Kanada á aldrinum 6–10 ára. Kris þróaði með
sér ástralskan hreim eftir að hafa farið sem skiptinemi til Ástralíu
og búið þar í eitt ár þegar hún var 17 ára. Inga dvaldi nokkur ár í
Bandaríkjunum. Þessar upplifanir undirstrika það fjölbreytta um-
hverfi sem þessir kennarar hafa búið í og hafa stuðlað að þeim mikla
orðaforða sem þeir búa yfir.
Annað áberandi þema voru fjölskyldutengsl við enskumælandi
fólk eða í löndum þar sem enska er töluð. Móðir Evu fór til dæmis
sem skiptinemi til Bandaríkjanna þar sem „foreldrar“ hennar þar
urðu að amerískum afa og ömmu Evu. Þau senda „gjafir og póst-
AVERIL COXHEAD, JENNIFER DRAYTON OG TJ BOUTORWICK