Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Blaðsíða 12

Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Blaðsíða 12
styður þá trú, að vor verði gott: Marg- fróður maður, sem lengi var búsettur á Vestfjörðum, hefur sagt mér,að það hafi verið nokkuð þekkt orðtak þar vestra, að „það tœki kjark ur vetrinum“, ef hann byrjaði með miklum hörkum. Og vissu- lega á það við um vetur þann, sem nú er að enda, því að hann heilsaði með ó- venjulega mikilli hörku, miðað við mörg síðari ár, eins og menn muna. En að vísu er vor ekki œvinlega gott, þótt vetur sé mildur. Vér íslendingar höfum alltaf haft gam- an af því að spá um veðráttuna, og marg- ir kunna enn góð skil á þeim spáfræðum, þótt ekki séu lærðir veðurfræðingar. Það er gaman að tala við veðurglögga menn, einkum þá af eldri kynslóðinni, sem láta það vera sitt fyrsta verk á morgnana, að signa sig og lita til veðurs, viðra nösum til allra átta og „spá í skýin“. Þeir fara undarlega oft nærri um, hvaða veður er í aðsigi, þótt þeir sjái ef til vill ekki eins langt fram i tímann og þeir lærðu. Veðurglöggir veiðimenn eru einnig oft furðu framsýnir um fiskigöngur — og fengsælir í veiðiferðum. Þetta á ekki ein- ungis við um lax og silung, heldur er það staðreynd, að veðurglöggir formenn fyrr á timum voru oft miklir aflamenn. Ég hef það t.d. fyrir satt, að Jörundur, hinn frægi hákarlaformaður i Hrísey, hafi ver- ið hvort tveggja i senn, mikill veður- fræðingur og aflamaður. Nútímamönn- um kann að þykja sú saga ótrúleg, að hann hafi rennt sökku i botn, dregið hana upp aftur og þefað af henni, áður en hann lagðist til veiða. En með þeim hætti þóttist hann geta ráðið i, hvort kvikt væri undir. Og mörgum kann lika að þykja það skrýtið, að hann og ýmsir aðrir skyldu hella rommi á hákarlar beituna. En telji menn slíkt bábilju, ættu þeir að athuga þá staðreynd, sem nú er talin visindalega sönnuð, að fisk- ar eru mjög næmir á lykt, langt fram yfir það, sem mannleg þefskynjun þolir samanburð við, og að ein tegund dregst að þessari lykt, önnur að hinni. Marg- föld reynsla hákarlamanna þótti t.d. sanna, að hákarlinn sækti i rommlykt; sumir laxveiðimenn þykjast hafa reynslu fyrir því að laxinn renni á munnvatns- lykt manna o.s.frv. Það er nokkuð al- geng trú, talin studd af reynslu, bæði i Englandi og Skotlandi og ef til vill víð- ar, að gott sé að spýta á agnið áður en kastað er. „Hvað vitum vér mennV' spyr skáldið. Vér erum sifellt að fálma oss áfram í þekkingunni á lögmálum nátt- úrunnar og lifverum hennar. Reynslan og líkurnar, sem af henni má draga, er i raun og veru það eina, sem vér höfum við að styðjast. En svo mikið vitum vér, eða ættum að vita, að vér vitum litið. Vér skrifum sitt af hverju um líf og háttu ýmissa lífstegunda sem vér í raun og veru vitum harla litið um en þykjumst þó vera herrar alls, sem lifir! Og nú fer laxinn bráðum að koma upp að ströndum landsins. Hvað vitum vér i raun og veru um hann? Lif hans og ferðir eru færustu visindamönnum vorum i þeirri grein enn að ýmsu leyti ráðgáta. Þeir eru enn að þreifa sig áfram. Þeir vita ekki með vissu hvar hann dvel- ur í djúpum hafsins allan þann tima, sem hann er að vaxa og þroskast. Menn búa sér til kennisetningar, en hvað af þeim fær staðist? Ein er sú, studd 2 VllBIMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.