Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Page 19
stjóra úti á ánni og kastaði þvert á
strauminn. Fluguna lét ég reka og sökkva,
því djúpt er á þessum stað. Brátt fann
ég að flugan var tekin hægt og rólega
á miklu dýpi. Fiskurinn svifaði til hægt
og þungt og hélt sig djúpt. Fór ég að búa
mig undir að losa bátinn. En áður en ég
fékk ráðrúm til þess, tók laxinn allharða
roku upp í strauminn — og stökk upp úr,
ekki langt til hliðar við bátinn. Lá við
að mér féllust hendur, er ég sá skepn-
una. Mér sýndist fiskurinn all miklu
stærri en nokkur lax, sem ég hef séð.
Ég hafði þóttst finna, að laxinn væri
vænn, en þessu bjóst ég ekki við. Stærstu
laxar, sem ég hef veitt vógu 33 og 34
pund, 17 kíló, en þessi virtist mér mun
stærri.
Eftir að laxinn stökk, synti hann upp
miðjan álinn af jafnri ferð og var engin
leið að snúa honum við. Ég losaði bát-
inn og hélt stönginni annarri hendi á
meðan, en ekki þorði ég að leggja hana
frá mér, til þess að róa á eftir laxinum.
Hefur það ef til vill verið misráðið. Brátt
var línan á þrotum á hjólinu, en í því
bili slitnaði girnið. Síðan hef ég trúað
sögum veiðimannanna um stóra, missta
laxa.
Líklega ert þú löngu hættur lestrinum
áður hér er komið, kæri ritstjóri, og bið
ég þig afsökunar á þessu rugli. — Ég get
haldið áfram að tala við sjálfan mig um
gamlar veiðiminningar.
Með alúðar kveðju og þökk fyrir á-
nægjulegar samverustundir, svo og margt
skemmtilegt í „Veiðimanninum“.
Þinn einl.
Steingr. Baldvinsson.
ST AN GA VEIÐ ARFÆRI.
Höfum að jafnaði fyrirliggjandi allan útbúnað,
sem til stangaveiða þarf.
Margir verðflokkar: Allt frá hinu allra vandaðasta,
svo sem mörgum gerðum af veiðistöngum úr hin-
um heimskunna „Conolon Live Fiber", frönsku
Mitchell og ensku Young hjólunum víðfrægu, og allt
ofan i mjög ódýran sænskan, þýzkan og japanskan
veiðiútbúnað, fyrir unglinga, byrjendur eða sem
vara-„græjur".
Mikið úrval af íslenzkunx og erlendum spónum,
flugum, spóna- og fluguboxum, veiðilínum, veiði-
töskum o.fl. o.fl. — góð vara á hagstæðu verði. —
Bæði fáarxlegt í sölu- og gjafapakkningum.
Heildsala:
Smásala:
Sportvörugerðin Halldór Erlendsson
Mávahlíð 41. — Sími 18382.
VEIÐIMABURINN
9