Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Blaðsíða 20

Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Blaðsíða 20
Kennsluæíingar og mót S. V.F.R. Á þeim tíma, sem venjulegt fólk sit- ur að hádegisverði á sunnudögum, hafa nokkrir félagar S.V.F.R. sótt kastæfingar félagsins í húsi K.R. við Kaplaskjólsveg. Því miður hefur félagið ekki átt völ á hentugri tíma til æfinga innan húss; gegnir furðu hve vel þessar æfingar hafa verið sóttar. Þar sem þessi eini tími hef- ur ekki nægt til að anna eftirspurn fé- lagsmanna um leiðbeiningar, hefur kennslu- og kastnefnd félagsins fengið til umráða í K.R.-húsinu (auk sunnudags- æfinga í hádegi kl. 12—1) á fimmtudags- kvöldum 2—3 tíma. Þetta var síðasta um- ferð í kastæfingum félagsins í vetur og hófst sunnudaginn 24. marz og fimmtu- daginn 28. marz. Þessir tímar eru senn fullskipaðir og er því nauðsynlegt fyrir þá, sem kynnu að hafa áhuga á að kom- ast að, að hafa samband við einhvern nefndarmanna eða skrifstofu félagsins sem allra fyrst. 2. maí hefjast svo æfing- ar úti, á svæði félagsins við Rauðavatn. Verða þær á þriðjudags- og fimmtudags- kvöldum frá kl. 8—10 fram til 10. júní. Eins og áður verður leitast við að fá færa leiðbeinendur til að leiðbeina og aðstoða þá, sem þess óska. Þá hefur verið ákveðið að hafa hitti- kastkeppni innan húss, og fer hún fram fyrst í maí. Aðalkastmót félagsins fer svo fram við Rauðavatn og á grasvelli um síðustu helgina í maí. í haust verður reynt að koma á kast- móti með almennum veiðimannatækj- um, um aðra helgi í september að loknu veiðitímabili, meðan veiðimenn eru í þjálfun eftir sumarið. Verður það keppni, bæði með lóðum og flugu. Það er ástæða til að hvetja, sem flesta félagsmenn og aðra til að taka þátt í þessum mótum og tilkynna þátttöku sem allra fyrst nefndar- mönnum eða á skrifstofu félagsins. Kennslu- op kastnefnd S.V.F.R. NÝ FLUGULÍNA FYRIR LENGDARKÖST Landssambandi ísl. stangveiðimanna hafa borist upplýsingar frá Fontaine, formanni I.C.F. (International Casting Federation), að ný flugulína fyrir lengd- arköst sé komin á markaðinn í Banda- ríkjunum. Línan er jöfn (level), en fram- leidd í mismunandi gildleikum frá 0.040" til 0,115" í þvermál. Með því að setja saman þessa mis- munandi gildleika, getur kastarinn feng- ið þá lengd og þyngd, sem hentar hon- um bezt. Flugulína fyrir einhendisstöng mætti t.d. vera sett saman þannig: .075 - 8' 4 " .070 - 9' 7.5" .065 -10' .060 - 9' 11 " .055 - 6' 1 " .050 - 3' .045 - 1' 11 " .040 - 1' 8 " Línan er framleidd sérstaklega fyrir I.C.F. sem keppnis- og æfingalína. Er hún sÖgð gefa mjög góðan árangur. Hákon Jóhannsson. 10 Veibimaðurinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.