Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Qupperneq 22

Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Qupperneq 22
„Því skyldi ég ekki geta verið það eins og hinir?“ svaraði Úlfar, og við því átti ég auðvitað ekkert svar. Eg stóð einhvern- veginn í þeirri meiningu, eins og sagt er á vondu máli, að Úlfar hefði aldrei átt við stangveiði. En til þess að segja eitthvað, svaraði ég: „Nú, segðu mér þá veiðisöguna". „Já, hún er þannig, að fyrir 8 eða 9 árum var ég í veiðiferð norður í Vatns- dalsá með Kjartani Sveinssyni skjala- verði, sem er kunnur og reyndur lax- veiðimaður. Við vorum staddir við svo- nefndan Ásbrekkuhyl, sem er góður veiðistaður, eins og margir vita, sem hafa veitt í Vatnsdalsá. Eg var eitthvað á undan Kjartani að búa mig til veiða og gekk að hylnum meðan hann var að fara í bússurnar. Þegar ég kom fram á bakkann, kannaðist ég við mig, því að ég hafði séð Tryggva Ofeigsson veiða þarna lax fyrir 6 eða 7 árum. Ég setti mig í veiðimannastellingar og fór að kasta flugu, eins og Tryggvi hafði gert. Eg kastaði á nákvæmlega sama stað og ég hafði séð hann gera, og viti menn — það tók hjá mér lax! Eg þóttist finna að þetta væri vænn fiskur og fór að þreyta hann eftir kúnstarinnar reglum. Laxinn rás- aði lítið, en lá nokkuð þungt í, og eftir nokkra stund kom Kjartan til mín, og fannst mér strax nokkur styrkur að hafa hann hjá mér. Eg var með stutta línu og glerstöng og þorði því ekki að takast mikið á við laxinn. Samt leiddist méri að tefja Kjart- an lengi frá veiðunum og óskaði því að laxinn gæfist upp sem fyrst. Við land- ið, þar sem ég stóð, eru talsverðar grynningar, en djúpt við bakkann hin- um megin. Eftir nokkurt þóf tókst méT að koma laxinum upp á grynningarnar og leiða hann í áttina til þess staðar, sem ég hugsaði mér að landa honum. En á þeirri leið voru nokkrir steinar upp úr vatninu; og einhvern veginn tókst svo til, að öngullinn losnaði úr honum við þessi átök. Þegar ég fann að allt var laust, fleygði ég stönginni og ætlaði að kasta mér yfir laxinn, en hann varð fljótari til, og slapp úr greipum mér. Ég vildi þó ekki láta minn hlut, óð fyrst eins langt og ég komst og stakk mér svo í dýpið! En þar fann ég engan lax! Eg svamlaði aftur til lands, mjög vonsvik- inn, tók upp stöngina og sagði nokkur orð við Kjartan, sem þá var að leggja af stað niður með ánni, til þess að komast yfir á vaðinu þar skammt fyrir neðan. En um leið og Kjartan er að vaða út í ána, kallar hann til mín og segir: „Er þetta laxinn þinn?“ Laxinn lá þarna rétt við landið hjá Kjartani, og virtist mjög af honum dregið. Kjartan gekk í áttina að laxinum og ætlaði að grípa hann, þá hörfaði laxinn undan út í ána. En þá var ég þar fyrir og sparkaði hon- um á land, en datt ofan á hann um leið, og báðir veltust þar um í fangbrögðum. Þetta hefur eflaust verið brosleg sjón, en til þess að kóróna allt saman marg spark- aði Kjartan í okkur báða, svo að við ult- um svolítið lengra upp á þurrt í fang- brögðunum! Þegar svo var komið voru örlög aumingja laxins auðvitað ráðin. Hann var 18 pund. Segðu svo að ég sé ekki veiðimaður!“ — Eftir þessa sögu dettur mér auðvitað ekki í hug að neita því! V. M. 12 Veiðimaðurinn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.