Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Blaðsíða 30

Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Blaðsíða 30
an hyl, sem breikkar verulega niður frá henni. Neðan hylsins er mjög grunnt brot og fellur áin þar til sjávar í þrem- ur kvíslum, ógengum um fjöru, þegar áin er lítil. Upp frá brúnni tekur við gljúfur. Er áin þar grýtt, töluvert straumhörð og varla nokkurn tíma svo lítil, að hún sé þar erfið til göngu. Sé meira en hálf- stækkaður straumur, fellur dálítið upp fyrir brú. Innstreymi verður þá undir brúnni og straumleysa nokkru ofar. Það var einmitt að verða stórstreymt þegar við vorum þarna í sumar. Logn var tíðast og þá sá maður til laxanna úti fyrir ósnum þegar fór að falla að. Þeir syntu sitt á hvað og voru gjarnan með bakuggann uppi í skorpu. Komu þeir þess nær, sem meira hækkaði í. Þegar féll yfir brotið, neðan við brú- arhylinn, komu þeir upp í hann. Þar syntu þeir í hringi eða lykkjur og fóru sjaldnast út með sama landi og þeir komu inn með. Hæzt fóru þeir töluvert upp fyrir brú, upp í árstrauminn í gljúfrinu. Þar veltu þeir sér dálítið og stukku stund- um. En með útfallinu hurfu þeir flest- ir aftur til sjávar. í þrjá daga samfleytt sáum við all- marga laxa koma þarna upp um flóðið og hverfa aftur um fjöruna, án þess að ganga í ána. Flesta töldum við um þrjá- tíu í einu. Sum flóðin gekk enginn í ána, önnur örfáir laxar. En það var mjög gaman að standa á brúnni og fylgj- ast með sveimi laxanna fram og aftur. Ég hefi áður séð þetta við þessa sömu á. Sama fyrirbæri hefi ég einnig séð við Haukadalsá í Dölum, Fáskrúð í Dölum og Laxá í Kjós. Einnig hef ég séð laxa- 20 torfu koma upp að Sjávarfossinum í Langá á Mýrum, en hverfa aftur með öllu á útfallinu. Féll þó svo hátt, að auðveld ganga var upp Sjávarfossinn. Við þessar ár hefi ég séð laxinn fara hvað eftir annað fyllilega jafn hátt og hækkunar gætir frá flóði, en hverfa aftur án þess að ganga í ána. Hefi ég ekki dval- ið við ósa fleiri áa við þau skilyrði, að ég gæti fylgst með ferðum laxins, en heyrt aðra menn segja svipaða sögu um aðrar ár. Enn ber þess að geta, að nokkrum sinnum hefi ég orðið þess var að Hrauni í Ölfusá, að lax tekur allt í einu að stökkva neðarlega á veiðisvæðinu, nokk- uð undan landi. Þetta er ávalt á útfallinu og laxinn stekkur undan straumi. Ég freistaðist til að halda, að þetta væru laxar sem væru á útleið úr könnunarleið- angri upp ósinn. Það hefir því orðið skoðun mín, að lax hagaði sér á svipaðan hátt við alla árósa. Hann væri oft dag eftir dag ýmist að leita á eða hverfa frá, jafnvel vikum saman, ef vatn væri minnkandi og bjart í lofti. Taldi ég þetta hafa það í för með sér, að net ósabænda nytu forréttinda í því, að þau gætu tekið toll nokkrum sinnum — og jafnvel oft — af hverri laxatorfu, meðan net annarra taka sinn hlut af torfunni aðeins einu sinni. Af þessum sökurn hélt ég að helga- friðun þyrfti að réttu lagi að vera lengri á ósasvæðum en annars staðar í ánum. Hefði mér jafnvel þótt réttast, að banna alveg alla netaveiði svo hátt upp sem salts gætir um stórstraum, — enda er laxveiði bönnuð í sjó samkvæmt lögum. Vki»ima»urinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.