Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Qupperneq 43
Frá félagsfundi S.V.F.R
EINS og undanfarin ár boðaði stjórn
SVFR til félagsfundar upp úr vorjafn-
dægrum, að þessu sinni hinn 31. marz.
Tilgangurinn með þessum félagsfund-
um er að gefa mönnum kost á að láta
til sín heyra, gagnrýna gerðir stjórnarinn-
ar og „bera fram tillögur til úrbóta“,
svo notað sé orðalag, sem mjög hefur
verið í tízku síðustu árin.
Eins og venjulega á félagsfundum tók
formaður fyrst til máls og mælti á þessa
leið:
Kæru félagar.
Eins og undanfarin vor, þótti stjórn-
inni rétt að halda almennan félagsfund,
svo að félagsmönnum gæfist kostur á að
ræða þau mál, sem efst eru á baugi, og
fá þær upplýsingar, sem félagsstjórnin
kynni að geta gefið varðandi næsta veiði-
tímabil o.s.frv.
Félögunum hafa nú verið send hin
venjulegu umsóknareyðublöð. Vonum
við að allir hafi fengið þau, en umsókn-
um á að skila fyrir næstu helgi.
Veiðisvæði félagsins eru að mestu leyti
þau sömu og s.l. ár, eins og sést á upp-
lýsingabréfi því, sem fylgir umsóknar-
eyðublöðunum. Eg vil þó aðeins fara yf-
ir þau lauslega og geta þeirra breytinga
sem um er að ræða.
Elliðaárnar. Þar verður haft sama fyrir-
komulag og í fyrra, veitt með B stöng-
um frá 5.—21 júní en 4 stöngum eftir
21. júní, tveim fyrir ofan Rafstöð og
tveim fyrir neðan. Breytingin, sem gerð
var í tilraunaskyni í fyrra á rennsli ánna
verður nú gerð varanleg, þar sem hún
gaf góða raun í fyrra.
Laxá í Kjós og Bugða. Þar verður
sama fyrirkomulag og áður, að undan-
teknu því, að nú verður mönnum gefinn
kostur á að sækja um miðsvæðið, svokall-
aða „dauða svæðið". Þetta svæði seldist
ekki áður, og var þá horfið að því ráði,
að fá menn til að taka það fyrir sæmilegt
gjald allt sumarið, þannig að hver af
þeim hafði einn dag í viku. Þarna er oft
þó nokkuð af laxi en tekur mjög illa;
en lagnir flugumenn fá þar stundum
nokkra veiði. Á svæðinu eru tvær steng-
ur.
Meðalfellsvatn. Sú breyting verður
þar, að nú verður það ekki opnað fyrr
en 1. júní eins og árnar, en var áður 1.
maí. Þar sem að félagið hefir ákveðinn
og takmarkaðan stangafjölda í vatninu,
var horfið að þessu ráði, til þess að ekki
þyrfti að loka því síðar vegm. of mikillar
ásóknar í maí, enda er meiri möguleiki
á laxi þar þegar líður á sumarið. Veiði-
leyfi verða nú aðeins seld á skrifstofunni.
Þetta sparar líka umsjónarmann við
vatnið í mánuð.
Norðurá. Þar verður alveg sama fyrir-
komulag og í fyrra, þriggja daga veiði-
Veiðimadurinn
3B