Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Side 44
tími allt sumarið, með 4—8 stöngum á
dag, eftir því á hvaða tíma er. Gert er
ráð fyrir að stiginn í Laxfossi verði nú
loksins lagaður og fullgerður. Einnig er
gert ráð fyrir lagfæringu á Glanna.
Fdskrúð og Víðidalsá. í þessum ám
gerum við ráð fyrir að liafa sömu hlut-
deild og s.l. ár, og fyrirkomulag hið sama.
Sama er að segja um Stóru Laxá i
Hreppum.
Laxá i Þingeyjarsýslu. Þar hefur okkur
tekist að fá nokkru meira en í fyrra. í
sumar höfum við 2 vikur í júlí og ágúst,
auk 9 síðustu daganna 31. ágúst til 9.
sept. Samtals höfum við þar um 220
stangveiðidaga. Þar verður leigt í 3 og
6 daga tímabilum. Vonum vér að félags-
menn sjái sér fært að sækja um úthlutun
í þessari glæsilegustu á landsins.
Kolbeinsdalsá, Hjaltadalsá og Höfða-
vatn. Eins og félagsmönnum er kunnugt
hefur félagið þessar 2 ár til langs tíma
í ræktunarskyni. í þeim er töluverður
silungur, aðallega bleikja og sjóbirting-
ur. Höfum við hugsað okkur að leigja
þar silungsveiði í sumar, ásamt Höfða-
vatni, sem við höfum hlutdeild í, og er
þar rétt hjá, en þar er ágæt veiði. Er
þetta tilvalið fyrir fólk, sem fer í sumar-
ferðir til Norðurlands, að staldra þarna
við 2—3 daga og veiða silung, fyrir lítið
gjald.
Verð á veiðileyfum verður allsstaðar
nokkuð hærra en í fyrra, sem leiðir af
umsömdum hækkunum, samkv. samn-
ingum, auk annarra uppbóta, sem óum-
34
flýjanlega verður að greiða vegna þess
ófremdarástands, sem nú er ríkjandi í
þessum málum. Það getur þó farið svo,
að Kjósarsvæðið hækki verulega, en um
það er ekki hægt að segja ákveðið ennþá.
Útboð á ám. Nokkrar ár hafa verið
auglýstar til leigu í vetur, og hefir félag-
ið gert tilboð í þær flestar eða allar. Skulu
félagsmönnum hér gefnar upplýsingar
um það helsta, sem gerst hefir í þeim
málum:
Hrútafjarðará. í hana komu yfir 20
tilboð. Hæsta tilboðinu var tekið, en það
var frá Sveini Kjarval o.fl. sem eru með-
limir í stangveiðifélaginu „Strengur"
hér í bæ. Þeir buðu 181 þús. og verður
hver stangveiðidagur þar að meðaltali
yfir 1500 krónur. Eins og allir vita er
þetta lítil á, sem gefur 100—200 laxa
eða minna, eftir því sem upp er gefið.
Fluguveiði er aðeins leyfð. Við sendum
2 tilboð frá félaginu, annað peningatil-
boð til eins árs, en hitt tilboð til lengri
tíma, með klaki og húsbyggingu, og var
hægt að reikna það nokkru hærra. Enn-
fremur höfðum við ráð yfir tveim öðrum
tilboðum, sem voru hærri, en þó öll
miklu lægri en hæsta tilboðið.
Svartá og Blanda, I þessar ár komu
mörg tilboð, en ekki var endanlega víst
hvort leyfðar yrðu 3 stengur í Svartá og
4 í Blöndu, en þannig var boðið í þær.
Svartá hefir 60 daga veiðitímabil en
Blanda venjulega 90 daga.. Endanlega
var svo ákveðið að leyfa 3 stengur í Svartá
en ekki nema 3 í Blöndu. Svartá mun
vera leigð Steingrími Hermannssyni fyr-
Veidimadurinn