Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Síða 45

Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Síða 45
ir 326 þúsund, eða yfir 1800 kr. stang- veiðidagur. Um Blöndu er ekki vitað ennþá hver hreppir. Laxá í Leirársveit. Akurnesingar töldu sig hafa nokkurnveginn víst loforð um að fá þessa á, þannig að þeir mundu fá að ganga inn í hæsta tilboð, ef þeir treystu sér til. Þeir voru því ákveðnir í að vera einir um tilboð, í ána komu 15 tilboð, meir en helmingur þeirra var yfir 400 þúsund. Við sendum 2 tilboð, annað hreint peningatilboð, hitt með klaki og til lengri tíma. Auk þess höfðum við ráð yfir tilboði, sem var all miklu hærra en okkar. Að minnsta kosti 3 af hæstu tilboðunum voru frá félögum í Streng, hæsta 471, annað 451 og þriðja 431. Vegna þess að 2 tilboð önnur voru þarna á milli, gátu þeir ekki gengið til baka með nema hæsta tilboðið. Munu samningar vera gerðir til eins árs á 451 þúsund, ef þeir geta staðið við greiðslu á því. Meðalverð stangardags verður því um 1700 kr. ★ Það er eftirtektarvert, að tvær af þess- um ám, að minnsta kosti, eru sprengdar upp af sama 12—15 manna félaginu hér í bænum. Virðast þeir vera býsna bjart- sýnir og fjáðir til að gera slík tilboð. Það er auðséð öllum, sem til þekkja, að stangardagurinn kemur til með að kosta 2 — 3 þúsund kr. á aðalveiðitímanum. Hvort þeim tekst að selja leyfin svo dýrt, er annað mál, en vonandi verða meðlim- ir SVFR ekki til að hjálpa þeim til þess. Til gamans má benda á að 2—3 daga leyfi í þessum ám kosta jafnmikið eða meira en flugferð til útlanda fram og til baka. Eins og getið er í bréfi því, sem fylgir umsóknunum, hafa nokkrir félagsmenn, boðið eða staðið að boðum í þessar ár, án þess að fá til þess leyfi stjórnarinnar, samkvæmt lögum félagsins — og mun stjórnin því nú beita ákvæðum laganna í þessu efni; og væntum við að fundurinn telji þá ákvörðun sjálfsagða. Árnessýslusvœðið. Eins og kom fram í skýrslu stjórnarinnar á síðasta aðalfundi, o«' nokkrar umræður urðu um, hefir stjórnin verið að leita hófanna um hvaða möguleikar væru fyrir SVFR að fá þetta svæði allt leigt til stangveiði. Eins og vér tókum fram þá, er ekki hægt að búast við að jákvæður árangur náist í hasti, en það er hægt að skýra frá því, að bréfa- skipti og viðræður eru þegar hafnar, hver sem árangurinn verður. En fullyrða má, að þetta mál er svo yfirgripsmikið og mörg ljón á veginum, að ekki má vænta neinna úrslita fyrir næsta sumar. En stjórnin mun halda þessum viðræðum áfram og sjá til hvað út úr þeim kemur. ★ Umræður urðu minni en mátt hefði vænta. Þó tóku nokkrir til máls, en gagn- rýni á gerðir stjórnarinnar kom ekki fram. Formaðurinn óskaði sérstaklega eftir því, að menn segðu álit sitt um til- boð félagsins í ár þær, sem boðnar voru út. Virtist það einróma álit fundarmanna, að félagsstjórnin hefði ekki átt að bjóða hærra en hún gerði, þar sem það hefði ævinlega verið sjónarmið SVFR að hafa ekki forgöngu um uppsprengingar á veiðileigu. V. M. Vkdimaburinn 35

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.