Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Page 46

Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Page 46
Fréttatilkynning frá Kastklúbbi Islands. 6. Alþjóða Kastmót ICF. 1962 var haldið í Rotterdam dagana 17. til .22. september. Þátttakendur voru rúmlega 100 og frá 12 löndum, eða svipuð þátt- taka og á undanförnum mótum. Á sama stað og sömu daga, að kvöldinu til, er haldið þing Kastsambandsins, þá eru og veizluhöld, og eitt skemmtikvöld var haldið með kvikmyndasýningu og fleiru. Héðan fóru tveir þátttakendur, Bjarni Karlsson, málarameistari, og undirritað- ur, og stóðu sig sæmilega eftir atvikum. Það sem helzt einkenndi þetta mót, og setti svip á það, var mjög óhagstætt veð- ur með ódæma mikilli rigningu framan af. Þar voru menn algallaðir regnverjum og í gúmístígvélum dag eftir dag, enda voru engin sérstök afrek unnin eða met sett. Allir reyndu að sjálfsögðu að gera hið bezta úr öllu saman enda var ágætur félagsandi og samvinna með mönnum, þrátt fyrir hið leiðinlega veður. Keppt er í öllum 10 greinum ICF á þessum mótum, og um þriðjungur af þátttakendum tók þátt í þeim öllum. Allir hinir eru aðeins með í 2 til 6 grein- um. Við Bjarni vorum með í 5 þeim sömu og keppt er í hjá okkur hér. Úrslit í tugþrautinni, þ.e. öllum lOgreinunum, urðu þau að Jon Tarantino varð heims- meistari í 6. sinn, annar varð Sverrir Sheen frá Noregi. Þá eru og veitt verð- laun fyrstu 3 mönnum í hverri grein. 36 Kastklúbbur íslands er hinn íslenzki aðili að International Casting Federation sem er samband kastklúbba um allan heim, og er ekki í neinu sambandi við veiðifélög eða veiðimennsku af neinu tagi, félagslega séð, þar eð slíkt er ekki viðurkennt sem íþrótt. Hinsvegar eru það aðallega sportveiðimenn i hinum ýmsu löndum sem að mestu bera þessa íþrótt uppi, enda ekkert sem kemur veiðimanninum betur en að hafa vald á áhöldunum sem hann notar við veið- arnar, þ.e. kunna að kasta, þar sem í sumum greinum kastíþróttarinnar eru notuð sömu áhöld og við venjulegar veiðar. Til frekari fróðleiks um okkar og annarra árangur í þessari skemmtilegu íþrótt, fylgir hér á eftir afrekaskrá 1962, í þeim 5 greinum sem við erum aðal- lega með í. Albert Erlingsson. Úrslit ársins 1962: Albert Erlingsson 3538,8 st. Þórir Guðmundsson 3519,9 st. Guðmundur Einarsson 3288,0 st. Bjarni Karlsson 2922,6 st. Sverrir Elíasson 2918,9 st. Þorvarður Árnason 833,3 st. UTAN FÉLAGS: Jón Erlendsson 3164,2 st. Halldór Erlendsson 1012,5 st. Veiðimaðurjnn

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.