Veiðimaðurinn - 01.03.1963, Síða 50
landi“ Voru taldir upp kostir þessarar
jarðar og m.a. tekið fram að þar væri
hægt að rækta lax, en síðan var á það bent
„að vegna veiðinnar sé jörðin vel fallin
til ýmissar starfsemi, t.d. fávitahælis. .. .!!
Skyldi ekki sú hugsun hafa hvarflað
að fleirum en mér, þegar þeir lásu þetta,
að auglýsandinn sé þeirrar skoðunar, að
í hópi laxveiðimanna muni vera einhverj-
ir, sem þurfi á slíkri hælisvist að halda,
og að þarna megi slá tvær flugur í einu
höggi — veita þeim aðstöðu til að stunda
laxveiði og jafnframt tryggja þeim sama-
stað við þeirra hæfi! Og hafi hann nú,
sem vafalaust verður að telja, fylgst með
því sem gerst hefur í leigumálunum í
vetur, þarf ekki mikið hugmyndaflug til
að ímynda sér, hverja hann hefur átt við.
Það hljóta að vera leigutakarnir, en einn-
ig, og ekki síður, þeir sem kunna að
kaupa af þeim veiðileyfi.
En þótt öllu gamni sé sleppt, er sýni-
legt, að íslenzkur almenningur getur ekki
veitt sér þá ánægju að fara á laxveiðar
fyrir þetta verð og er það illa farið vegna
þess hve stangveiðin er holl hreyfing fyrir
innisetumenn. Það er að vísu góðæri og
mikil vinna nú sem stendur, og ýmsir
hafa möguleika til talsverðrar tekjuöflun-
ar fram yfir sín föstu laun. En eigi að
síður hlýtur það að vera öllum þorra
manna fjárhagslega ofviða, að kaupa
svona dýr veiðileyfi. Auk þess geta tím-
arnir breyzt — og það er raunar varla
hægt að búast við því, að svona góðæri
standi mjög lengi. Og hvar standa þeir,
sem tekið hafa ár á leigu fyrir þetta háa
verð, ef veiðimenn kippa að sér hendinni
um kaup á veiðileyfum?
Það er vitað, að fæstir eða engir þessara
manna eru auðmenn, og eiga því enga
sjóði að grípa til, ef veiðileyfin seljast
ekki. Þeir greiða að sögn nokkurn hluta
leigunnar fyrirfram, eða nú með vorinu,
en ef þeir eiga að geta innt af hendi
áframhaldandi greiðslur þurfa veiðileyf-
in að seljast — og til þess að fara skað-
lausir út úr ævintýrinu, veitir þeim varla
af að selja þau öll. Þess vegna má hugsa
sér, að svo gæti farið, að bændur, sem
hafa leigt fjölmennum og sæmilega fjár-
sterkum félögum veiðiár fyrir nokkru
lægra verð en hinir, beri ekki skarðari
lilut frá borði um það er lýkur.
V. M.
Veiðistangaviðgerðir.
Veiðimenn! Dragið ekki o£ lengi að láta stengurnar í
viðgerð. Varahlutir í allflestar veiðistengur fyrirliggjandi
Óskum öllum veiðimönnum gleðilegs sumars.
HARALDUR OG VALDIMAR
Suðurgata 37.
Símar 13667 og 10572.
40
Veiðimaðurinn