Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Blaðsíða 7

Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Blaðsíða 7
var þá að velja flugu. Þá duttu mér í hug orð Englendings, sem þá var látinn. Hann hafði veitt víða um heim: „Þegar ég kem að á eða vatni, sem ég þekki ekki, byrja ég með Black Doctor.“ Eg áhvað að reyna hana. I fyrsta kasti greip hana stórlax. Harðvítugur hængur, tæp tuttugu pund. Eg veiddi hann. „Hundaheppni,“ mælti Teitur. I þriðja eða fjórða kasti fékk ég annan stórlax. Teitur varð undrandi. Hann átti raunar að vera farinn, en varð svo hugfanginn af heppni minni, að hann gleymdi því, að hann hafði lofað hinum ágæta höfðingja Olafi Proppé að vera fljótur í förum. Eg varð að minna hann á loforðið. Teitur hljóp til hestanna. En hann var ekki kominn langt, er ég festi í þeim þriðja. Og Teitur sá það. Um kvöldið sagði Olafur Proppé mér, að Teitur hefði sagt: „Þú hefur komið með vitlausan mann. Hann drepur alla laxana t anni. Annars veiddi ég fjóra laxa þennandag. Það var meira en góð veiði. Þetta var árið 1939. Teiti kynntist ég betur síðar. Og ég fékk mætur á honum. Eitt sinn, er ég var á veiðum í ánni, kom hann með spón, sem hann hafði smíðað sjálfur. Efnið líktist látúni. Sá var um þriggja tommu langur, og uggunum rétt við hausinn gleymi ég ekki. Hann hafði fellt spegilgler í þá. Hann sagði, að laxinn hefði gaman af að spegla sig! Hver veit? Teitur vildi endilega fá mig til að reyna spóninn. En ég var með flugustöng og sagðist ekki vilja misbjóða henni með því að kasta þessum þunga spæni. Þar að auki hefði ég litlar mætur á spónveiði, nema þá við sérstakar aðstæður. Þetta þótti Teiti sérviska. Ég var alltaf heppinn í Hítará. Og sú hugsun hefur flögrað um huga minn, að það væri vegna þess, að ég hefí aldrei reynt þar annað agn en fluguna eina. Nú, þegar ég get ekki veitt lengur, skoða ég oft flugumar mínar og rek vef minning- anna. Þá stansa augu mín stundum við fluguna Blue Charm. í Grímsá hefur hún reynst mér betri en flestar aðrar. Það væri þá helst Silver Scott. En ég minnist ekki að hafa veitt einn einasta lax á Blue Charm í annarri á. Einkavinur minn Þórarinn Sveinsson læknir bað mig einu sinni að veiða með Blue Charm heilan dag í Laxá í Aðaldal. Ég gerði svo. En engan lax fékk ég. Degin- um var þó ekki á glæ kastað. Langt þar frá. Það er mikil hamingja að vera með vini á veiðum. Eitt vil ég ráða vinum mínum: Veiddu með þeirri flugu, sem þú hefur trú á. Þó að ég geti ekki veitt lengur, þá ætla ég að reyna í sumar. Og ég hefl fyrir löngu ákveðið með hvaða flugu ég ætla að byrja. Bulldog. Og næst hinn gullbúna Baron. Bulldog er ein allra besta fluga, sem ég hefí kastað í vatn. Sumarið 1980 veiddi ég einn lax, og á Bulldog. Það var um 14 punda hrygna í brúðkaupsklæðum með ótrúlega falleg augu. Ég gaf henni líf. Með bestu kveðjum. VEIÐIMAÐURINN 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.