Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Qupperneq 9

Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Qupperneq 9
Á þessum árum keypti ég flugur mínar hjá Sigfúsi Blöndahl, þeim heiðursmanni, sem eldri veiðimenn þekktu allir. Þær voru sérlega fallegar, flugurnar frá Sigfúsi, sem hann lét hnýta í Skotlandi, mjög vel hnýttar og réttar í litum. Eg hóf nú að kasta þarna á Drykkjar- hylinn, reisti marga laxa, en enginn tók. Líklega hef ég verið búinn að kasta 10-12 flugum, og var alveg að gefast upp. Þá hnýtti ég á Jock Scott nr. 4 eða 5 og hugsa með mér, að ekki saki að sýna þessum höfð- ingjum hana. Ég byrja nú með „Skotann“ neðst í strengnum, áður en hann skellur í bakkann. Flugan er varla komin í vatnið, þegar lax kemur upp úr djúpinu,veltir sér á hana og stingur sér aftur niður. Af því að ég vissi af mörgum löxum þarna, reyndi ég að trufla sem minnst hyl- inn, og lempaði laxinn niður með sand- eyrinni og þreytti hann síðan við útfallið í hylnum. Landaði ég honum eftir skamma stund. Þetta reyndist vera 8 pd. hængur. Stóð flugan bugfull aftast í tungunni. Er ekki að orðlengja það, en ég dró þarna 5 laxa á þessa sömu flugu, frá 8-17 pund að þyngd. Þeir tóku allir í 1. eða 2. kasti, og tóku fluguna svo ofsalega, að hún var ofan í koki á þeim flestum. Átti ég í erfíðleikum að ná henni óskemmdri. Þegar ég hafði landað þeim fimmta, kom Egill, félagi minn. Hann átti í fórum sínumsömu flugu og fékk þrjá í beit. Haraldur átti ekki Jock Scott, en ég gat látið hann hafa „Skotann“, því að ég átti nokkrar. Einnig hann rokveiddi á fluguna. I þessari veiðiferð fengum við 61 lax. Meirihlutinn tók Jock Scott. I Drykkjar- hyl fengust 19 laxar, allir á Jock Scott! Á fluguna, sem ég byrjaði með, fékk ég 9 laxa. Þá var varla annað eftir en búkurinn, vegna þess hversu laxinn tók hana grimmdarlega, virtist beinlínis ætla að bryðja hana! Þau ár, sem við áttum eftir að veiða í Laxá í Dölum, reyndist mér og félögum mínum Jock Scott vera fengsælasta flugan. Ég hef víða veitt vel á Jock Scott: Laxá í Leirársveit, Haukadalsá, Laxá í Aðaldal, Hofsá og Selá í Vopnafirði. I þessum ám hefur þessi fallega fluga reynst mér ákaf- lega vel. Fyrstu kynni mín af laxveiði hófust, þegar ég hef verið 7-8 ára gamall, en faðir minn, Oskar Jónsson, prentari, og félagi hans, Þórður Bjarnason, prentari, höfðu veiðileyfí í Elliðaánum alla þriðjudaga um árabil. Á þessum árum voru aðeins tvær stengur í ánum, og tveir menn um hvora stöng. Höfðu þeir sama vikudaginn allt sumarið. Faðir minn eyddi sumarleyfi sínu á þennan hátt, en einnig veiddi hann nokkuð í Soginu, í Bíldsfellslandi. Það voru miklir hátíðisdagar fyrir ungan dreng, að fá að fara „inn að ám“ og fylgjast með laxveiði. Eins og eflaust allir veiðimenn vita var laxinn tekinn í kistu rétt neðan við rafstöðina og fluttur á bíl upp á efra svæði. Á neðra svæði var veitt jöfnum höndum á maðk og flugu, en á efra svæði var eingöngu leyfð fluguveiði. Flugan var uppáhaldsagn föður míns. Ég minnist þess enn í dag hve fallega hann kastaði með sinni 14 feta Hardy-stöng, og hve létt honum virtist þetta vera. I þá daga voru menn með allt að 18 feta stengur, og ég held, að einnar handar stengur hafí þá ekki þekkst. Því miður lést faðir minn um aldur fram, vorið 1944, og ekki voru þær margar veiðiferðirnar, sem okkur auðnaðist að fara saman. Ég minnist veiðiferðar í Elliðaár, sem við fórum saman, égheflíklegaverið 14-15 ára. Þetta var í september á svokölluðum sjóbirtingstíma. Hann veiddi á flugu, ég á VEIÐIMAÐURINN 7

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.