Veiðimaðurinn - 01.08.1981, Page 40
Til að staður henti fyrir slíkan rekst-
ur þarf að vera góð eldisaðstaða og
nægilegt frárennsli til að fá laxinn
aftur inn í stöðina. Heppilegt er að
hafa nokkuð aðdjúpt í sjó.
Rekstur af þessu tagi er í Lax-
eldistöð ríkisins í Kollafírði, og
hefur reynslan sýnt, að hægt er að
stunda hafbeit með hagnaði. Raun-
hæft er að gera fáð fyrir 5 til 15%
heimtum gönguseiða úr sjó, sem
gefur hagnað, ef stöðin framleiðir
yfir 200 þúsund gönguseiði.
2. Hafbeit úr sleppiaðstöðu
Hugsanlega má reka hafbeitarbú-
skap í laxlausum ám. Slíkt er enn á
tilraunastigi, og erfitt að segja fyrir
um hvenær það reynist hagkvæmt.
Hagkvæmnin byggir að nokkru á því
hvort heimtur lax er tekinn í kistu
eða veiddur á stöng.
Forsendur góðrar aðstöðu eru
gott aðdýpi og eldismöguleikar í
nokkra mánuði, án upphitunar.
Hagkvæmt er að hafa lón við sjóinn
og sleppa gönguseiðum úr flotkví.
Það ber að leggja áherslu á að fá
laxastofn af nærliggjandi svæði til
notkunar í hafbeitarstöðina, og
flutningur frá eldisstöð má ekki vera
kostnaðarsamur.
Meginforsenda alls hafbeitarbú-
skapar hér við land er bann við lax-
veiði í sjó frá 1932.
3. Laxahaldsstöð
í slíkri stöð eru smáseiði látin í ósalt
eða hálfsalt stöðuvatn við sjó og látin
alast þar upp í göngustærð. Seiðin
ganga þá til sjávar, og hafbeitarbú-
skapur tekur við. Helsta dæmi um
slíka stöð hérlendis er Lárósstöðin
á Snæfellsnesi. Venjulega er um
verulega stór stöðuvötn að ræða, og
helsta vandamál í slíkri stöð er sam-
keppni laxaseiða við aðra laxfiska,
svo sem bleikju, sem þrífst vel við
þessi skilyrði. Auðvelt er að stunda
hafbeit með gönguseiði í þessum
stöðvum.
4. Sjóeldi
Sjóeldi í flotkví að norskri fyrir-
mynd er erfitt í framkvæmd hér við
land.
Helstu ástæður eru:
a) Miklar frosthörkur ásamt næð-
ingi á vetrum.
b) Mikill munur á flóði og fjöru.
c) Tiltölulega aðgrunnir firðir.
Afleiðing þessa er hætta á undir-
kælingu sjávar (<—0,5°C), og
erfitt er að fóðra fískinn.
Aðstæður til sjóeldis eru einna
hagstæðastar við Reykjanes og Vest-
mannaeyjar, þar sem dæla má sjó í
eldisker á landi. Slíkur rekstur að
Húsatóftum við Grindavík lofar
góðu. Nokkur flotkvíarekstur er í
gangi í Höfnum á Reykjanesi og í
Vestmannaeyjum.
5. Laxeldisstöð
Eldisstöðvar, sem framleiða laxa-
seiði, eru allmargar hér á landi. í
slíkri stöð þarf að halda 10-12 °C
vatnshita á verulegum hluta eldis-
vatns, og byggir það ýmist á því að
hita lindarvatn (3-4 °C) með jarð-
hita eða nota temprað lindarvatn
(10-12 °C) beint í eldi. Slík stöð er
því einungis byggð, þar sem örveiru-
snautt og hreint vatn er að fá og
nægilega orku í formi gufu eða vatns.
38
VEIÐIMAÐURINN