Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1980, Qupperneq 1
4fc SKIPULAGS-
Höfuðborgarsvæðisins M M Jk I
1 /80 AAAL
FQRSPJALL
Þessu riti, "Skipulagsmál Höfuðborgarsvæðisins", sem nú lítur dagsins ljós
í fyrsta sinn er ætlað að verða vettvangur fyrir upplýsinga- og skoðana-
skipti um skipulagsmál þessa svæðis og stuðla jafnframt að því að koma
ýmsum nýjungum á framfæri. Einnig er það von útgefanda (Skipulagsstofu
höfuðborgarsvæðisins), að þetta rit stuðli að aukinni samvinnu þeirra
8 sveitarfélaga sem aðild eiga að stofunni.
Formlegt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu að skipulagsmálum
á sér töluvert langan aðdraganda. Árið 1961 var svæðaskipulagsnefnd
komið á fót fyrir þetta svæði og var henni ætlað það hlutverk "að vera
Skipulagsnefnd ríkisins og skipulagsstjóra til ráðuneytis og að koma á
framfæri og samræma óskir og þarfir sveitarfélaganna, hvað skipulag snertir"
1 kjölfar skipulagslaganna frá 1964 var fenginn lagalegur grundvöllur fyrir
þetta samstarf og var þá stofnuð Samvinnunefnd um skipulag Reykjavíkur og
nágrennis. Starfssvið þessarar nefndar var ákveðið með reglugerð og áttu
sömu átta sveitarfélög aðild að henni og nú eiga aðild að Skipulagsstofu
höfuðborgarsvæðisins. Skipulagsstjóri ríkisins skipaði formann nefndarinnar.
Þessi nefnd lét vinna heildaráætlun fyrir svæðið, þótt hún hefði enga fasta
starfskrafta, og var því verki lokið 1972. Mikinn tíma tók að yfirfara
þetta verk. 1 ljós kom að skipulag einstakra sveitarfélaga hafði tekið
töluvert aðra stefnu en áætlunin gerði ráð fyrir og hlaut hún ekki
endanlegt samþykki.
Á þessu tímabili hafði engu að síður komist á náið samstarf þessara
sveitarfélaga á ýmsum sviðum og skilningur vaknað fyrir því að árangurs-
ríkasta leiðin til þess að stuðla að bættu skipulagi þessa svæðis væri
að koma á fót sameiginlegri skipulagsstofu. Drög að samningi fyrir þannig
skipulagsstofu voru lögð fram í nóvember 1976 og voru þau siðan samþykkt
af hlutaðeigandi sveitarfélögum í ársbyrjun 1979. Stjórn skipulagsstofunnar
er í höndum fimm manna framkvæmdastjórnar sem starfar undir yfirstjórn
stjórnar "Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu". Meginmarkmið
stofunnar er gerð aðalskipulags (svæðaskipulags) fyrir höfuðborgarsvæðið.
Vinna á Skipulagsstofunni að Hamraborg 7, Kópavogi hófst síðan á útmánuðum
1980 og hafa verið ráðnir til hennar tveir starfsiœnn auk forstöðumanns.
Á fundum, sem að undanförnu hafa verið haldnir með forráðamönnum og skipu-
lagsaðilum þeirra sveitarfélaga sem aðild eiga að Skipulagsstofunni kom
fram mikill áhugi á útgáfu sameiginlegs fréttabréfs um skipulagsmál þessa
svæðis. Til þess að fullur árangur náist með þessari útgáfu eru allir þeir
sem vinna við skipulag, fjalla um þau mál, eða hafa á þeim áhuga, hvattir
til þess að koma ábendingum og athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofuna.
Ráðgert er að þetta fréttabréf komi út þegar tilefni þykir til, tvisvar
til fjórum sinnum á ári.
ritstjóri.