Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1980, Qupperneq 4
MOSFELLSHREPPUR
Aðalskipulag hefur enn ekki verið staðfest af Mosfellshrepp, en á
árinu 1978 var efnt til hugmyndasamkeppni um Aðalskipulag Mosfells-
hrepps. Margar tillögur bárust og komu þar fram ýmsar athyglisverðar
hugmyndir. 1. verðlaun hlaut tillaga arkitektanna Hauks Viktorssonar,
Jóhannesar Kjarvals og Bjöms Jóhannessonar en ráðgjafar þeirra voru
Jóhannes Guðmundsson verkfræðingur, Ólafur Bjamason verkfræðingur og
Narfi Hjörleifsson tæknifræðingur.
Nú er verið að vinna að skipulagningu þriggja svæða, þ.e. miðbæjar-
svæðis, hluta Helgafellslands og íbúðahverfis vestur af Tangahverfi.
Auk þessa er mikil áhersla lögð á skipulag endanlegrar legu Vestur-
landsvegar og tengsl miðbæjarsvæðis við iann.
Fyrirhugað er, að á þessu og/eða næsta ári komi eftirtalin svæði til
úthlutunar, auk rösklega 20 eignarlóða í landi Helgafells sem nýlega
hafa verið gerðar byggingarhæfar.
íbúðarsvæði
(2) svæði vestan Tangahverfis - einbýlishús og raðhús
Verslun, þjónustustarfsemi
(3) fyrirhugaður miðbær
REYKJAVÍK
samtals um 1 ha. lands fyrir verslun,
þjónustu og létta atvinnustarfsemi.
Aðalskipulag Reykjavíkur var staðfest í júlí, 1967 og er þetta skipu-
lag nú í endurskoðun. Gert er ráð fyrir að endurskoðuð tillaga að
nýj\om byggingarsvæðum borgarinnar verði lögð fram á næstu mánuðum.
1 megindráttum eru fyrirhugaðar lóðarúthlutanir á næsta ári á eftir-
töldum stöðum.
ibúðir
4.
5.
6.
7.
8.
9.
- Laugarás - 37 íbúðir
- v. Borgarspítala - 150 -
- v. Öskjuhlíðarskólann - 100 -
- Nýr miðbær - 100 -
- Eiðsgrandi - 78 -
- Breiðholt III - 30 495 íbúðir
Atvinnusvæði
10-12 - Seljahverfi samtals um 10 ha.
Borgarmýri
Breiðhöfði
Verslunar/stofnanasvæði
13-14 - Seljahverfi og Mjódd - aðstaða fyrir verslanir og
stofnanir til úthlutunar
7 - Nýr miðbær - verslanir og þjónusta.
Hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, sem tók við af Þróunarstofnun Reykja-
víkurborgar og Skipulagsdeild borgarverkfræðings 1. jan. sl. er auk
þess verið að vinna að ýmsum skipulagsverkefnum ma. deiliskipulagi í
Grjótaþorpi og Kvosinni, atvinnuspá og athugun á búferlaflutningum.
SELTJARNARNES
Aðalskipulag fyrir Seltjarnarnes var unnið af Skipulagi ríkisins á
árunum 1965-1966 og staðfest af ráðherra 1969. Dráttur á stað-
festingu stafaði af deilum skipulagsstjórnar og sveitastjórnar um
nokkur atriði aðalskipulags. Endurskoðað aðalskipulag var staðfest
1973.