Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1980, Síða 5
5
Árið 1974 efndi bæjarstjórn til samkeppni um endurskoðun aðalskipu-
lags og samdi í framhaldi af því við verðlaunahafa, Arkitektastofuna
s/f, um skipulagsvinnu næstu ára. Aðaláhersla hefur verið lögð á
vinnu er tengist væntanlegum miðbæ og er það verk nú komið á fram-
kvæmdastig.
Næstu byggingasvæði verða í Kolbeinsstaðamýri (15) aðliggjandi landa-
merkjum Reykjavíkur og má búast við að það svæði byggist á næstu
3 árum, - liðlega 200 íbúðir; einbýli - raðhús og fjölbýlishús -.
Skipulagstillaga Arkitekta-
stofunnar sf. að Kolbeins-
staðamýri - gerir ráð fyrir
tveggja hæða raðhúsum og
þriggja hæða sambýlishúsum.
í byggingu eru nú 5 tilraunasvæðiþyrpingar með um 70 íbúðaeiningum
sem virðist hafa heppnast vel.
í miðbæ verður mjög vel séð fyrir allri þjónustu og verslun svo og
£ svokölluðum menningarmiðbæ sem er tengdur skólahverfinu en þar er
m.a. félagsheimili - íþróttaheimili - sundlaug - heilsugæslustöð -
bókasafn - tónlistaskóli - og íbúðir aldraðra svo nokkuð sé nefnt.
Ennþá gera spár ráð fyrir ca. 6000-6500 manna byggð á Seltjarnarnesi
en í dag búa þar liðlega 3000 manns.
KÓPAVOGUR
Það aðalskipulag og greinargerð sem nú er rnnið eftir, í megindráttiom,
voru samþykkt af bæjarstjórn Kópavogs árið 1969.
Að undanfömu hefur staðið yfir samkeppni um deiliskipulag í landi
Ástúns (16) og er þar gert ráð fyrir um 45 raðhúsum. Austan þessa
svæðis (17) er einnig gert ráð fyrir um 120 íbúðum. Á Kársnesi,
vestan Hafnarfjarðarvegar (18), er mögulegt að byggja töluverðan
fjölda íbúða.
í landi Smárahvamms og Fífuhvamms (19) hefur verið skipulagt um 45 ha.
atvinnusvæði, þar sem gert er ráð fyrir um 180.000 m2 gólfflatar, að
þeim byggingum iœðtöldum sem þar eru nú.