Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1980, Qupperneq 6
Verslunarlóð í Snælandshverfi kemur væntanlega til úthlutunar á
næstunni. 1 miðbæ Kópavogs (20) er auk þess en eftir að byggja
töluvert, bæði af skrifstofu- og þjónustuhúsnæði.
Auk þessa eru enn eftir töluverðir byggingarmöguleikar á uppfyllingu,
vestast á Kársnesi.
GARÐABÆR
Aðalskipulag hefur ekki verið staðfest £ Garðabæ, heldur einungis
hlutar af aðalvegakerfinu.
Það aðalskipulag sem framkvæmdir hafa miðast við var unnið á árunum
1972-1976 og var þetta skipulag með áorðnum breytingum kynnt almenningi
í júni sl.
Nýverið hefur verið úthlutað rúmlega 40 íbúðum í einbýlishúsum £
Hnoðraholti (21) . Verið er að vinna að deiliskipulagi i Hofsstaða-
mýri (22) .
Gert hefur verið deiliskipulag af miðbæ Garðabæjar (23), þar sem
fyrirhugað er að koma á fót verslunum, þjónustu og annarri atvinnu-
starfsemi, auk ibúða.
Nokkrum lóðum fyrir "hreinlega" atvinnustarfsemi er enn óráðstafað i
Búðahverfi (24). Einnig er fyrirhugað að skipulag lóða fyrir atvinnu-
starfsemi hefjist á þessu ári á hrauninu milli Garðabæjar og Hafnar-
fjarðar (25).
Auk þessa er gert ráð fyrir að íbúðar- og atvinnulóðir í Ása- og
Grundahverfi verði tilbúnar til byggingar á næsta ári.
BESSASTAÐAHREPPUR
Aðalskipulag fyrir Bessastaðahrepp var samþykkt árið 1971, en ekki
staðfest. Unnið hefur verið eftir þessu aðalskipulagi í meginatriðum
síðan. Nokkur atriði hafa samt verið endurskoðuð, og nú er verið að
yfirfara skipulagið í heild.
Verið er að vinna að aðalskipulagi íbúðarsvæðis á jörðinni Landakot
(26) og verða þar til úthlutunar rösklega 30 einbýlishúsalóðir á þessu
ári. Auk þessa er stefnt að því að byggja á óbyggðum lóðum í tengslum
við núverandi byggð.
Fyrirhugað er að opna nýtt atvinnusvæði á næstunni fyrir léttan, hrein-
legan iðnað við Kirkjubrú (27). Þetta svæði er um 7 ha. að stærð, og
er þegar búið að leggja að því rafmagn, vatn, síma og hitaveitu.
Vestan ofangreinds atvinnusvæðis (28) er ráðgert að reist verði hús
fyrir ýmsa þjónustustarfsemi og stofnanir og er þetta landsvæði
einnig að verða byggingarhæft.
Hitaveita hefur nú verið lögð í flest hús á Álftanesi og er fyrir-
hugað að hita verði hleypt á nú í sumar.
HAFNARFJÖRÐUR
Fyrir skipulagsdeild Hafnarfjarðar liggja þrir megin verkefnaflokkar.
1. Skipulagning nýbyggingarsvæða
Stærsta samfellda nýbyggingarsvæði Hafnarfjarðar er Norðurbær, en
skipulag hans var samþykkt og staðfest árið 1968. Endurskoðun
var staðfest árið 1972. Uppbyggingu þar er nú að mestu lokið
Nýlokið er deiliskipulagningu svokallaðra Hvamma (29) og eru
byggingarframkvæmdir þar þegar í fullum gangi í einbýlis- og
raðhúsahverfum. Lausnir úr samkeppni um þéttasta hluta Hvamma