Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.09.1980, Síða 9
aðstaóa hestamanna
9
Vorið 1979 fól Skipulag ríkisins Einari E. Sæmundsen, landslags-
arkitekt að gera könnun á aðstöðu hestamanna á höfuðborgarsvæðinu.
Hvatning til þess að ráðist var í þetta verk var að skipulag ríkisins
hafði borist beiðni frá Landssambandi hestamanna um að gerð yrði
athugun á því, hvort ekki mætti tengja betur reiðleiðir milli svæða á
höfuðborgarsvæðinu.
Vinna við þetta verk hófst fljótlega og stendur enn, ekki hefur þó
verið unnið látlaust, heldur verið teknar skorpur og hlé á milli.
Vonir standa til að fyrsta áfanga ljúki á þessu sumri, þ.e.a.s.
söfnun gagna, frumvinnsla þeirra og gerð tillagna í framhaldi af því.
Atvinnumál
Stofnfundur Atvinnumálanefndar Höfuðborgarsvæðis var haldinn 12. júní,
en hana skipa samkvæmt tilnefningum:
Markús Sveinsson Garðabæ, Bjöm Kristjánsson Kópavogi, Sigurgeir
Sigurðsson Seltjarnarnesi, Guðmundur Þ. Jónsson og Magnús L. Sveinsson
Reykjavík, JÓn Baldvinsson Mosfellssveit og Bergþóra Einarsdóttir Kjalar-
nesi. Óskað var eftir tilnefningu tveggja fulltrúa frá hverju sveitar-
félaganna, Hafnarfirði, Kópavogi og Reykjavík, en engin tilnefning barst
frá Hafnfirðingum og aðeins ein_ úr Kópavogi.
Ákveðið var að boða til næsta fundar nefndarinnar fimmtudaginn 11. sept.
Þar verður rætt um almennt atvinnuástand á svæðinu, verkefni Skipulags-
stofunnar í tengslum við atvinnumál og einstök verkefni starfandi atvinnu-
málanefnda sveitarfélaganna á svæðinu.
Ráóstefnur
RÁÐSTEFNA UM ENDURHÆFINGU BÆJA verður haldin á vegum arkitektafélaganna
á Norðurlöndum í Helsingborg dagana 28-30 ágúst, 1980.
Þessi ráðstefna er til undirbúnings sérstöku átaki í þessum efnum "Urban
Renascence Campaign" sem Evrópuráðið hefur í undirbúningi. Þeim sem
áhuga hafa á að sækja þessa ráðstefnu er bent á að snúa sér til Arkitekta-
félags íslands, Freyjugötu 41, R - sími 11465.
RÁÐSTEFNA UM ALMENNINGSVAGNA. Dagana 30. júní til 4. júlí var í
Reykjavík haldin norræn ráðstefna um umferðarmál almenningsvagna
í þéttbýli ("Nordiska Lokaltrafikmötet"). Af hálfu Skipulagsstofunnar
sótti Þórarinn Hjaltason, verkfræðingur, ráðstefnuna.
Af því sem rætt var um á ráðstefnunni má nefna:
1. Ýmsar aðferðir við að meta eftirspurn eftir almenningsvagnaþjónustu.
2. SamanLurður á aðferðum við farþegatalningar í hinum ýmsu borgum
Norðurlanda.
3. Reynsla af nýju fjarskiptakerfi við stjórnun almenningsvagnaumferðar
í Stokkhólmi.
4. Niðurstöður rannsókna á rafknúnum strætisvögnum.
Gögn varðandi ráðstefnuna liggja frammi hjá Skipulagsstofunni.
- Fréttabréfið SKIPULAGSMÁL HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS er gefið út af
Skipulagsstofu höfuðborgarsvæðisins, Hamraborg 7, Kópavogi
s : 45155.
- Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gestur Ólafsson.