Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Síða 26

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Síða 26
vindsveipar vinni hver gegn öðrum og dragi þannig úr heildarvindstyrk. Snjóalög verða hér oft farartálmar og þarf að haga skipulagi með tilliti til þess. Þar sem snjóþyngsli verða þarf að ætla pláss með jöfnu millibili fyrir snjóruðninga. Eitt sinn átti undirritaður þátt íað skipuleggja íbúðabyggð vesturáfjörðum þarsem snjóþungt er. Voru göturnar látnarsnúa undan mestu úrkomuáttinni með þeirri hugmynd að vindurinn hjálpaði til að hreinsa götumar. Það gekk að mestu eftir. En safngata lá þvert á húsagötumar og við hana, vindmegin komu skaflar. Þannig er það mjög mikilvægt að þekkja veðurfarið vel á því svæði sem skipuleggja skal svo komist verði hjá óþarfa óþægindum og jafnvel miklum hættum þar sem svo háttar að snjóflóð og aurskriður geta ógnað byggð. Gatnakerfi og gönguleiðir eru ráðandi þættir við skipulag byggðar. Mikilvægt er að umferð greinist frá aðalgötum um safngötur í húsagötur þannig, að akstursleiðir séu sem eðlilegastar. Húsagötur mega þó ekki vera of langar og greiðar þannig að þær bjóði upp á hraðakstur inni í hverfinu. Þá er æskilegt að gönguleiðir séu sem stystar og hafðar eins fjarri akstursleiðum og kostur er. Þær þurfa að tengjast sem best leik- og útivistarsvæðum og leið bama úr og í skóla. Þama em oft á ferðinni andstæðir hagsmunir akandi og gangandi umferðar. Oftar en ekki er valið að hafa akstursleiðina lengri til að tryggja sem mest og samfelldast göngu- og útivistarrými til öryggis fyrir bömin og aðra gangandi íbúa í hverfinu. Almenningssamgöngukerfið þarf einnig að tengjast byggðinni sem best og þurfa gönguleiðir til næstu biðstöðvar að liggja vel við fyrir sem flesta íbúa. I upphafi skipulags þarf einnig að huga að veitukerfum, það er að segja lögnum fyrir heitt og kalt vatn, holræsum og raflögnum bæði fyrir hástraum og lágstraum. Sérstaklega á það við um holræsakerfið sem er langumfangsmest og þarf að leggja eftir því sem kostur er sem jafnast undan landhalla til að virkja nattúrulegt afrennsli þar sem því verður við komið. Væntingar fólks til nánasta umhverfis eru margvíslegar. Við Islendingar leggjum metnað okkar í að búa okkur góð heimili en aðstæður fólks eru mismunandi, og því er þörf fyrir fjölbreytilegar íbúðagerðir. Við deiliskipulag íbúðabyggðar her að taka tillit til þess. Þá er og nauðsynlegt að skólar séu reistir inni í hverfinu þannig að stutt sé að fara í skólann eftir 0ruggum göngustígum, því bömin hefja skólagöngu ung að atum og þurfa oft að fara um í myrkri og misjafnri tíð. I ftístundum viljum við gefa bömunum kost á hollri og góðri utivist á svæðum þar sem þau geta leikið sér tiltölulega orugg.Þá þarf að sjá fyrir aðstöðu fyrir verslun og aðra þjónustu innan seilingar frá íbúunum. Þó eitthvað syrti í álinn nú um stundir ríkir hér á landi almenn velmegun sem lýsir sér meðal annars í mikilli bílaeign, sem aftur kallar á meira gatnakerfi og svæði til að leggja öllum þessum bílum helst nærri heimilum og vinnustöðum. Það á við okkur íslendinga almennt sem sagt var um Vestmanney- inga forðum, að þeir færu í bílinn eins og frakkann sinn til að skjótast milli húsa. Veðurfar hér á landi er óblítt. Sýnt hefur verið fram á að á Islandi er hvað vindasamast á gjörvöllu byggðu bóli og oft fylgir úrkoma í kjölfarið. Allt eru þetta stórir áhrifavaldar við gerð skipulags hér á landi og kallar á lausnir sem passa ekki alltaf við forskriftir annarsstaðar frá þar sem aðstæður eru aðrar og mildara veðurfar ríkir. En þær forskriftir sem til eru og sú umræða sem fram fer er oftar en ekki byggð á reynsluheimi annarra þjóða sem búa í tempruðu beltum Evrópu og eiga oft ekki við hér frekar en suður í Sahara. Gerð deiliskipulags er að hluta til eins og hver önnur listsköpun að því marki að verið er að vinna með form og efni til að skapa úr því vitræna heild. Skipulagið er samansafn húsa af mismunandi stærð og gerð, þéttleika og áferð og rýmunum á milli þeirra og yfirborði þessa rýmis. Vegna stærðar þess upplifir maður skipulagið með því að ferðast um í rýminu á milli bygginganna. Eru mörg dæmi þess úr menningarsögunni hve borgarrými geta haft djúpstæð áhrif og snortið vegfarandann með fegurð sinni. Dæmi um þetta er Torgiðsem Michelangelo skapaði úr ólögulegu landslagi á Capitolhæðinni í Róm og mjúkar götulínumar í Bath í Suður- Englandi. Mörg þekkjum við stórbrotnar götumyndir Parísar, og sum hafa séð samspil gamals og nýs tíma í formföstu skipulagi Philadelphiu í Bandaríkjunum. Rýmið í skipulaginu er sem sagt form sem þarf að vinna með líkt og gerist í myndlist. Sveigja götu, þar sem rýmið hverfur inn í hið óþekkta, er allt öðruvísi að upplifa en beina götu, þar sem rýmið er móttekið í einni sjónhendingu. Landhalli er einnig sterkur þáttur í sjónrænni upplifun, bæði hvernig rýmið sjálft opnast eða lokast eftir því hvort horft er undan halla eða á móti hallanum. Þá getur einnig útsýnið út úr rýminu verið mikilvægt og þarf að gefa góðan gaum við gerð skipulagsins. Náttúrufegurð landsins og fjallasýn kallar á sífellda athygli, þar sem þess nýtur við. Yfirborð rýmisins milli bygginga er einnig mjög mikilvægt. Hvemig samspilið er milli mj úkra efna og harðra. Hvemig ljós ogskuggar leika um rýmið. Fjölbreytilegt yfirborð með steinlögn í bland við malbikið, trjágróðri og götugögnum mildar yfirbragð göturýmisins og hjálpar til við að aðgreina gangandi umferð frá bílunum. Við útfærslu og framkvæmd skipulags þurfa markmið og hugmyndiraðstandast íraun. Markmiðiðeraðskapaumhverfi sem er aðlaðandi og öruggt fyrir íbúana og að það svari þörfum þeirra og óskum um það líf sem það vill lifa. Skipulagið þarf einnig að bjóða upp á sveigjanleika til að mæta breyttum forsendum á uppbyggingatímanum og á líftíma skipulagsins. Skipulag er aldrei endanlegt, það er í sífelldri skoðun og umbreytingu. Stöðugt þarf að spyrja hvort hægt sé að gera betur. Þeir sem búa í skipulaginu, og þeir sem vinna við gerð þess og viðhald, þurfa að draga saman reynslu sína og miðla henni til áframhaldandi vinnu við skipulag morgundagsins. 24 25
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Arkitektúr og skipulag

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.