Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 33

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 33
vitanlega með því móti einu, að síld veiðist eins og í fyrra, sem því miður er mjög hæpið, hvað Hvalfjörð snertir. Ég lýsti því í einu dagblaðanna hér í sumar, með dæmum annars staðar frá, hver áhrif hvalstöðvar hefðu á síldveiðar í námunda við sig, og hver fljótfæmi það væri að reisa síldarverksmiðju í Orfirisey, með það fyrir augum, að síldveiðamar í Hvalfirði yrðu eins nú og í fyrravetur. Hvað mundi það kosta bæj arfélagið í Reykjavík? Getur það staðið undir þeirri byrði, nú og framvegis? Verði nú aftur á móti um verulega síldarbræðslu að ræða í Orfiriseyjarverksmiðjunni, þá mun það sýna sig, þegar að því kemur, að Reykjavíkurhöfn verður útmökuð í grútaróþrifnaði. T.d. yrði grútarkragi innan á öllum hafnargörðum, og skip, sem í höfninni lægju, fengju einnig grútarrönd í sjómálinu. V æri það ekki til sóma fyrir ráðamenn þessa bæjar og bæjarbúa yfirleitt, ef til þess kæmi að hreinsa yrðigrútarleðju afEimskipafélagsskipunum ogöðrumskipum, sem í höfninni lægju, áður en þau létu úr höfn. Hvað mundi Eimskipafélagsstjómin segja um það eða stjórn ríkisskipanna? Hvað segja skipstjórar þessara skipa um þetta? Láta þeir ekkert til sín heyra? Rúast má við því, að þá og þegar fari ferðamenn að leggja hingað leiðir sínar á útlendum ferðamannaskipum, eins og áður, og legðust að vana á ytri höfnina. Væri þá ekki leiðinlegur eirnur, sem legði að vitum þeirra í vestan andvara, frá hinni nýju verksmiðju í Örfirisey, en við getum þó hugsað okkur, að destir farþeganna mundu flýja undir þiljur til þess að forðast dauninn, og yrðu þrátt fyrir það ei lausir við hann, því þegar l°ft er allt mengað, kemur daunninn auðvitað inn með loftræstingunni. Það yrði saga til næsta bæjar. Farmanna- og fiskimannasamband Islands hefir mótmælt því, að síldarverksmiðja verði sett upp í Örfirisey, en þau mótmæli hafa verið virt að vettugi. Og nú nýskeð hefir einn skip- stjóranna úr félaginu ítrekað mótmælin með grein í Alþýðublaðinu, og annar frá Slysavamafélaginu. Þennan stað, Örfirisey, ætti heldur að prýða með fögrum minnisvarða sjómannastéttarinnar og öðru, sem til fegurðarauka væri, sem sjá má á meðfylgjandi teikningu. STRÍÐSHÆTTA Hafa forráðarmenn þessarar byggingar athugað þá hættu, sem af því gæti stafað fyrir Reykjavík, ef styrjöld brytist út, og fyrst og fremst yrðu sprengdar niður síldarverksmiðj ur og olíugeym- ar? Geta menn gert sér í hugarlund, hvemig þá yrði umhorfs í Reykjavík? Bera þeir menn, sem að þessu verki standa ábyrgðina? Nei, þeir geta enga ábyrgð á sig tekið þótt illa færi. Örfirisey er og hefir verið útvörður Reykjavíkurhafnar, þó að henni hafi aldrei verið neinn sómi sýndur, og hún er grundvöllur hafnargerðarinnar, sem hefir orðið Reykjavík og íslendingum yfirleitt til mikillar blessunar. Er það því kaldhæðnisleg svívirðing að reisa grútarstöð í eyjunni, á móti vilja meginþorra bæjarbúa, að undanskildum fáum brodd- borgurum, er svífast einskis vegna eigin hagsmuna. Reykvíkingar hafa búizt við ýmsu, en sízt hefði þá dreymt það, að framkvæmdastjórar „Kveldúlfs“, ásamt bæjarstjóm og bæjarráði, með borgarstjóra í broddi fylkingar, gætu orðið jafn samtaka og ákveðnir um að setja annan eins ómenning- 31

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.