Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 60

Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Page 60
<i tet&*ti6&uU*uc: NYBYGGING MENNTA- SKÓLANS Á AKUREYRI Afstöðumynd, auk nýbyggingar sjást gamli skóli, Möðruvellir og heimavist. apríl síðastliðnum fór fram lokuð samkeppni um nýbyggingu við Menntaskólann á Akureyri. Fimm arkitektum var boðið að senda inn samtals þrjár tillögur, og varð tillaga þeirra Gísla Kristinssonar og Páls Tómassonar hlutskörpust. Menntaskólanum á Akureyri er í framtíðinni ætlað að vera 600 manna skóli og fara nemendur nú þegar langt með að fylla þá tölu. Stærð skólahúsnæðisins er hins vegar langt undir því marki sem sett er um húsnæði framhaldsskóla. Til þess að uppfylla kröfur fyrir þennan nemendafjölda þarf að tvöfalda kennslurýmið og byggja 2500 - 3000 fermetra til viðbótar. Kennsla við skólann fer núna fram í Gamla skóla og Möðruvöllum. Gamli skóli er virðulegt timburhús frá því upp úr aldamótum, byggt í norskri þjóðarrómantík og friðað í flokki B, en Möðruvellir eru funkishús frá lokum sjöunda 58

x

Arkitektúr og skipulag

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Arkitektúr og skipulag
https://timarit.is/publication/1783

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.