Arkitektúr og skipulag - 01.12.1991, Side 79
búnaði sem er hannaður fyrir hom og lítil rými, meðal annars
þeim sem gerður er fyrir báta, hjólhýsi og rannsóknarstofur. Ef
þú hefur aðeins meira pláss, íhugaðu þá að gera vegg til að
geyma hluti. Til eru fjöldaframleiddar einingar sérstaklega
ætlaðar til slíkrar notkunar. Hin aðferðin er að útbúa
sérsmíðaðan geymsluvegg. Speglar eru frábærir til að létta og
lýsa, víkka og lengja herbergi, með því að láta jaðra þess
hverfa. Glersteinar eru einnig mjög vinsælir til notkunar í
baðherbergjum. Þeir eru fjölnota byggingarefni sem hleypir
inn ljósi án þess að fórna næði. Ef þeir eru hugvitsamlega
notaðir með speglum eða speglaflísum geta þeir látið lítil
baðherbergi sýnast verulega stærri.
SETUSTOFA
Ef plássið í setustofunni er lítið raðaðu þá húsgögnum og
fylgihlutum þeirra í samstæður til að rýmið sýnist stærra.
Notaðu sterk húsgagnaform og vertu óhræddur við að nota
liti. Leitaðu að samstæðum sem gera gönguleiðir þægilegar.
Lýsingu er auðvelt að nota með áhrifamiklum hætti til að
aðskilja eða tengja saman rými. Veggeiningar skapa mest
geymslupláss um leið og þær geta afmarkað afþreyingar-
útbúnað, s.s. sjónvarp, útvarp og hljómtæki.
SKILRÚM
Skilrúm geta skipt íbúð í mismunandi rými, aðgreint tilfeknar
athafnir innan ákveðins svæðis, leyft litum og ljósi að fljóta
óhindrað og stuðlað að tengslum milli rýma. Þau geta verið
föst eða hreyfanleg, sérstaklega hönnuð fyrir ák veðnar aðstæður
eða fjöldaframleidd. Hægt er að nota stall, sófa, bókahillu,
samtengd sæti og borð til aðgreiningar. Jafnvel háar plöntur
sem stillt er upp tveimur eða þremur í röð geta verið árang-
ursríkar til að aðskilja rými. Ef þú ætlar að gera skilrúm eða
hefur gert það nú þegar, reyndu þá að skera úr því göt í
mismunandi hæð, til að koma fyrir myndastyttum eða öðru
slíku. Þetta stækkar sjáanlegt rými um leið og það bætir
loftflæðið og leyfir lýsingu að fljóta í gegn.
lýsing
Góð lýsing getur fengið hvaða rými sem er til að virðast stærra
en það er í raun. Urvalið af ljósum er mikið og veljið því
lýsingu sem hentar í hverju tilfelli. Vegglampar spara gólfpláss,
ef það er mikilvægt, þar sem gólflampi heimtar pláss. „Mjúk“
lýsing með földum loftljósum ýtir lofti og veggjum aftur.
Bakgrunnslýsing gefur oft góða heildarlýsingu. í eðli sínu er
bakgrunnslýsing óbein, með því að endurkastast af lofti,
veggjum og gólfi. Til að fá sem mest út úr bakgrunnslýsingu,
mttu loft og veggir að endurkasta ljósi vel, vera hvítir eða
Ijóslitir og mattir, því gljáandi áferð gæti speglað endurkast
lýsingar eða lit gólfs og húsgagna. Ef heill veggur er baðaður
Ijósi fær það herbergið venjulega til að sýnast stærra. Hægt
er að lýsa upp heilan vegg með tvennum hætti. Ef ljós eru
staðsett frá veggnum og veggurinn þannig baðaður með
»rnjúkri“, „flatri" birtu, getur hún verkað vel t.d. til að draga
fram bókahillur eða vegg með myndum, eða einfaldlega til að
'uynda þægilega bakgrunnslýsingu. Ef ljósin eru staðsett
nálægt veggnum verður lýsingin sterkari og hefur sterkari
stefnu. Hún lýsir því upp áferð veggflatarins með því að kasta
ljósinu eftir fletinum og sýnir þannig skugga og dregur fram
áherslur. Þannig má lýsa upp vegg með textílverkum, eða vegg
með sérstakri áferð svo sem timburvegg eða múrsteinsvegg. Þó
er þetta einungis hentugt ef um veggflöt er að ræða sem ekki
er rofinn af hurð eða glugga, eða með gljááferð eða speglum.
Þakgluggar eru líka góðir til að hleypa inn birtu. Þeir opna
herbergið og gefa birtu sem breytist á áhugaverðan hátt yfir
daginn.
Þessi grein ætti að hafa sannfært þig um að það þarf alls ekki
að vera erfitt að búa í lítilli íbúð ef þú nýtir alla möguleika til
fulls. Það getur verið aðlaðandi og skemmtileg lífsreynsla að
leita að þessum möguleikum. Ef þú uppgötvar þá og myndar
umhverfi sem endurspeglarþinn eigin persónuleika og stíl, þá
getur íbúðin þín, þótt hún sé lítil, veitt þér margar þægilegar
ánægjustundir. ■
Ivar Guðmundsson
Heimildir: B. Franks: Very small living spaces. T. Cowan:
Living details.
77