Mosfellingur - 17.11.2022, Blaðsíða 22

Mosfellingur - 17.11.2022, Blaðsíða 22
 - Bæjarblað í 20 ár22 Sérsniðin þjónusta til byggingaraðila A L L T . I S - A L L T @ A L L T . I S - 5 6 0 5 5 0 5 Nánari upplýsingar koma þegar nær dregur. Bæjarbúar eru hvattir til að líta við og sjá öflugt starf hestamanna í Mosfellsbæ. Hestamannafélagið Hörður býður alla bæjarbúa velkomna á opið hús í reiðhöll félagsins að Varmárbökkum og opin hús hestamanna í hesthúsahverfinu á Varmárbökkum sunnudaginn 11. desember kl. 13:00-15:00. Boðið verður uppá stutta sýningu í reiðhöllinni. Að sýningu lokinni gefst gestum kostur á að klappa hestum og spjalla við knapa. Einnig verður krökkum boðið á bak á hestum frá reiðskólanum Hestasnilld. Svo má kíkja í hesthús í hverfinu og spjalla við fólk og klappa hestum. OPIÐ HÚS 11. desemBer Sögufélag Kjalarnesþings fékk fornleifa- fræðinginn Hermann Jakob Hjartarson til að sýna félagsmönnum leifar af kotbýlinu Hamrahlíð sem hann hefur verið að rann- saka í sumar. Býlið stóð skammt neðan við Vestur- landsveg á móts við bílastæði Skógræktar- félagsins í Hamrahlíð. Kotbýlið Hamrahlíð var hjáleiga frá Blikastöðum, stofnað um 1850, og var í byggð þar til um aldamótin 1900. Hermann lýsti herbergjum sem sennilega voru eldhús, svefnherbergi og smiðja auk fleiri vistarvera. Fjölmargir gripir fundust við uppgröftinn. Guðrún Jónsdóttir sem Halldór Laxness gerði fræga í sögunni af brauðinu dýra í Innansveitarkróniku fæddist í Hamrahlíð árið 1852. Hún var síðustu ár sín vinnu- kona á ýmsum bæjum í Mosfellssveit og var síðasti einstaklingurinn sem boðinn var upp í Mosfellshreppi árið 1935. Á hrepps- nefndarfundi sem haldinn var haustið 1935 upplýsti oddviti að „Guðrún Jónsdóttir hefði verið sögð til sveitar frá 1. júní þ. árs og hafði hann komið henni fyrir hjá Hjalta Þórðarsyni bónda á Æsustöðum fyrir kr. 50.00 á mánuði.“ Guðrún lést ári síðar og var jarðsett að Mosfelli þótt engin væri þar kirkjan. Sama ár komu lög um alþýðutryggingar til sög- unnar á Íslandi. Hermann áætlar að skila skýrslu um rannsóknir á Hamrahlíð til Minjastofnunar Íslands á næsta ári. „Hvað verður um rústirnar er ekki vitað,“ segir Magnús Guðmundsson formaður Sögufé- lagsins. Kotbýlið Hamrahlíð rannsakað Hermann Jakob Hjartarson fornleifafræðingur sýnir Bjarka Bjarnasyni og Kristni Magnússyni myllustein sem grafinn var upp í býlinu Hamrahlíð í sumar.

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.