Mosfellingur - 17.11.2022, Side 34

Mosfellingur - 17.11.2022, Side 34
Heilsumolar gaua - Aðsendar greinar34 Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Fótbolti eða baksund? Er fótboltinn að éta allar aðrar íþróttir? Eru of margir að æfa fótbolta og of fáir að æfa sund? Þetta eru góðar pælingar sem eiga rétt á sér og var kastað út í kosmósið af góðum Mosfellingi í síðustu viku. Ég hef sjálfur áhuga á mörgum íþróttum og hef prófað ýmsar. Byrjaði að æfa fótbolta, svo bættist körfuboltinn við og þessar íþróttir héldu mér uppteknum lengi vel. Ég hef prófað að æfa hokkí (á grasi), sjálfsvarn- aríþróttir, klifur og alls konar líkamsrækt með misjöfnum árangri. Náði sem dæmi aldrei hokkíinu almennilega þrátt fyrir þokkalegustu viðleitni. Mín skoðun varðandi vangavelt- urnar um að vinsældir fótbolt- ans séu á kostnað annara íþrótta- greina, er sú að krakkar og flestir fullorðnir sækja í að æfa það sem þeim finnst skemmtilegt. Flóknarara er það ekki. Og það er mikilvægara í þeirra huga að taka reglulega þátt í skemmtilegri hreyfingu í góðum félagsskap með jafningjum sínum en að verða Íslandsmeistari í íþrótt sem þau hafa ekki gaman af því að æfa. Fótbolti er í dag vinsælasta íþróttagreinin hjá fjölgreina- félaginu Aftureldingu samkvæmt iðkendatölum félagsins fyrir árið 2021 en fimleikadeildin er ekki langt undan og virðist ef eitthvað er vaxa hraðar en fótboltinn. Aðrar greinar eins og t.d. körfubolti eru í hröðum vexti, sem er frábært. Það er jákvætt fyrir heilsueflandi bæjarfélag eins og Mosfellsbæ hversu margir vilja æfa íþróttir hjá aðal íþróttafélagi bæjar- ins. Það fjölgar líka í sunddeildinni, en fækkar milli ára í frjálsum íþróttum, karate og í hjóladeild Aftureldingar. Það eru forréttindi að geta valið á milli ellefu skipulagðra íþrótta- greina eins og krakkar í Mosfellsbæ geta í dag. Fyrir mér skiptir ekki máli hvaða íþróttagreinar krakkar vilja æfa, aðalmálið er að þau finni það sem þeim finnst skemmtilegast og að þau mæti reglulega. Það styrkir þau og eflir, líkamlega, andlega og félagslega. Blaðinu hefur borist splunkunýtt ljóð eftir Bjarka Bjarnason á Hvirfli. Tengist það uppgreftinum í Hamrahlíð. Guðrún Jónsdóttir (1852-1936) fæddist þar en varð síðar þekkt fyrir að geyma „brauðið dýra“ í Innansveitarkroniku. Hamrahlíð Þöglir steinar, svarbrún fold, rústir einar undir mold. Ryðguð skeifa, bollabrot, fornar leifar, gamalt kot. Kotið bæði kalt og rýrt, um jólaleytið fæddist hún sem geymdi í skjólu brauðið dýrt. Ort um uppgröft í Hamrahlíð uppgröfturguðrún jónsdóttir

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.