Fréttablaðið - 28.03.2023, Síða 12
Útgáfufélag: Torg ehf. Stjórnarformaður: Helgi Magnússon forStjóri og Útgefandi: Jón Þórisson ritStjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is aðStoðarritStjóri: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
fréttaStjóri: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 250 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 fréttaBlaðið Kalkofnsvegur 2, 101
reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VefStjóri: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is marKaðurinn: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HelgarBlað: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
menning: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is Íþróttir: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
halldór
Frá degi til dags
Ójöfnuður-
inn í sam-
félaginu er
sjáanlegur
og hann
hefur áhrif
víða.
Runólfur
Ágústsson
framkvæmda-
stjóri
Svo virðist sem að Kærunefnd útlendingamála hafi
fyrir „slysni“ opnað fyrir óheftan aðgang f lóttafólks
frá Venesúela til landsins.
Miðað við fréttir eru ferðaskrifstofur þar í landi að
selja fólki ferðir hingað svo það geti komist á bætur
og opinbert framfæri.
Úrskurður nefndarinnar í máli einstaklings frá
Venesúela í fyrra opnaði á fordæmisgildi fyrir aðra
og í fyrra fengu 400 manns hæli hér á landi á þeim
grundvelli.
Nú bíða 500 aðrir afgreiðslu Útlendingastofnunar
sem erfitt er að sjá að geti orðið á annan veg en að
hleypa þeim inn í íslenskt samfélag.
Ísland er eina land Evrópu sem hefur opnað dyr
sínar fyrir f lóttafólki frá Venesúela með þessum
hætti.
En hvað?
Af þeim 400 sem fengu hæli hér í fyrra eru yfir 80%
hættir að þiggja aðstoð og komnir í vinnu. Það fólk
er farið að skapa okkur og sjálfu sér verðmæti og
aðlögun þeirra að íslensku samfélagi gengur vel.
Þetta er harðduglegt og vel menntað fólk sem er
bæði nauðsynleg og ánægjuleg viðbót við okkar
menningar- og efnahagslíf.
Okkur vantar fólk. Hér fáum við vinnandi hendur
og starfandi huga sem hafa hlotið menntun og
þjálfun í öðru samfélagi okkur að kostnaðarlausu.
Eitt stærsta tækifæri okkar
Venesúela er samfélag undir oki einræðis og kúgunar
vinstrisinnaðra sósíalista.
Verum stolt af því að veita þeim, eitt Evrópuríkja,
skjól. Tökum því á móti þessum 500 sem nú bíða
afgreiðslu og munu styrkja og efla okkar samfélag og
efnahagslíf.
Í sérstöðu okkar gagnvart f lóttafólki frá Venesúela
felst eitt stærsta tækifæri okkar sem þjóðar. Við fáum
með þeim nýja íbúa sem við þurfum á að halda. Öll
gögn og allar upplýsingar benda til þess að framlag
þeirra muni ef la hér menningarlegan og efnahagsleg-
an vöxt og verða íslensku samfélagi til mikils gagns.
Velkomin, Venesúelar! n
Velkomin Venesúelar
Af þeim
400 sem
fengu hæli
hér í fyrra
eru yfir
80% hættir
að þiggja
aðstoð og
komnir í
vinnu.
gar@frettabladid.is
Upp og niður
Fram undan eru aðgerðir hjá
stjórnarflokkunum sem ætla
að reyna að stemma stigu við
verðbólgunni sem hér er við það
að fara úr böndunum. Vísast
verður þar margt gáfulegt uppi
á teningnum. Hluti af lausninni
er að skera ríkisútgjöldin upp og
skera þau niður. Er þar vitanlega
úr vöndu að ráða því ríkið hefur
hingað til ekki verið að eyða
peningum í eitthvert vafasamt
kjaftæði sem við þurfum alls ekki
á að halda. Vonandi verða nú
hækkaðir á okkur skattar frekar
en að skera niður í 500 milljóna
króna kostnaði vegna útblás-
innar löggæslu í kring um partí
á vegum Evrópuráðsins sem hér
verður í maí og stendur í heila tvo
daga.
Hægri og vinstri hönd
Á sama tíma og ráðherra ríkis-
útvarpsmála lætur að því liggja
að vilji sé innan ríkisstjórnarinn-
ar til að styrkja rekstrargrund-
völl einkarekinna fjölmiðla með
því að koma böndum á óheftan
peningastraum úr landi í gegn
um auglýsingakaup á erlendum
samfélagsmiðlum, herða starfs-
menn ríkismiðilsins hlaupin á
Facebook og Twitter og TikTok
og hvað það nú heitir allt saman.
Kynningardeild ríkisútvarpsins
er efld og stórsókn sýnist í gangi
gegn þessum sömu einkareknu
fjölmiðlum sem eru eitthvað að
þvælast þar upp á dekk í sínum
leiðindablankheitum gegn sex
milljarða króna forskoti RÚV. n
Miðað við mörg önnur lönd í
heiminum er stéttaskipting
ekki mikil á Íslandi. Sér-
staklega ekki andleg stétta-
skipting en hér er efnahags-
leg stéttaskipting þó að aukast og hún er að
verða meira áberandi.
Við heyrum fréttir þess efnis að aldrei hafi
fleiri leitað til Hjálparstarfs kirkjunnar en
þangað leituðu í fyrrahaust 160 fjölskyldur
með 300 börn þegar skólinn var að byrja.
Hjálpræðisherinn er að sprengja utan af sér
og sjóðir hans að þorna upp. Í febrúar gaf
Hjálpræðisherinn um 5.400 matarskammta,
eða 190 á dag að meðaltali, samanborið við
tæplega 2.900 á sama tíma í fyrra.
Ójöfnuðurinn í samfélaginu er sjáan-
legur og hann hefur áhrif víða. Um liðna
helgi fylltust samfélagsmiðlar af börnum að
fermast. Á Íslandi fermast nánast öll börn.
Algengt hlutfall fermingarbarna í árgöngum
er 90 prósent en það hefur þó gerst að öll
börn innan árgangs ákveði að fermast.
Fyrirkomulagið er svo athöfn í kirkju eða
á öðrum samkomustað og að athöfn lokinni
er veisla til heiðurs fermingarbarninu. Sjálf
stend ég nú í miðjum fermingarundirbún-
ingi og ekki stæri ég mig af því að hafa verið
með skipulagið í fyrirrúmi heldur er ég nú,
þegar afar stutt er í stóra daginn, að hefjast
handa almennilega.
Ég skráði mig því í alla Facebook-hópa
tengda fermingum í leit að góðum ráðum
um magn af veislumat, skreytingar og svo
framvegis. Það var þó ekki eina umræðan
í hópunum. Á einum þræði var rætt hvaða
skemmtiatriði fólk ætlaði að bjóða upp á í
veislunni, hver væri besti töframaðurinn,
hvar væri best að leigja hljóðkerfi og hversu
mörg páskaegg þyrfti í vinninga væri ákveð-
ið að hafa bingó í veislunni.
Annar þráður sneri að því hvað ætti að gefa
fermingarbörnum í gjafir, oftast voru það
utanlandsferðir eða peningar. Upphæðirnar
hlupu þá á tugum eða hundruðum þúsunda
og ferðirnar voru allt frá tveimur vikur á
Tenerife til vinkonuferðar í New York þar sem
dvalið yrði á fjögurra stjörnu hóteli í viku.
Enn einn þráðurinn sneri að kvíða tengd-
um fermingum. Hann var skrifaður af ein-
stæðri móður sem ekki hafði mikið á milli
handanna. Hún benti á að hún hefði komið
inn í þessa Facebook-hópa í leit að ýmsum
ráðum. Hún uppskar í staðinn kvíða og van-
mátt og benti á að fermingum væri farið að
svipa til brúðkaupa. Svo mikið væri umfang-
ið og metnaðurinn. Ég er sammála henni og
það hryggir mig að stéttaskipting komi svo
skýrt í ljós á milli fermingarbarna. n
Fermingarkvíði
Birna Dröfn
Jónasdóttir
birnadrofn
@frettabladid.is
12 skoðun FRÉTTABLAÐIÐ 28. MARs 2023
ÞRIðJuDAGuR