Fréttablaðið - 28.03.2023, Page 16

Fréttablaðið - 28.03.2023, Page 16
„Þegar sólin hækkar á lofti fer fólk gjarnan í framkvæmdagír. Mörg hafa þegar sett sig í start- holurnar og eru farin að sanka að sér tækjum og hlutum til framkvæmdanna, til að hafa allt tiltækt á staðnum og ekki þurfi að bíða eftir sérpöntunum þegar iðnaðarmennirnir koma eða fólk ræðst sjálft í framkvæmdir á baðherberginu. Kannski er það lærdómur frá Covid-tímanum, þegar vörur skiluðu sér seint til landsins, og kenndi okkur að sýna meiri forsjálni og fyrirhyggju í aðdraganda framkvæmda,“ segir Philip Grétarsson, verslunarstjóri hjá Innréttingum og tækjum. „Við erum sérvöruverslun og einbeitum okkur að því að hafa annað og öðruvísi vöruval en fæst í hefðbundnum byggingarvöru- verslunum. Fólk kemur í Innrétt- ingar og tæki til að fá eitthvað annað og hefur iðulega orð á því, eins og kúnni um daginn sem kallaði nýjasta glerið í sturtuveggi hjá okkur „gróðurhúsagler“. Það er slétt að innan en eins og bárur að utan, kallast „Waves“ og er glært en sem sést ekki í gegn um,“ upplýsir Philip. Persónulegt yfirbragð tískunnar Fyrirtækið hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá upphafi. „Það voru amma mín og afi sem stofnuðu heildsöluna Jensen og Bjarnason árið 1945, en þegar for- eldrar mínir tóku við fyrirtækinu árið 1993 opnuðu þau verslun sam- hliða heildsölunni og nefndu hana Innréttingar og tæki. Við hjónin svo tókum við rekstrinum af þeim og rekum verslunina í dag með syni okkar sem er okkar hægri hönd. Allt sem við kemur hönnun og fagurfræði innanhúss er sam- eiginlegt áhugamál fjölskyldunnar og lærði dóttir okkar innanhúss- hönnun. Ég held reyndar að allir hafi gaman af fallegum hlutum og baðherbergi er hægt að gera svo ótrúlega falleg. Svo ég vitni í Sindra Sindrason sjónvarpsmann í Heimsókn, þá á að vera svolítill spa-bragur og hótelfílingur á bað- herbergjum heimila, en samt með hlýlegu sniði þar sem heimilisfólk- inu líður vel,“ segir eigandinn Íris Jensen, innan um glæstar innrétt- ingar og tæki fyrir baðherbergi. „Í haust munum við að fagna 30 ára afmæli búðarinnar og gaman að sjá hvernig tískan hefur farið í hring á þessum þrjátíu árum. Nú eru aftur komnar í tísku glæsilegar innréttingar í dökkbláum og græn- um litum með öldugleri framan á skúffum og með gylltum eða brons höldum, eins og var hæst- móðins á árunum í kringum 1993. Við sjáum líka flotta litatóna eins og ljósgrábrúna í innréttingum þar sem hægt er að fá handlaugar í sama lit og með gylltum blönd- unartækjum í stíl. Það eina sem var ekki áberandi í denn en er afar vinsælt nú eru svört og dökkbrún klósett. Bleik og ljósblá klósett eru líka mikið „inn“, en þau svörtu eru langvinsælust,“ upplýsir Íris. Hún segir allt í tísku þegar kemur að útliti baðherbergja. „Yfirbragðið er persónulegt og má vera eftir smekk hvers og eins. Það er helst að hvíttuð eik sé hverf- andi. Nú er meira um dökka hnotu og rauðari eik í baðinnréttingum og ekki líður á löngu þar til kirsu- berjaviðurinn kemur inn á ný, en Danir eru þegar byrjaðir að hanna eldhúsinnréttingar úr kirsuberja- viði.“ Ofnar úr glansandi gulli Ýmsar spennandi nýjungar er að finna hjá Innréttingum og tækjum nú. „Þar má nefna Switch-blönd- unartækin frá fremstu hönnuðum Ítalíu á þessu sviði, Fima Carlo Frattini. Ítalirnir segja að unga kynslóðin vilji hafa allt einfalt og tafarlaust, og með Switch-blönd- unartækjunum er einfaldlega ýtt á takka til að komast í steypibaðið, eftir að hafa forstillt hitastigið og vatnsbununa með einföldum hætti á öðrum takka. Þarna er lita- gleðin líka í fyrirrúmi og hægt að velja blöndunartækin í átta litum fyrir handlaugar og sturtu. Þetta er óhemju flott, handhægt og þægileg tækni fyrir unga sem aldna,“ greinir Philip frá. Þar ræður litadýrð ríkjum í svo mörgu og allt svo fallegt. „Við erum með gríðarflott úrval af handklæðaofnum sem fást í mismunandi formum og yfir 300 litum. Það getur verið hausverkur að velja úr 300 litum en flest hafa gert sér í hugarlund hvernig bað- herbergið á að líta út og eiga það sameiginlegt að vera orðin leið á þessum venjulegu handklæðaofn- um sem hafa verið eins í áratugi. Þannig vilja sum appelsínugula eða skærgræna handklæðaofna á meðan önnur velja mjúka brúna eða heita hörliti. Mörg falla fyrir möttum litum og til dæmis er mjög flott að vera með handklæðaofn í möttu gulli og með blöndunartæki í stíl. Þá er hægt að fá hjá okkur Dubai-glansgyllta ofna sem eru eins og skínandi gull og mörg eiga ljúfar minningar um síðan hjá ömmu og afa á tíunda áratugnum,“ segir Philip. Með allt fyrir baðherbergið Hreinlætistæki í litum gefa bað- herbergjum ferskan blæ og auðvelt er að bæta við hlutum í sama lit til að ná fram fallegu heildarútliti. „Sturtubotnar í litum njóta mikilla vinsælda og þótt önnur hreinlætistæki í herberginu séu ekki í sama lit og sturtubotninn er hægt að finna sama lit í höldum, handklæðaofnum og blöndunar- tækjum. Nú hafa bæst við f lottir og handhægir sturtuklefar frá Vans sem smellast saman í stað þess að notaðar séu skrúfur eða silíkon til verksins. Þeir eru fáan- legir í boga eða kantaðir og er lið- unum einfaldlega læst saman. Þá er einfalt að taka hann í sundur og hafa meðferðis í til dæmis bústað- inn. Klefarnir frá Vans eru auk þess mikið augnayndi og fást nú stællegir með svörtum ramma en líka í krómi og hvítu. Þeir svörtu njóta nú mikilla vinsælda og við köllum hann „kvennaklefann“ því konur eru f ljótar að spotta út hvað er f lott. Þær höfðu áður lítinn áhuga á sturtuklefum en nú fá karlarnir engu að ráða lengur,“ segir Philip og hlær. Í Innréttingum og tækjum fæst allt fyrir baðið, allt frá baðslopp- um og sápum, yfir í ljós, spegla, hreinlætistæki og innréttingar. „Við reynum að bjóða upp á allt sem þarf fyrir baðherbergið og erum einnig með frábæra kubbaskápa undir þvottavélar með stórri skúffu og balapalli sem er hægt að draga út til að brjóta saman þvott og setja í balann. Neðri skúffan er hentug undir óhreina tauið eða þvottaefnin,“ segir Íris sem lifir og hrærist í þessum skemmtilega bransa. „Mig klæjar oft í puttana að prófa það nýjasta og væri svo til í að prófa nýju Switch-blönd- unartækin en einnig vistvænu blöndunartækin sem koma til okkar um næstu mánaðamót og fást líka í átta litum. Þetta eru blöndunartæki sem eru sett við hliðina á salerninu og hugsuð til skolunar eftir klósettferðir. Þá er salernispappírnum sleppt. Þetta er framtíðin og nú þegar veru- leikinn í milljónaborgum eins og Los Angeles þar sem er bannað að setja klósettpappír í klósettið. Skolun er umhverfisvænni og hreinlátari kostur, auk þess sem úrgangurinn er náttúrulegur og vistvænn.“ Hjá Innréttingum og tækjum fæst líka fallegur mosi sem er vin- sæll til skreytinga og betri hljóð- vistar á veggi og í loft fyrirtækja, veitingahúsa og heimila. „Margir setja líka mosa í fal- legan ramma inn í baðherbergi sín. Það hefur róandi áhrif, og færir náttúruna inn.“ n Innréttingar og tæki eru í Ármúla 1. Sími 588 7332. Netfang i-t@i-t. is. Skoðið úrvalið á i-t.is. Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Jón Þórisson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Svart er heitasta heitt og nú fást sturtuklefar í stíl. Baðinnréttingar í litum halda velli og viðurinn dökknar. Hægt er að fá vaska og blöndunartæki í sömu litum.. Ítölsk blöndunartæki með tökkum er það nýjasta nýtt og einfalt í notkun. Fagurbleik handlaug og gylltur krani. Philip innan um glæsilegt úrval vandaðra innréttinga og tækja við allra hæfi. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 2 kynningarblað A L LT 28. mars 2023 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.