Fréttablaðið - 28.03.2023, Qupperneq 19
Þessu neit-
unarvaldi
er heldur
ekki hægt
að breyta,
hvað þá
að draga
úr því eða
fella það
niður,
nema að
öll aðildar-
ríkin sam-
þykki.
Málarar
Við erum löggiltir málarar.
Tökum að okkur öll verkefni,
stór og smá. Gerum tilboð eða
tímavinnu og erum mjög sann-
gjarnir. Endilega hafa samband
í síma 782 4540 eða í
loggildurmalari@gmail.com
HSH
Þrif og flutningar
Tökum að okkur regluleg þrif fyrir
sumarhús, hótel, gistiheimili og
fyrirtæki. Almennar ræstingar, auka
þrif og ýmis önnur þjónusta.
Erum staðsett á Suðurlandi.
Gerum tilboð
sem hentar þínum þörfum.
Hægt er að nálgast frekari
upplýsinga í síma 792-1727
eða í tölvupóst á
hshflutningar@gmail.com
HSH þrif og flutningar ehf.
er fyrirtæki með persónulega þjónustu
sem er með 10 ára reynslu í þrifum
og flutningum.
Nudd Nudd Nudd
Slökunarnudd í miðbæ
Reykjarvíkur. Lausir tímar.
Sími 694 7881, Janna.
9. marz sl. skrifaði Diljá Mist Ein-
arsdóttir, sem komst á þing fyrir
Sjálfstæðisflokkinn í síðustu kosn-
ingum, grein í blaðið með fyrir-
sögninni „ESB og evran til bjargar“.
14. marz svaraði ég þessum skrifum
með grein með fyrirsögninni „Það
sem ESB- og evru-umræðan snýst
um“. 22. marz skrifar Diljá svo
aftur, nú með fyrirsögninni „Langt
svar ungrar konu um evru og ESB“.
Skemmtileg fyrirsögn, en margt í
málf lutningi ekki jafn skemmti-
legt, hvað þá rétt.
„Ungur“
Ég hef átt nokkur skoðanaskipti
við Diljá, ekki bara hér, heldur líka
í öðrum fjölmiðlum, og nefnt hana
unga konu. „Ungur“ og „gamall“ eru
auðvitað afstæð hugtök, en algeng
merking er aldur í árum. Í þessum
orðum felast líka aðrar merkingar,
t.a.m. sú, að ungur maður sé lítt
reyndur og þekking í samræmi við
það, og, þá um leið, að þeir gömlu
séu reynslumeiri og búi oft yfir
meiri fróðleik og þekkingu.
Nú verður ekki séð, að Diljá
Mist hafi dvalið mikið erlendis,
hafi þaðan mikla eigin reynslu og
þekkingu, og byggir hún því skoð-
anir sínar og málf lutning mikið á
þekkingu, eða þekkingarleysi, og
skoðunum annarra. Trúlega hefur
faðir hennar, sem fyrir mér er í hópi
íhaldssamari manna hér, staðið vel
að uppeldinu og uppfræðslunni;
alið stúlkuna upp við skýra íhalds-
línu.
Kemur þessi staða mála vel fram
í síðustu grein þingkonunnar ungu,
þar sem hún segir m.a. „Fastir vext-
ir eru þar ófáanlegir til lengri tíma
en 5 ára, að mér er tjáð“. „...að mér
er tjáð“, er þýðingarmikil játning,
sem vert er að hafa í huga við lestur
skrifa Diljár.
M.ö.o. var þessari borubröttu
ungu konu – en hún virðist skrifa
greinar fyrir alla vega hálft þinglið
D, auk viðtala og annars framgangs
– sagt, og hún trúði því greinilega,
að ekki væri hægt að fá lán í ESB,
með föstum vöxtum, nema til 5 ára.
Ég vatt mér því til minna gömlu
sambanda í Þýzkalandi, en þar eru
um 400 bankar í því að lána hús- og
íbúðarkaupendum, og fékk þar eft-
irfarandi tilboð í lán, með föstum
vöxtum (breytilegir vextir með ein-
hverri vísitölu þekkjast þar ekki):
n 5 ár 3,65%
n 10 ár 3,33%
n 15 ár 3,53%
n 20 ár 3,76%
n 25 ár 3,81%
n 30 ár 3,97%
Þetta eru tilboð frá 22. marz 2023.
Það, sem Diljá Mist er tjáð og hún
setur svo fram sem góðan og gildan
sannleika, er þá, því miður – konan
virðist fróm – helber della.
„Gamall“
Svo ég fjalli lauslega um þetta hug-
tak, þá lýsir það sér hjá mér, auk
fjöldans allan af árum, í því, að ég
bjó í miðju Evrópusambandinu, í
Þýzkalandi, 1989-2016, í 27 ár, og
var þar í miðri atburðarásinni, hvað
varðar framþróun ESB og upptöku
Evru 1999/2002.
Við bætist, að 2018 fór ég, fyrir
milligöng u sendiher ra ESB á
Íslandi, Michaels Mann, á fund
helzt u embættismanna sam-
bandsins um aðildarmál og gjald-
miðlamál, í Brussel, og fór þar ofan
í saumana á þessum málum með
tilliti til Íslands.
2019, fór ég svo, fyrir sömu milli-
göngu, á fund leiðandi embættis-
manna um evruna, hjá ECB í Frank-
furt, í sama skyni.
Nokkur munur er því á bak-
grunni okkar Diljár Mistar í Evr-
ópu- og evrumálum; skilur þar
nokkuð milli „ungs“ og „gamals“.
ESB/evru-umræðan
Hvernig standa Íslendingar með
krónu og utan ESB í samanburði
við það, hvernig við stæðum með
evru og í ESB, hlýtur að vera kjarna-
spurningin.
Það, hvernig gengur í öðrum
löndum – en sá gangur er misjafn
og fjölbreytilegur, eftir landfræði-
legri legu, sögu, menningu, auð-
lindum, fólksfjölda, veðráttu og
öðrum skilyrðum – í samanburði
við það, hvernig gengur hér, er því
lítilsvirði, tímasóun.
Þó bendir f lest til, að öllum 27
löndum ESB gangi betur í ESB og
f lestum þeirra með evru, en ella
hefði verið, annars væru þau þar
vart. Mörg lönd, sem hafa ekki
evru, sækjast eftir henni af öllum
mætti.
Umfang ESB-aðildar okkar
Sú vel upplýsta upplýsir, að á
tímabilinu 1994-2016 hefðum við
Íslendingar aðeins tekið upp 13%
af regluverki ESB, og vill túlka það
þannig, að okkar aðild sé ekki
meiri.
Þarna keyrir þingkonan glað-
beitta beint út í skurð, og það ekki
í fyrsta skipti, því vægi reglugerð-
anna er auðvitað feikilega ólíkt,
sumar, þær sem við höfum einkum
tekið upp, hafa mikið og afgerandi
vægi, en margar aðrar varða okkur
ekki eða eru smávægilegar.
Norðmenn eru með svipaðan
EES-samning og við. Á 20 ára
a f mæli þeir ra EES-sa mnings
skipaði ríkistjórnin þar 12 manna
nefnd, þ. á m. 7 prófessora, til að
meta aðildarstöðuna.
Aðildarstaðan, miðað við vægi
þeirra reglugerða, sem Noregur
hafði tekið upp, var talið 75%.
Þegar að ég tala um, að við séum
nú þegar 80-90% í ESB, miða ég við
þessa sömu tölu og Norðmenn,
75%, plús áhrifin af Schengen-sam-
komulaginu.
Neitunarvald aðildarríkja
Diljá Mist hef ur ef tir farandi
fásinnu eftir einhverjum miður vel
upplýstum ráðgjafa, eða kannske
hefur hún lesið hana í Mogganum:
„Einróma samþykki (þar sem
neitunar vald gildir ek k i) við
ákvörðunartöku í ráðherraráði
ESB, valdamestu stofnun sam-
bandsins, heyrir enda nánast sög-
unni til“.
Við skulum nú sjá, um hvaða
málaflokka neitunarvaldið gildir:
Ung og borubrött en á villigötum
Ole Anton
Bieltvedt
samfélagsrýnir og
alþjóðlegur kaup-
sýslumaður
n Skattlagning
n Fjárhagsáætlanir og fjármála-
skuldbindingar
n Félagsleg vernd og öryggi al-
mennings
n Samningar og ákvarðanir um
upptöku nýrra aðildarríkja
n Öryggis- og varnarmál
n Samskipti og samningar ESB við
önnur ríki
n Sameiginleg löggæzla sam-
bandsríkjanna
Ekkert mál í þessum þýðingar-
miklu málaf lokkum getur farið
í gegn, eða hlotið samþykki til
framkvæmdar, nema öll aðildar-
ríkin, og, þá, líka við, ef við værum
orðin aðilar, myndum samþykkja.
Með þessu fengjum við í hendur
gífurlegt áhrifavald á gang mála og
þróun sambandsins. Þessu neit-
unarvaldi er heldur ekki hægt að
breyta, hvað þá að draga úr því eða
fella það niður, nema að öll aðildar-
ríkin samþykki.
Erlendir bankar, fjárfestar,
tryggingarfélög og
smásölukeðjur
Ég hef fullyrt, og geri það aftur hér,
að slíkir aðilar, jafnvel í fjölbreyttu
formi, myndu koma hér inn með
sitt fé og sinn rekstur, ef við værum
í ESB og með evru.
Það myndi auðvitað stórauka
framboð og samkeppni, neyt-
endum til góða. Stóraukið fé kæmi
til framkvæmda, vöruúrval myndi
aukast og verð myndi lækka.
Þingkonan telur, að þetta myndi
ekki gerast, að erlendir aðilar komi
ekki hér inn vegna smæðar mark-
aðarins. Það sé ekki krónunni að
kenna.
Það má þá benda henni á, á móti,
að 26 erlend f lugfélög f ljúga til og
frá Íslandi, þar af eru 24 erlend,
bara 2 íslenzk, þrátt fyrir smæð
markaðarins. Hér eru allir jafnir og
evra eða Bandaríkjadalur gilda. n
Fréttablaðið skoðun 1528. mars 2023
ÞRIðJuDAGuR