Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.03.2023, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 28.03.2023, Qupperneq 26
Þetta er dagur til þess að fagna píanóinu og öllu í kringum það. Sævar Helgi Jóhannsson Sævar Helgi Jóhannsson sendi frá sér nýtt lag á föstudag í tilefni píanódagsins en hann vinnur nú að sinni fimmtu plötu sem er væntanleg í ár. Mynd/Magnus andersen Eðvarð Egilsson vinnur að sinni fyrstu sólóplötu. Fréttablaðið/Valli Miro Kepinski er pólskt kvikmynda- tónskáld. Mynd/aðsend Tónskáldið og píanóleikarinn Sævar Helgi Jóhannsson heldur tónleikaröð í vikunni ásamt félögum sínum Eðvarði Egilssyni og Miro Kepinski í tilefni alþjóðlega píanó­ dagsins. Tónlistarmennirnir Sævar Helgi Jóhannsson, Eðvarð Egilsson og Miro Kepinski eiga það allir sameiginlegt að semja mikið fyrir leikhús, sjón­ varp og kvikmyndir og hafa mikla ástríðu fyrir píanóinu. Þeir ætla að halda þrenna tónleika í vikunni í tilefni píanódagsins. „Við spilum í Mengi á miðvikudag­ inn klukkan 8, svo erum við að spila daginn eftir á Selfossi líka klukkan 8 á Risinu sem er vínbar í nýja mið­ bænum. Svo slúttum við þessu með tónleikum í Reykjanesbæ í Duus Safnahúsinu klukkan 2,“ segir Sævar. Samsvarar lyklafjölda píanósins Píanódagurinn (e. piano day) er haldinn hátíðlegur á 88. degi ársins sem í venjulegi árferði er 29. mars en 28. mars á hlaupárum. Hugmyndin að deginum kemur frá þýska tón­ skáldinu og píanóleikaranum Nils Frahm og var fyrsti píanódagurinn haldinn árið 2015. „Þetta er frekar nýr dagur og það er Nils Frahm tónskáld og píanisti sem er stofnandi píanódagsins og kom honum af stað. Þetta er dagur til þess að fagna píanóinu og öllu í kringum það; flytjendum, tónskáldum, hlust­ endum, píanóstillum og bara öllu til­ einkuðu píanóinu. Þetta er 88. dagur ársins sem samsvarar lyklafjölda píanósins,“ segir Sævar. „Af hverju þarf heimurinn píanó­ dag? Fyrir því eru margar ástæður en aðallega vegna þess að það sakar ekki að fagna píanóinu og öllu í kringum það, f lytjendum, tón­ skáldum, píanósmiðum, píanó­ stillum, flutningsmönnum en fyrst og fremst; hlustendum,“ er haft eftir Nils Frahm um píanódaginn. Kynntust í tónsmíðabúðum Sævar Helgi, Eðvarð og Miro, sem er pólskur, eiga það allir sameiginlegt að vera bæði tónskáld og píanóleik­ arar. „Við Eðvarð erum búnir að þekkj­ ast síðan við vorum í Listaháskól­ anum og erum búnir að vera góðir vinir í langan tíma. Við fórum báðir í tónsmíðabúðir í Póllandi á vegum STEFs í boði Music Export Poland, sem er svona pólska útgáfan af STEFi. Þar kynnumst við Miro og unnum með tónskáldum alls staðar að og tónlistarforleggjurum, fólki sem velur tónlist í kvikmyndir og þætti,“ segir Sævar. Þeir félagarnir eiga það einn­ Með ástríðu fyrir píanóinu TónlisT Erard Ensemble stolen schubert Tónlist eftir Franz schubert Flytjendur: Ásdís Valdimarsdóttir, víóla, Edward Janning, píanó og Katharine Dain, sópran Jónas Sen Franz Schubert var yfirþyrmdur þegar hann hitti átrúnaðargoð sitt, Beethoven. Schubert dáði hann mjög og f lúði því æpandi af vett­ vangi, eða svo er sagt. Beethoven var nokkru eldri, og þegar hann lést var Schubert kyndilberi í jarðar­ förinni. Hann sjálfur varð ekki gam­ all, aðeins 31 árs, og er hann fann dauðann nálgast bað hann um að vera jarðaður við hlið meistarans. Honum varð ósk sinni. Litli sveppur Mörgum árum síðar voru jarð­ neskar leifar tónskáldanna færðar á betri stað, og við það tækifæri voru þau rannsökuð. Í ljós kom að höfuðkúpa Beethovens var þykk og sterkleg, en hin fíngerð, nánast eins og í konu. Schubert var ekki hár í loftinu, og var oft kallaður „litli sveppur“. Heilt yfir er tónlist Schuberts mildari og ljóðrænni en sú sem Beethoven samdi, þó vissu­ lega séu undantekningar. Hún er dásamlega fögur, laglínurnar eru himneskar og f læðið í tónlistinni innblásið og grípandi. Fyrir skemmstu kom út geisla­ diskur með Ásdísi Valdimarsdóttur víóluleikara og Edward Janning píanóleikara þar sem þau flytja tón­ list eftir Schubert. Nánar tiltekið er það Arpeggione sónatan, nokkrir kaflar úr Vetrarferðinni sem hér er útsett fyrir víólu, og tvö sönglög þar sem Katharine Dain sópran syngur. Í rétta andanum Skemmst er frá því að segja að f lutningurinn er í hvívetna p r ý ð i l e g u r . Hann er léttur og fíngerður í takt við tón­ listina, kraft­ mikill þegar við á, en samt alltaf tempr­ aður. Heildar­ my nd i n er dálítið inn­ hverf á ein­ hvern sjarm­ erandi hátt, jafnvel þótt tónlistin sé full af tilfinningum. Enga tilgerð er að finna í túlkuninni, hún er ávallt blátt áfram og heiðarleg. Flutning­ urinn er alltaf í samræmi við óskir tónskáldsins, ávallt í rétta, róman­ tíska andanum sem f læðir svo ljúflega. S c h u b e r t samdi himneskar laglínur og hér eru þær mótaðar afskaplega fal­ lega. Schuber t samdi alls konar verk, en ljóða­ sönglögin hans eru í sérf lokki. Þau eru um 600 talsins, hann var bók st a f lega sí­ semjandi. Einu sinni samdi hann átta lög á einum sólarhring. Þessi ljóðræna stemning er líka í verk­ unum fyrir hljóðfæri eingöngu, eins og til dæmis í þessari útgáfu. Melódíurnar eru spilaðar þannig að þær eru fullkomlega eðlilegar. Það er eins og þær verði til á því augna­ bliki sem þær eru leiknar. Tæknilega séð er leikurinn skýr og jafn, og hendingar fagurlega mótaðar og smekklegar. Söngurinn er jafnframt dásamlegur, kraft­ mikill og tær. Upptökuhljómurinn er líka mildur og hlýr, sem gefur heildarmyndinni notalega heimilis­ legan brag. Það er þægilegt að hafa þennan geisladisk á fóninum, líkt og tónlistarfólkið sjálft sé í stofunni að spila fyrir mann og syngja. Þetta er frábært. n niðursTaða: Einkar vönduð og sannfærandi túlkun á tónlist eftir Schubert. Ó, þú fagri Schubert Þorvaldur S. Helgason tsh @frettabladid.is ig sameiginlegt að hafa allir samið tónlist fyrir kvikmyndir. Eðvarð samdi meðal annars tónlistina fyrir heimildarmyndina Smoke Sauna Sis­ terhood eftir Anna Hints sem vann leikstjórnarverðlaun á Sundance­ kvikmyndahátíðinni í ár og tón­ listina fyrir kvikmyndina Skjálfta ásamt Páli Ragnari Pálssyni en fyrir hana hlutu þeir tilnefningu til nor­ rænu kvikmyndatónskáldaverð­ launanna HARPA. Miro Kepinski er þekktastur fyrir að semja tón­ list pólsku Netf lix­myndarinnar Furioza sem vakti athygli víða um heim. „Ég er svona kannski nýgræðing­ urinn í hópnum en er búinn að gera mikið tónlist fyrir leikhús, þann­ ig við erum allir að vinna í ýmsum verkefnum,“ segir Sævar en hann samdi nýlega tónlist fyrir heimildar­ myndina Ég sé þig eftir Önnu Hildi Hildibrandsdóttur. Píanóið fallegt hljóðfæri Á tónleikunum í tilefni píanódagsins munu þeir Sævar, Eðvarð og Miro skiptast á að leika frumsamda tón­ list. „Þetta verður blanda af okkar eigin efni og tónlist sem við höfum gert fyrir ýmis önnur verkefni. Það mætti flokka tónlistina okkar undir nýklassík, neo­classical, en mér finnst við allir vera með okkar eigin persónulega stíl. Píanóið er þunga­ miðjan í öllum atriðunum og við notum það allir mjög mikið í okkar tónsmíðum. Þannig að það var bara eitthvað svo upplagt að fagna þessu fallega hljóðfæri,“ segir Sævar. Hvernig píanó munið þið að spila á á tónleikunum? „Í Mengi spilum við á upprétt píanó en á hinum tveimur stöðunum spilum við á flygil. Ég fíla eiginlega upprétt píanó meira af því þegar maður setur feltið á þá fær maður svo blíðan tón og það er akkúrat minn stíll.“ Þá eru Sævar, Miro og Eðvarð allir með nýjar útgáfur í vændum. Eðvarð vinnur um þessar mundir að sinni fyrstu sólóplötu og Sævar gaf út lagið The Wound á föstudag. Þá ætlar Miro að gefa út sérstaka EP­plötu í tilefni píanódagsins á miðvikudag með tónlist hans úr Furioza útsetta fyrir píanó. n 22 menning FRÉTTABLAÐIÐ 28. MARS 2023 ÞRiÐJUDAgUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.