Víkurfréttir - 18.01.2023, Blaðsíða 14
Knattspyrnukonan Amelía Rún Fjeldsted, leikmaður Bestu-
deildarliðs Keflavíkur, var valin íþróttamaður Suðurnesjabæjar á
dögunum. Amelía spilaði sautján leiki með Keflavík í efstu deild
kvenna á síðasta tímabili og skoraði í þeim tvö mörk, auk þess að
spila einn leik í Mjólkurbikarnum. Amelía var valin í verkefni U19
ára landsliðs Íslands síðasta sumar og þar spilaði hún þrjá leiki
og skoraði eitt mark.
Flott fyrirmynd
Amelía er virkilega flott fyrir-
mynd og þrátt fyrir að vera aðeins
átján ára hefur hún leikið fimm
tímabil í meistaraflokki en fyrsta
leikinn spilaði hún árið 2018, að-
eins fjórtán ára gömul. Víkurfréttir
heyrðu í Amelíu og við byrjuðum
á að óska henni til hamingju með
valið og spurðum svo hvað væri
helst á döfinni hjá henni þessa
dagana.
„Takk fyrir það. Það er allt á fullu
núna, skólinn að byrja, fótboltinn og
svo er ég á landsliðsæfingum núna
með U19. Framundan er æfingamót í
Portúgal í febrúar og svo er það milli
riðill EM í apríl,“ segir Amelía en hún
fór í tvær ferðir síðasta sumar með
U19 og hefur verið í æfingahóp síðan.
Hvernig leggst næsta tímabil í þig?
„Ég er mjög spennt fyrir því, við
erum auðvitað komnar með nýjan
þjálfara og breyttan leikmannahóp.
Margar eru farnar, þessar erlendu,
en við eigum eftir að fá fleiri leik
menn svo það er svolítið erfitt að sjá
hvernig þetta verður en ég er spennt
og vonandi gengur okkur vel.
Okkur hefur verið að ganga ágæt
lega í þeim æfingaleikjum sem við
höfum verið að spila. Við unnum
KH (varalið Vals) um síðustu helgi
5:1, svo erum við að spila alla laugar
daga í janúar.“
Amelía segir að ýmislegt hafi
breyst að undanförnu. Nýr þjálfari,
Jonathan Glenn, hefur tekið við
meistaraflokki kvenna hjá Keflavík
og hún hefur góða tilfinningu fyrir
því sem hann er að gera. „Já, Glenn
er örugglega að fara að gera góða
hluti með okkur. Það sem hann er að
gera virkar vel á mig. Ég stefni á að
vera áfram fastamaður með Keflavík
í sumar,“ segir hún en Amelía á bara
eitt ár eftir af samningi sínum. „Ég
ætla að halda áfram á sömu braut,
ég er ekkert að plana neitt sérstakt.
Bara klára þetta ár og skoða svo hvað
gerist, hvað verður í boði þá.“
Útskrifast eftir þessa önn
Það er nóg að gera hjá Amelíu en auk
þess að vera á fullu í fótboltanum
með Keflavík og landsliðinu sam
hliða vinnu á leikskóla, þá stefnir
hún á að útskrifast úr Fjölbrauta
skóla Suðurnesja í vor.
„Það er nú ekki mikill frítimi.
Ég geri lítið annað, fer í skólann á
morgnana og svo í vinnu á leikskóla
í Sandgerði. Þar sem ég er að klára
er ég ekkert í mörgum fögum í skól
anum svo ég hef tíma fyrir vinnu.
Eftir vinnu er það svo fótboltinn og
þá er dagurinn bara búinn.“
Amelía hefur ekki tekið endanlega
ákvörðun um í hvaða nám hún ætli
að halda eftir stúdentspróf en hún sé
að vega og meta nokkrar hugmyndir.
„Ég er bara ekki alveg búin að
ákveða hvað ég ætla að gera í fram
haldinu en það fer að koma í ljós
fljótlega, ég er með nokkrar hug
myndir sem ég þarf að gera upp á
milli,“ segir hún. „Ég er líka búin að
skoða að taka pásu eftir fjölbraut
til að safna pening – en mig langar
að halda áfram með námið og klára
það. Ég á bara alveg eftir að ákveða
þetta,“ sagði íþróttamaður Suður
nesjabæjar að lokum.
ÍÞRÓTTIR
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Amelía Rún Fjeldsted er
íþróttamaður Suðurnesjabæjar 2022:
Spilaði fjórtán ára
með meistaraflokki
Íþróttamaður Suðurnesjabæjar fyrir árið 2022
Val á íþróttamanni Suðurnesjabæjar 2022 var kynnt í Vörðunni í Sand-
gerði í síðustu viku. Amelía Rún Fjeldsted varð þessur heiðurs aðnjót-
andi en hún er virkilega flott fyrirmynd fyrir yngri kynslóðina í Suður-
nesjabæ og sýnir það og sannar að með metnaði og elju eru allir vegir
færir.
Við sama tilefni var Benedikt Gunn
arssyni veitt viðurkenning íþrótta
og tómstundaráðs fyrir óeigingjarnt
starf að íþrótta og æskulýðsmálum
í sveitarfélaginu. Benedikt hefur
verið hluti af teymi Golfklúbbs
Sandgerðis frá stofnun hans 1984.
Verkefni Benedikts hafa verið allt
frá því að moka holur og setja í þær
málningarfötur í upphafi, byggja og
laga klúbbhús eða taka þátt í upp
byggingu á nýjum átján holu golf
velli og alltaf var hann klár í að að
stoða og taka þátt.
Hann var einnig, ásamt öðrum,
forsprakki að barna og unglinga
starfi golfklúbbsins, kenndi þar
grunninn og þeystist svo með alla
landshornanna á milli og er óhætt
að segja að líflegasti tími barna og
unglingastarfs klúbbsins hafi verið
á þessum tíma.
Aðrir sem tilnefndir voru og hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur
árið 2022: Hammed Obafemi Lawal, Sigurður Óskar Sólmundarson og
Salóme Róbertsdóttir.
Amelía eftir að hafa verið útnefnd íþróttamaður Suðurnesjabæjar 2022.
VF-myndir: Hilmar Bragi
sport