Víkurfréttir - 18.01.2023, Síða 14

Víkurfréttir - 18.01.2023, Síða 14
Knattspyrnukonan Amelía Rún Fjeldsted, leikmaður Bestu- deildarliðs Keflavíkur, var valin íþróttamaður Suðurnesjabæjar á dögunum. Amelía spilaði sautján leiki með Keflavík í efstu deild kvenna á síðasta tímabili og skoraði í þeim tvö mörk, auk þess að spila einn leik í Mjólkurbikarnum. Amelía var valin í verkefni U19 ára landsliðs Íslands síðasta sumar og þar spilaði hún þrjá leiki og skoraði eitt mark. Flott fyrirmynd Amelía er virkilega flott fyrir- mynd og þrátt fyrir að vera aðeins átján ára hefur hún leikið fimm tímabil í meistaraflokki en fyrsta leikinn spilaði hún árið 2018, að- eins fjórtán ára gömul. Víkurfréttir heyrðu í Amelíu og við byrjuðum á að óska henni til hamingju með valið og spurðum svo hvað væri helst á döfinni hjá henni þessa dagana. „Takk fyrir það. Það er allt á fullu núna, skólinn að byrja, fótboltinn og svo er ég á landsliðsæfingum núna með U19. Framundan er æfingamót í Portúgal í febrúar og svo er það milli­ riðill EM í apríl,“ segir Amelía en hún fór í tvær ferðir síðasta sumar með U19 og hefur verið í æfingahóp síðan. Hvernig leggst næsta tímabil í þig? „Ég er mjög spennt fyrir því, við erum auðvitað komnar með nýjan þjálfara og breyttan leikmannahóp. Margar eru farnar, þessar erlendu, en við eigum eftir að fá fleiri leik­ menn svo það er svolítið erfitt að sjá hvernig þetta verður en ég er spennt og vonandi gengur okkur vel. Okkur hefur verið að ganga ágæt­ lega í þeim æfingaleikjum sem við höfum verið að spila. Við unnum KH (varalið Vals) um síðustu helgi 5:1, svo erum við að spila alla laugar­ daga í janúar.“ Amelía segir að ýmislegt hafi breyst að undanförnu. Nýr þjálfari, Jonathan Glenn, hefur tekið við meistaraflokki kvenna hjá Keflavík og hún hefur góða tilfinningu fyrir því sem hann er að gera. „Já, Glenn er örugglega að fara að gera góða hluti með okkur. Það sem hann er að gera virkar vel á mig. Ég stefni á að vera áfram fastamaður með Keflavík í sumar,“ segir hún en Amelía á bara eitt ár eftir af samningi sínum. „Ég ætla að halda áfram á sömu braut, ég er ekkert að plana neitt sérstakt. Bara klára þetta ár og skoða svo hvað gerist, hvað verður í boði þá.“ Útskrifast eftir þessa önn Það er nóg að gera hjá Amelíu en auk þess að vera á fullu í fótboltanum með Keflavík og landsliðinu sam­ hliða vinnu á leikskóla, þá stefnir hún á að útskrifast úr Fjölbrauta­ skóla Suðurnesja í vor. „Það er nú ekki mikill frítimi. Ég geri lítið annað, fer í skólann á morgnana og svo í vinnu á leikskóla í Sandgerði. Þar sem ég er að klára er ég ekkert í mörgum fögum í skól­ anum svo ég hef tíma fyrir vinnu. Eftir vinnu er það svo fótboltinn og þá er dagurinn bara búinn.“ Amelía hefur ekki tekið endanlega ákvörðun um í hvaða nám hún ætli að halda eftir stúdentspróf en hún sé að vega og meta nokkrar hugmyndir. „Ég er bara ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla að gera í fram­ haldinu en það fer að koma í ljós fljótlega, ég er með nokkrar hug­ myndir sem ég þarf að gera upp á milli,“ segir hún. „Ég er líka búin að skoða að taka pásu eftir fjölbraut til að safna pening – en mig langar að halda áfram með námið og klára það. Ég á bara alveg eftir að ákveða þetta,“ sagði íþróttamaður Suður­ nesjabæjar að lokum. ÍÞRÓTTIR Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is Amelía Rún Fjeldsted er íþróttamaður Suðurnesjabæjar 2022: Spilaði fjórtán ára með meistaraflokki Íþróttamaður Suðurnesjabæjar fyrir árið 2022 Val á íþróttamanni Suðurnesjabæjar 2022 var kynnt í Vörðunni í Sand- gerði í síðustu viku. Amelía Rún Fjeldsted varð þessur heiðurs aðnjót- andi en hún er virkilega flott fyrirmynd fyrir yngri kynslóðina í Suður- nesjabæ og sýnir það og sannar að með metnaði og elju eru allir vegir færir. Við sama tilefni var Benedikt Gunn­ arssyni veitt viðurkenning íþrótta­ og tómstundaráðs fyrir óeigingjarnt starf að íþrótta­ og æskulýðsmálum í sveitarfélaginu. Benedikt hefur verið hluti af teymi Golfklúbbs Sandgerðis frá stofnun hans 1984. Verkefni Benedikts hafa verið allt frá því að moka holur og setja í þær málningarfötur í upphafi, byggja og laga klúbbhús eða taka þátt í upp­ byggingu á nýjum átján holu golf­ velli og alltaf var hann klár í að að­ stoða og taka þátt. Hann var einnig, ásamt öðrum, forsprakki að barna­ og unglinga­ starfi golfklúbbsins, kenndi þar grunninn og þeystist svo með alla landshornanna á milli og er óhætt að segja að líflegasti tími barna­ og unglingastarfs klúbbsins hafi verið á þessum tíma. Aðrir sem tilnefndir voru og hlutu viðurkenningu fyrir góðan árangur árið 2022: Hammed Obafemi Lawal, Sigurður Óskar Sólmundarson og Salóme Róbertsdóttir. Amelía eftir að hafa verið útnefnd íþróttamaður Suðurnesjabæjar 2022. VF-myndir: Hilmar Bragi sport

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.