Víkurfréttir - 18.01.2023, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 18.01.2023, Blaðsíða 15
Bláa lónið styrkir íþróttafélögin á Suðurnesjum Þann 6. janúar veitti Bláa lónið íþróttafélögum á Suðurnesjum styrki til eflingar á barna­ og unglingastarfi félaganna. Alls nemur styrkupp­ hæðin um fjórtán milljónum króna á samningstímabilinu sem telur tvö ár. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, segir að það sé Bláa lóninu mikilvægt að hlúa að nær­ samfélaginu, og þá ekki síst með stuðningi við íþrótta­ og æskulýðs­ starf, og svo hafi verið viðhaft um langt árabil. „Það er kunnara en frá þurfi að segja hversu mikilvægt það er fyrir Suðurnesin að hafa öflugt íþróttastarf innan bæjarfélaganna. Það er okkur Bláa lóninu sönn ánægja að styðja við þetta góða starf og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs með íþróttafélögunum á Suðurnesjum.” Grímur bætir við að þegar horft er til þess hversu ósér­ hlífið starf íþróttafélaganna sé í þágu unga fólksins, ekki síst hið mikilvæga starf sjálfboðaliða, þá sé Bláa lóninu sérstaklega ljúft og skylt að leggja hönd á plóg. Rúnar V. Arnarson, formaður Íþróttabandalags Reykjanesbæjar, þakkaði fyrir stuðninginn fyrir hönd félaganna og sagði hann gríðarlega mikilvægan. Um leið tók hann undir orð Gríms um mikil­ vægi öflugs íþróttastarfs, einkum þegar unga fólkið er annars vegar. „Kynslóð eftir kynslóð sýnir það sig glögglega hversu góð áhrif íþrótta­ iðkun hefur, bæði sem heilsuefling til skemmri tíma og forvörn til lengri tíma. Í þessu sambandi er ómetan­ legt að eiga bakhjarla á borð við Bláa lónið sem hefur um áratuga skeið stutt myndarlega við æskulýðs­ og íþróttastarfið hér á Suðurnesjum. Við þökkum Bláa lóninu kærlega fyrir, þessi styrkur mun nýtast vel við starfsemi og áframhaldandi upp­ byggingu íþróttafélaganna.“ Fulltrúar íþróttafélaganna á Suðurnesjum fagna stuðningi Bláa lónsins til eflingar barna- og unglingastarfi þeirra til tveggja ára. Með þeim á myndinni eru Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins, og Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Bláa lónsins. Njarðvíkingar VÍS-bikarmeist- arar í 9. flokki stúlkna Njarðvík vann Breiðablik með 37 stiga mun (70:34) í bikarúrslitum 9. flokks stúlkna í körfuknattleik um helgina. Hulda María Agnars- dóttir var valin lykilleikmaður úr- slitaleiksins. Eins og úrslitin gefa til kynna höfðu Njarðvíkurstúlkur mikla yfirburði í leiknum en það var fyrst og fremst frábær liðsheild sem skóp sigurinn. Stór hópur áhangenda studdi við bakið á Njarðvíkingum í leiknum og ljóst að framtíð Njarðvíkur er björt. Myndir: JBÓ Njarðvíkingurinn Hulda María Agnarsdóttir var valin lykilleikmaður úrslitaleiksins en hún skilaði 22 stigum, tíu fráköstum og tveimur stoðsendingum auk fimm stolnum boltum. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn Akurskóli - Kennari Björgin Geðræktarmiðstöð Suðurnesja - Ráðgjafi Hljómahöll - Veitingastjóri Menntasvið - Sálfræðingur Myllubakkaskóli – Umsjónarkennari á miðstigi Njarðvíkurskóli/sérdeildin Ösp - Starfsmenn skóla Háaleitisskóli - Kennari í nýsköpun og upplýsinga- og tæknimennt Hefur þú áhuga á að starfa við liðveislu? Aðalskipulag í Reykjanesbæ Breyting á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035 Bæjarstjórn heimilaði 3. janúar 2023 að auglýsa samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2020-2035. Iðnaðarsvæðið I5 á Reykjanesi er stækkað og heimilt byggingarmagn aukið skv. uppdrætti og greinargerð VSÓ ráðgjöf dags 13. desember 2022. Markmið breytingar er að aðlaga iðnaðarsvæði I5 betur að landþörfum landeldis í grennd við Reykjanesvirkjun. Að skilgreina byggingarheimild sem rúmar landeldið og aðra atvinnustarfsemi innan Auðlindagarðsins á iðnaðarsvæði I5. Breytingin styður við markmið Auðlindagarðs um nýtingu afgangsstrauma frá Reykjanesvirkjun sem renna að hluta ónýttir til sjávar. Tillagan er til sýnis á heimasíðu Reykjanesbæjar www.reykjanesbaer.is og á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 frá og með 18. janúar til 8. mars 2023. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að gera athugasemdir er til og með 8. mars 2023. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar á Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ eða á netfangið skipulag@reykjanesbaer.is Skipulagsfulltrúi Reykjanesbær 18. janúar 2023 Breytingar á iðnaðarsvæði I5 Minningarmót Ragnars Margeirssonar 2023 Hið árlega minningarmót um Keflvíkinginn Ragnar Mar- geirsson, sem lék m.a. með Keflavík, KR og Fram verður haldið í Reykjaneshöllinni laugardaginn 4. febrúar. Mótið er hef- bundið knattspyrnumót eldri drengja með sex leikmenn í liði á kvart velli. Skipt verður í riðla eftir aldri þátttökuliða, n.t.t. 30 ára+ og 50 ára+. Hefð hefur skapast fyrir því hjá vinum Ragga Margeirs að styrkja góð málefni tengd knattspyrnu með pening sem safnast af þátttöku í mótinu. Þetta verður í sautjánda sinn sem komið er saman til að minnast Ragnars Margeirssonar sem lést langt fyrir aldur fram. Vinir Ragga Margeirs bjóða öllum að koma við í Reykjaneshöllinni laugardaginn 4. febrúar og fylgjast með fyrrverandi knattspyrnusnillingum leika listir sínar og eiga góða stund saman. Mótið hefst um kl. 15:30 og lýkur um kl. 18:00. ­ Leikið verður á fjórum litlum völlum (50 x 32). ­ Leikmanna­ fjöldi: Sex í liði (fimm útileikmenn og markvörður) ­ Aldurstakmark er 30 ár ­ Hámarksfjöldi liða í mótið eru sextán lið ­ Þátttökugjald er að lágmarki 20.000 kr. á lið ­ Staðfestingargjald (5.000 kr. ­ sem dregst frá þátttökugjaldi) skal greitt eigi síðar en 28. janúar ­ Þátttökugjald leggist inn á reikning: 0133­26­005194, kt. 701221­1250. Þátttökutilkynningar sendist á minningarmot@gmail.com. Að móti loknu verður verðlaunaafhending ásamt því sem boðið verður upp á léttar veitingar á BRONS. Lokahófið hefst kl. 19 og lýkur formlega kl. 22 en fjörið heldur áfram fram á rauða nótt. Þeir sem vilja styrkja málefnið geta gert það með því að leggja inn á reikning nr. 0133­26­005194, kt. 701221­1250. Við viljum nota tækifærið og þakka eftirtöldum fyrirtækjum fyrir stuðning við mótið: Rétturinn, Soho, Ölgerðin, Paddy’s, TM og Brons. Með fótboltakveðju Vinir Ragga Margeirs. Gamlar kempur eigast við í sextánda Minningarmóti Ragnars Margeirssonar árið 2020. Keflvíkingar sáu aldrei til sólar í úrslitum VÍS-bikarkeppni kvenna í körfuknattleik um helgina þegar Haukar tryggðu sér sinn þriðja bikartitil í röð og voru betri á öllum sviðum í Laugardalshöllinni. Lokatölur 94:66. Daniela Wallen var sú eina í leikmannahópi Keflavíkur sem lét eitthvað að sér kveða en hún skoraði 30 stig og tók sextán fráköst. Keflvíkingar kjöldregnir í bikarnum vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM // 15

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.