Víkurfréttir - 01.01.2023, Side 1
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
26. janúar - 5. febrúar
25%
AFSLÁTTUR
ALLT AÐ
OG APPTILBOÐ Á
HVERJUM DEGI
Heilsu- & lífsstílsdagar Nettó
Gleðilegt nýtt
heilsuár!
Skannaðu
QR-kóðann
og náðu
í blaðið
Stærsti hraðhleðslugarður á Íslandi
með tuttugu hraðhleðslustöðvum
verður settur upp á Aðaltorgi í
Reykjanesbæ og opnar í byrjun
apríl í vor. InstaVolt, öflugasta hrað
hleðslufyrirtæki Bretlands stefnir
að því, í samstarfi við HS Orku, að
setja upp um tvöhundruð hleðslu
stöðvar á Íslandi á næstu þremur
árum. Fyrstu stöðvarnar verða
settar upp og gangsettar á Aðal
torgi.
„Þetta boðra byltingu og breytta
hugsun í hvernig við nálgumst
þetta verkefni, að byggja upp inn-
viði vegna orkuskipta á Íslandi
þar sem að upphafleg fjárfesting
er hugsuð til margra ára og fyrir-
sjáanlegrar aukningar en ekki bara
núverandi þörf. Að setja niður
fyrstu stöðvarnar á Aðaltorgi var
eðlilegt skref þar sem HS Orka er
innlendur samstarfsaðili InstaVolt.
Sú vinna sem Aðaltorg hafið unnið
áður einfaldaði ferlið mjög en það
er almennt frekar flókið. Velvilji frá
Reykjanesbæ og HS Veitum skipti
höfuðmáli í að koma þessu verkefni
af stað. Búið er að skrifa undir alla
samninga, við Aðaltorg, HS Veitur,
jarðverktaka og rafverktaka. Verkið
er hafið og verður unnið hratt,“ segir
Jóhannes Snorri Sigurbergsson, for-
stöðumaður viðskiptaþróunar hjá
HS Orku.
Að sögn Jóhanns leggja forráða-
menn InstaVolt áherslu á að vinna
með heimamönnum, hvort sem er
verktökum eða öðrum. „InstaVolt
er öflugasta hraðhleðslufyrirtæki
Bretlands, með yfir 1.000 stöðvar
víðs vegar um Bretland. Fyrirtækið
leggur áherslu á að bjóða upp á auð-
velt aðgengi að stöðvum þar sem
hver sem er getur mætt og greitt
fyrir hleðsluna með greiðslukorti.
Ekki þarf að nota sérstaka greiðslu-
lykla. Þetta er einfalt og þægilegt
„tap and go“. InstaVolt einokar í raun
öll verðlaun um bestu hraðhleðslu-
netin í Bretlandi, enda er svokallaður
uppitími stöðva 99,5%. Það sinnir
miklu viðhaldi á sínum stöðvum
og hafa öflugt eftirlit með þeim ef
eitthvað klikkar. Þá er þetta hugsað
þannig að aldrei þurfi að bíða eftir
hleðslu með að setja niður margar
stöðvar á hverjum stað. Því ætti ekki
að þurfa áhyggjur af því að þurfa að
bíða eins og algengt er.
„HS Orka er mjög stolt af samstarfi
sínu við InstaVolt en Bretarnir leggja
áherslu á að staðsetja sig við þjón-
ustustöðvar til að fólk hafi eitthvað
að gera meðan bíllinn er hlaðinn.
Sú mikla uppbygging sem hefur átt
sér stað og framtíðaruppbygging á
Aðaltorgi var klárlega ein forsenda
fyrir því að það varð fyrir valinu
sem fyrsti hleðslugarður InstaVolt
á Íslandi. Þá er staðsetningin við
Reykjanesbrautina og nálægðin við
flugvöllinn algerlega frábær,“ segir
Jóhann.
Ingvar Eyfjörð hjá Aðaltorgi
segir það mjög ánægjulegt að þessi
stóru skref í orkuskiptum séu tekin
á Suðurnesjum. „Við hjá Aðaltorgi
erum einstaklega ánægð með sam-
starfið við HS Orku og Instavolt
en hraðhleðslugarðurinn er hluti af
uppbyggingu Aðaltorgs á þjónustu
við nærumhverfi Keflavíkurflug-
vallar. Rafbílaeigendur og -leigjendur
geta nú, samfara því að hlaða bílana
sína, nýtt sér þjónustuna sem í boði
er á Aðaltorgi. Þegar hafa Optikk
Reykjanes og Hárgreiðslustofan
Draumahár hafið starfsemi ásamt
veitingastaðnum The Bridge og
Court yard by Marriott hótelinu en
ráðgert er að Lyfjaval opni bílaapótek
í mars ásamt veitingastaðnum Lang-
best. Áfram verður unnið að frekari
uppbyggingu með auknu þjónustu-
framboði fyrir heimamenn og gesti
okkar,“ segir Ingvar.
Öflugasta hraðhleðslufyrirtæki í Bretlandi í samvinnu við HS Orku
setur upp tuttugu hraðhleðslustöðvar á Aðaltorgi og 200 á landinu.
Stærsti hraðhleðslugarður
á Íslandi opnar á Aðaltorgi
Framkvæmdir eru hafnar á Aðaltorgi. Einar Þór
Guðmundsson og Ingvar Eyfjörð frá Aðaltorgi
og á milli þeirra Guðni Lárusson og Jóhann
Snorri Sigurbergsson frá HS Orku. VF-mynd/pket
Nýir eigendur að Bústoð
Suðurnesjalína 2 hefði komið
í veg fyrir rafmagnsleysi
Ungir heimamenn taka við af Róberti og Hafdísi sem eru hætt eftir 48 ára starf.
Ætla að breikka vöruúrvalið og vera enn sýnilegri. Sjá umfjöllun á síðu 9 í blaðinu.
Landsnet svarar spurningum frá íbúa í Vogum. Sjá síðu 13 í blaðinu.
Heimsins besta
humarsúpa
í Grindavík?
„Það liggur við að fiskurinn komi beint upp úr dallinum
upp í eldhús til okkar og þetta finnst ferðamanninum mjög
spennandi,“ segir Hilmar Steinar Sigurðsson, einn eigenda
veitingastaðarins Bryggjunnar í Grindavík. Sjá síðu 10 í blaðinu.
Miðvikudagur 1. febrúar 2023 // 5. tbl. // 44. árg.