Víkurfréttir - 01.01.2023, Síða 9
Eigendaskipti verða hjá Bústoð nú
um mánaðamótin þegar Björgvin
Árnason, sem hefur verið versl
unarstjóri Bústoðar síðastliðin
níu ár, kaupir rekstur verslunar
innar ásamt Elmari Geir Jónssyni
og meðfjárfestum. Seljendur eru
Róbert Svavarsson, Hafdís Gunn
laugsdóttir og fjölskylda en þau
hjónin stofnuðu Bústoð fyrir 48
árum síðan eða árið 1975.
Húsgagnaverslunin Bústoð hefur
allt frá upphafi haft það að mark-
miði að bjóða upp á gæðavörur á
góðu verði, meðal annars frá Calia
Italia, Furnhouse og Skovby. Auk
þess nýtur gjafavörudeild Bústoðar
töluverðra vinsælda, með vörum
frá Iittala, Bitz, Zone, KARE, Spa of
Iceland, Vorhús og fleirum. Bústoð
hefur ávallt verið staðsett í Reykja-
nesbæ og er til húsa að Tjarnargötu
2, þar sem verslunin verður áfram
í rúmgóðum 1200 fm sýningarsal.
Áfram verður byggt á gömlum
grunni þó ákveðnar áherslubreyt-
ingar fylgi nýjum eigendum.
„Ég er með frábært teymi með
mér og saman viljum við sækja enn
frekar fram, bæði í heimabyggð, á
höfuðborgarsvæðinu og á lands-
byggðinni. Bústoð er rótgróið fyrir-
tæki á íslenskum húsgagnamarkaði
og til viðbótar því að vera með góð
vörumerki, þar sem við höfum getað
boðið upp á gæðavörur á góðu verði,
höfum við lagt mikla áherslu á að
sinna viðskiptavinum okkar vel. Það
er lykillinn að árangri undanfarinna
ára og við munum halda því áfram,
ásamt því sem við ætlum okkur að
breikka vöruúrvalið og vera enn
sýnilegri,“ segir Björgvin Árnason.
Róbert Svavarsson segir að þau
hjón séu stolt af því að hafa byggt
upp þetta fyrirtæki í þessi 48 ár.
„Svona gerist ekki nema að hafa frá-
bært starfsfólk sér við hlið, sem við
höfum alltaf haft og viljum við þakka
þeim fyrir samstarfið í gegnum
árin. Við þökkum viðskiptavinum
okkar um land allt fyrir viðskiptin í
þessi 48 ár. Jafnframt er það mikið
ánægjuefni að vita til þess að fyrir-
tækið verður í góðum höndum hjá
Björgvini og félögum. Fyrir þeim
vakir að hlúa áfram að Bústoð, vöru-
merkjum og starfsfólki þess, sem
veita viðskiptavinum okkar áfram
framúrskarandi þjónustu. Við Hafdís
göngum því sátt frá borði, full þakk-
lætis eftir tæplega hálfa öld í rekstri.“
Í tilefni tímamótanna var haldið
tímamótapartý í versluninni síð-
asta laugardag. Þar afhentu Róbert
og Hafdís tveimur samtökum eina
milljóna króna styrk hvoru; Parkin-
sonsamtökunum og Alzheimersam-
tökunum og tóku fulltrúar þeirra við
gjöfunum og þökkuðu fyrir hlýhug
Bústoðar hjónanna. Styrkir til sam-
takanna voru í minningu Magnúsar
Sædals, bróður Róberts.
Nýir eigendur að Bústoð
Ungir heimamenn taka við af Róberti og Hafdísi sem hætta
eftir 48 ár. Ætla að breikka vöruúrvalið og vera enn sýnilegri.
„Bústoð er rótgróið fyrirtæki á íslenskum
húsgagnamarkaði og til viðbótar því að vera með
góð vörumerki, þar sem við höfum geta boðið upp
á gæðavörur á góðu verði höfum við lagt áherslu
á að sinna viðskipatvinum okkar vel“
Tvær milljónir í styrki
Í tilefni tímamótanna afhentu Róbert og Hafdís tveimur samtökum eina milljón króna styrk, Parkinsonsam
tökunum og Alzheimersamtökunum og tóku fulltrúar þeirra við gjöfunum og þökkuðu fyrir hlýhug Bústoðar
hjónanna. Styrkir til samtakanna voru í minningu Magnúsar Sædals, bróður Róberts. Á myndinni eru þrjár
Vilborgar. Við hlið Hafdísar er Vilborg Gestsdóttir, ekkja Magnúsar Sædals, því næst Vilborg Jónsdóttir, for
maður Parkinsonsamtakanna, Vilborg Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Alzheimersamtakanna, og Róbert.
Fjölmargir vinir og ættingjar samfögnuðu með fráfarandi og nýjum
eigendum Bústoðar í „tímamótapartýi“ sem efnt var til í versluninni.
Bústoðarhjónin Hafdís og Róbert hafa komið lyklunum í hendur á Björgvini
Árnasyni t.v. og Elmari Geir Jónssyni. VF-myndir/pket
Páll Ketilsson
pket@vf.is
vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 9