Víkurfréttir - 01.01.2023, Síða 10
GRINDAVÍK
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
sigurbjorn@vf.is
„Það liggur við að fiskurinn komi beint upp úr dallinum upp í eldhús til okkar og þetta finnst ferðamann-
inum mjög spennandi,“ segir Hilmar Steinar Sigurðsson, einn eigenda veitingastaðarins Bryggjunnar
í Grindavík.
Veitingastaðurinn Bryggjan í
Grindavík hefur verið starfræktur
síðan 2009 þegar fyrrum eigendur,
bræðurnir Aðalgeir og Kristinn
Jóhannssynir, opnuðu staðinn á
neðstu hæðinni í sama húsi og þeir
voru með netagerð. Aðalrétturinn
var humarsúpa og urðu vinsældir
staðarins slíkar að fjórmenningar
sem voru í leit að nýju viðskipta-
tækifæri, keyptu staðinn árið 2018
og stækkuðu.
Hilmar er einn eigenda og fór fyrst
yfir sína sögu og hvernig kom til að
hann er einn eigenda Bryggjunnar
í dag. „Ég er fæddur og uppalinn
í Reykjavík, fór í MH og svo í við-
skiptafræði og er líka með MBA-
gráðu frá Háskóla Íslands. Ég vann
lengi hjá Stöð tvö, bæði í markaðs-
og fjármálum og vann svo í banka-
geiranum í nokkur ár, n.t. í Íslands-
banka. Á þessum tíma var búinn að
myndast skemmtilegur félagsskapur
okkar fjögurra sem eigum Bryggjuna,
Gestur Ólafur Auðunsson, reyndur
byggingarverktaki, Axel Ómarsson,
ég og Bjarne Bergman sem er frá Sví-
þjóð. Þessi sami eigendahópur hafði
átt saman fasteignafélag í Berlín
í Þýskalandi til margra ára. Síðan
vorum við að leita að viðskiptatæki-
færum í ferðaþjónustunni á Íslandi
árið 2017, sem var þá búinn að vera
í miklum blóma og við komum auga
á þennan frábæra stað, Bryggjuna.
Við höfðum mikla trú á svæðinu,
Reykjanesið, Bláa lónið, nálægðin við
flugvöllinn og ekki síst staðsetningin
við sjálfa bryggjuna. Við hugsuðum
þetta til lengri tíma, höfðum trú á
að ferðamannaiðnaðurinn ætti eftir
að aukast úti á landi. Það var líka
mjög spennandi að sjá hvað bræð-
urnir voru búnir að gera flotta hluti
á neðstu hæðinni en umsagnir aðila
á google og tripadvisor voru allar á
sömu lundina, að um einstakan stað
væri að ræða. Að sjá fræga Holly-
woodleikkonu eins og Sigourney
Weaver dásama staðinn skemmdi
ekki heldur fyrir. Þegar við fórum
að velta þessu fyrir okkur árið 2017
þá var hafin gerð heimildarmyndar
um staðinn, mynd sem fékk svo
nafnið Lobster soup. Sú mynd hefur
nánast farið sigurför um heiminn og
bara aukið hróður Bryggjunnar og
Grindavíkur auðvitað í leiðinni.“
Netagerð að hluta til
breytt í veitingastað
Alli og Krilli eins og þeir eru betur
þekktir í Grindavík, voru farnir að
spá í að stækka veitingastaðinn
vegna ásóknar. Hilmar og félagar
tóku við þeim bolta. „Bræðurnir
voru sífellt að lenda í því að þurfa
vísa gestum frá vegna plássleysis
og voru farnir að spá í að breyta
hluta salarins á efstu hæðinni sem
hafði hýst netagerð, í veitingastað.
Þetta smell passaði við okkar áform
og úr varð að við keyptum neta-
gerðahúsið og Bryggjuna af þeim.
Við fórum í miklar framkvæmdir
í salnum, skiptum nánast um allt
og upprunalega stóð til að breyta
öllum salnum í veitingastað en fljót-
lega í ferlinu kom upp þessi hug-
mynd hjá okkur og bræðrunum, að
hafa hluta salarins áfram sem neta-
gerð. Það hefur komið virkilega vel
út og vekur mikla athygli gesta, að
sjá netagerðarmennina laga trollin.
Stundum fá ferðamennirnir að kíkja
inn í netagerðina og ræða málin við
starfsmennina,“ segir Hilmar.
Ljós í myrkrinu
Fjórmenningarnir fengu afhent
snemma árs 2018 og framkvæmdir
hófust strax og reksturinn gekk
vel til að byrja með. „Við opnuðum
salinn uppi um Sjómannahelgina
2019 og það ár gekk mjög vel.
Bókunartölur fyrir næsta ár fóru
algerlega fram úr okkar björtustu
vonum en svo mætti vágestur sem
kallaði sig COVID og gerði okkur
lífið heldur betur leitt. Rekstrar-
grundvöllurinn hrundi auðvitað
og ég get ekki hrósað íslenskum
stjórnvöldum nægjanlega fyrir þau
úrræði sem boðið var upp á, ef ekki
hefði komið til þeirra þá hefðum við
varla lifað þetta af. Þetta var mjög
erfiður tími en svo fór jörð hér í
Grindavík að skjálfa og upp frá því
hófst eldgos og segja má í orðsins
fyllstu merkingu að það hafi verið
ljós í myrkrinu. Bærinn fylltist af
túristum svo traffíkin hjá okkur
jókst mjög mikið. COVID kom svo
auðvitað aftur en þetta skipti okkur
miklu máli. Jörð byrjaði svo aftur að
skjálfa í fyrra og aftur kom eldgos og
þetta gerði ekkert annað en styrkja
Reykjanesið sem vinsælan áfanga-
stað ferðamanna. Það er bara gullni
hringurinn sem er vinsælli dagsferð
heldur en ferð á Reykjanesið. Það
eina sem vantar hér í Grindavík er
meira gistirými fyrir ferðamanninn,
hann kemur hingað að morgni og
er fram eftir degi en er svo farinn
annað þar sem hann gistir. Þess
vegna er ekki grundvöllur fyrir að
hafa opið á kvöldin, sérstaklega ekki
yfir vetrartímann svo eins og sakir
standa þá munum við halda áfram
að hafa opið frá kl. 11.00 til 19.00.”
Flottur tónleika- og ballstaður
Þegar húsið var endurbætt þá var
gert ráð fyrir möguleika á tónleika-
og ballhaldi og er hljómburðurinn í
húsinu fyrsta flokks. Er þetta eitt-
hvað sem Bryggjan ætlar að gera
meira af í framtíðinni? „Við viljum
klárlega gera meira af því að bjóða
upp á viðburði, aðstaðan hér er
fyrsta flokks. Við erum að læra hvað
virkar og hvað ekki en hér hafa verið
haldnir frábærir tónleikar, böll, brúð-
kaup og fleira, möguleikarnir eru
óþrjótandi má segja en við viljum
velja af gaumgæfni hvað við gerum.
Loksins erum við komnir með lyftu
svo okkur er ekkert að vanbúnaði.
Við erum opnir fyrir nýjum hug-
myndum og ég hvet alla til að hika
ekki við að bera undir okkar þær
pælingar sem eru í gangi. Það er
ýmislegt í pípunum á næstunni en
næsta stóra verkefni er sjálf Sjó-
mannahelgin, enginn heldur hana
betur en Grindavík. Bærinn fyllist
og þetta er alltaf okkar stærsta helgi
tekjulega séð og munum við kapp-
kosta að bjóða upp á spennandi dag-
skrá alla helgina. Munum vonandi
opna með mikilli söngskemmtun
strax á fimmtudagskvöldinu, verðum
vonandi með stórt ball á föstudags-
kvöldinu og yfir höfuð, með mikla
stemningu þessa helgi. Þetta verður
auðvitað allt saman betur auglýst
þegar nær dregur,“ segir Hilmar.
Reykjanesið að styrkjast
sem ferðamannastaður
Hvernig sér Hilmar Bryggjuna þróast
á næstu árum? „Allt Reykjanesið er
að styrkjast sem ferðamannastaður
og ekki síst Grindavík. Við sjáum
fyrir okkur mikla aukningu á næst-
unni en segja má að Grindavík sé
hálfgerð matarkista og nálægð okkar
við bryggjuna býr til ofboðslega
skemmtilega og spennandi stemn-
ingu fyrir ferðamanninn. Hann getur
verið hér úti á svölunum, horft yfir
bryggjuna og á bátana vera landa.
Það liggur við að fiskurinn komi
beint upp úr dallinum upp í eldhús
til okkar og þetta finnst ferðamann-
inum mjög spennandi. Það eru
fleiri frábærir veitingastaðir hér í
Grindavík, mikil matarmenning.
Nálægðin við hafið og bryggjuna
gerir staðinn spennandi fyrir ferða-
manninn svo Grindavík hefur allt til
brunns að bera að vera mjög vinsæll
ferðamannastaður. Auðvitað væri
gott ef það væru fleiri hótel hér en
það kemur ef eftirspurnin verður til,
það er ég sannfærður um. Við erum
mjög þakklátir Grindvíkingum fyrir
móttökurnar og hlökkum til sam-
starfsins á komandi árum, við lítum
framtíðina björtum augum,“ sagði
Hilmar að lokum.
Humarsúpa Bryggjunnar
á meðal tuttugu bestu rétta í heimi
n COVID á versta tíma, eldgos á besta tíma
n Grindavík mun bara styrkjast sem ferðamannastaður
Hilmar að gæða sér á hinni
gómsætu humarsúpu.
Mynd tekin úr netagerðarsalnum.
Hajie Flores, matreiðslumeistari
á Bryggjunni
10 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM