Víkurfréttir - 01.01.2023, Side 14
Lengjubikarinn 2023:
Fótboltinn hefst um helgina
Undirbúningur fyrir knattspyrnuvertíðina 2023 fer á fullt nú í febrúar
þegar Lengjubikarinn fer af stað. Suðurnesjaliðin Grindavík, Keflavík
og Njarðvík leika í Adeild karla en Keflavík teflir einnig fram liði í
Adeild kvenna og Grindavík í Bdeild kvenna. Reynismenn, Víðismenn
og Þróttarar leika í Bdeild karla og þá eru Hafnir og RB í Cdeild karla.
Karla- og kvennalið Keflavíkur ríða á vaðið og hefja leik um helgina.
Bæði lið leika í Nettóhöllinni, karlarnir á laugardag og konurnar á
sunnudag. Hér að neðan má sjá riðla Suðurnesjaliðanna og fyrstu leiki
þeirra.
A-deild karla, riðill 1
Grindavík, HK, ÍA, KR, Valur og Vestri.
HK Grindavík
Kórinn lau. 11. febrúar 2023 kl. 11:30
A-deild karla, riðill 3
Afturelding, Fram, Grótta, Njarðvík, Stjarnan og Víkingur R.
Víkingur R. Njarðvík
Víkingsvöllur, fös. 10. febrúar 2023 kl. 19:00
A-deild karla, riðill 4
Fjölnir, Fylkir, KA, Keflavík, Þór og Þróttur R.
Keflavík KA
Nettóhöllin, lau. 4. febrúar 2023 kl. 14:00
B-deild karla, riðill 1
ÍH, Kári, KV, Reynir S., Víkingur Ó. og Ýmir.
ÍH Reynir S.
Skessan, lau. 18. febrúar. 2023 kl. 14:00
B-deild karla, riðill 2
Elliði, Haukar, Hvíti riddarinn, Sindri, Víðir og Þróttur V.
Haukar Víðir
Ásvellir, fös. 17. febrúar 2023 kl. 19:00
Hvíti riddarinn Þróttur V.
Malbikstöðin að Varmá, lau. 18. febrúar 2023 kl. 14:00
C-deild karla, riðill 2
Afríka, Hafnir, Hörður Í., KH og Kría.
Hafnir KH
Nettóhöllin (gervigras), þri. 21. febrúar 2023 kl. 20:00
C-deild karla, riðill 6
Álafoss, Álftanes, RB, Stokkseyri og Vængir Júpiters.
RB Álftanes
Nettóhöllin, fim. 23. febrúar 2023 kl. 20:00
A-deild kvenna, riðill 2
Afturelding, Breiðablik, ÍBV, Keflavík, Stjarnan og Tindastóll.
Keflavík Tindastóll
Nettóhöllin, sun. 5. febrúar 2023 kl. 14:00
B-deild kvenna
Augnablik, FHL, Fram, Fylkir, Grindavík, Grótta, HK og Víkingur R.
FHL Grindavík
Fjarðabyggðarhöllin, lau. 25. febrúar 2023 kl. 13:30
Keflvíkingar munu tefla
fram mikið breyttu karlaliði
frá síðasta tímabili.
Aníta Lind Daníelsdóttir er
áfram í herbúðum Keflavíkur.
FJÓRIR ÍSLANDSMEISTARATITLAR
og fjórir Iceland Open meistaratitlar
Tvö mót fóru fram helgina 14.–15. janúar á vegum Glímusambands Ís
lands. Á laugardeginum fór fram Icelandic Open og á sunnudeginum fór
Íslandsmótið í hryggspennu fram, eða Backhold eins og það er kallað á
erlendri tungu. Keppendur glímudeildar UMFN stóðu sig með mikilli prýði
á báðum mótunum og héldu heim hlaðnir verðlaunum.
Icelandic Open
Á Icelandic Open var keppt í þremur
aldurflokkum og sex þyngdar-
flokkum í fullorðinsflokki og fjórum
þyngdarflokkum í unglingaflokk-
unum tveimur. 64 skráningar voru
í flokkana á mótið.
14–16 ára
Helgi Þór Guðmundsson varð annar
í +68 kg flokki 14–16 ára. Mariam
Badawy sigraði -64 kg flokk en hún
sigraði í sama þyngdarflokki í aldurs-
flokknum 17–20 ára.
17–20 ára
Rinesa Sopi var þriðja í +70 kg flokki
17–20 ára og Jóhannes Pálsson var
annar í +74 kg flokki.
Fullorðinsflokkur
Í fullorðinsflokkum krækti Jóhannes
Reykdal Pálsson í þriðja sætið í +84
kg flokki og Heiðrún Fjóla Reykdal
Pálsdóttir sigraði í -75 kg flokki
en meiddist lítillega svo að hún
neyddist til að draga sig úr keppni í
öðrum flokkum.
Íslandsmótið í hryggspennu
14–16 ára
Íslandsmótið í hryggspennu fór svo
fram sunnudaginn 15. janúar. 67
skráningar voru í tíu þyngdarflokka
sem skiptust jafnt í fimm karlaflokka
og fimm kvennaflokka. Rinesa Sopi
byrjaði á því að krækja sér í silfur í
+64 kg flokki 14–16 ára stúlkna og
Helgi Þór Guðmundsson náði í þriðja
sæti í +68 kg flokki drengja.
17–20 ára
Rinesa varð einnig önnur í +70 kg
flokki 17–20ára en Mariam Badawy
gerði sér lítið fyrir og fagnaði Ís-
landsmeistaratitli í sama aldurflokki
en þyngdarflokki neðar.
Jóhannes Reykdal Pálsson varð
Íslandsmeistari í +74 kg flokki
unglinga með því að sigra fjóra mjög
sterka andstæðinga.
Fullorðinsflokkur
84 kg flokkur
Ingólfur Rögnvaldsson varð í öðru
sæti en hann sneri aftur eftir langt
hlé. Hann sigraði tvær viðureignir en
þurfti svo að lúta í lægra haldi fyrir
Arzhzel Puillandre en þess má geta
að Ingólfur var að keppa tvo þyngd-
arflokka upp fyrir sig.
+84 kg flokkur
Jóhannes, sem er aðeins sautján ára,
varð annar í +84 kg flokki en hann
sigraði þrjár glímur áður en hann var
lagður snyrtilega af Einari Eyþórs-
syni í úrslitarimmunni en Einar er
Evrópumeistari í þessum þyngdar-
flokki.
Opinn flokkur karla
Bæði Jóhannes og Ingólfur komust í
undanúrslit í opnum flokki. Jóhannes
komst í úrstlitaglímuna um fyrsta
sætið en laut aftur í lægra haldi fyrir
Mývetningnum Einari Eyþórssyni,
Ingólfur meiddist á hendi í keppni
um þriðja sætið svo hann þurfti að
hætta keppni.
75 kg kvenna
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir varð Ís-
landsmeistari í -75 kg flokki kvenna
eftir að hafa sigrað Tiphaine Le Gall,
Evrópumeistara í greininni, í úrslita-
viðureigninni.
+75 kg flokkur kvenna
Heiðrún var nokkuð óheppin þegar
dregið var í þennan flokk en hún
fékk Thiphaine í fyrstu viðureign
sem varð mjög löng og tók mikið úr
Heiðrúnu. Heiðrún kláraði viður-
eignina með því að leggja Tiphaine á
leggjarbragði. Hún sigraði síðan allar
viðureignir nema úrslitaviðureignina
en hún var lögð þrívegis á sínu eigin
bragði af Leu Quilien einni af sterk-
ustu fangbragðakonum Bretóníu.
Opinn flokkur kvenna
Heiðrún lærði af mistökum sínum
í +75 kg flokknum og lagði alla sína
andstæðinga nokkuð létt enda
er hún í allsvakalegu formi þessa
stundina.
Eftir helgina hafði glímudeildin
eignast fjóra nýja Íslandsmeistara-
titla, þrjá Iceland Open meistaratitla,
átta silfurpeninga og þrjú brons.
ÍÞRÓTTIR
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
Glímufólkið hlaðið verðlaunum.
Jóhannes Reykdal Pálsson
Íslandsmeistari í +74 kg
flokki unglinga.
Ingólfur Rögnvaldsson (l.t.v.) keppti
á ný eftir langt hlé og hafnaði í öðru
sæti í -84 kg flokki fullorðinna.
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir (fyrir miðju) er
í allsvakalegu formi þessa stundina.
sport