Víkurfréttir - 15.03.2023, Blaðsíða 1
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
Almannavarnarástand skapaðist í Suðurnesjabæ í snjóþyngslum í desember. Suðurnesjabær
var einangraður í fjóra sólarhringa. Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítarlegri saman-
tekt sem Almannavarnir Suðurnesja utan Grindavíkur hafa unnið. Ein af birtingamyndum
snjóþyngslana í Suðurnesjabæ eru aðstæður sem sköpuðust við leikskóla sem er í byggingu
við Byggðaveg í Sandgerði. „Leikskólinn fylltist af snjó,“ segir Bragi Guðmundsson, húsa-
smíðameistari, sem byggir leikskólann.
„Það eru stórir gluggar að norðan- og austan-
verðu og við settum mótaflekana aftur fyrir þá
til að verjast áhlaupinu. Þá kom bara snjórinn
af heiðinni og fyllti að húsinu. Það myndaðist
fimm metra hár skafl og snjórinn fór yfir þakið
og sogaðist inn í húsið að framanverðu. Það
fylltist það mikið að snjórinn náði upp undir
loftaplötu.“
Smiðirnir tóku sér skóflu í hönd og þurftu að
handmoka fjölmörg rými í skólabyggingunni.
Þá var smágrafa sótt austur í sveitir og hún
notuð til að moka snjó út úr húsinu.
„Við vorum í viku eða tíu daga að hreinsa út
úr skólanum og framkvæmdin var stopp í tíu
daga út af veðri og vegna þess að þurfti að moka
út.“
Aðspurður segir Bragi kostnaðinn hlaupa á
milljónum króna. Hann hafi þó ekki lagt í þá
vinnu að reikna það sérstaklega út. Mannskap-
urinn hafi verið í snjómokstri í marga daga og
smíðavinnan stopp.
„Þegar gluggarnir í húsið komu þá þurfti að
fá öfluga beltagröfu til að moka frá húsinu svo
hægt væri að setja gluggana í. „Þetta var alveg
ótrúlegt,“ segir Bragi og bætir við: „Þetta er með
verri vetrum sem ég hef upplifað í smíðavinn-
unni.“
Nágranni leikskólans er tjaldsvæðið í Sand-
gerði og þar eru rekin gistihús allt árið. Loka
þurfti gistihúsunum því við þau fylltist allt af
snjó og hafðist ekki undan að moka gestina út.
Nánar er fjallað um óveður og ófærð á síðu 7 í
Víkurfréttum í dag og greint frá fundi almanna-
varna um ástandið sem skapaðist.
Leikskólinn fylltist af snjó í óveðri Kýrin kom fýluferð því
nautið var að leika
– sjá frétt frá sagnastund á Garðskaga
– sjá íþróttaumfjöllun á síðum 14–15
n Smiðir í Suðurnesjabæ hafa fengið að kenna á snjóþungum vetri
n Framkvæmdir stöðvuðust í tíu daga á meðan snjó var mokað úr nýbyggingunni
n Með verri vetrum sem Bragi Guðmundsson hefur upplifað í smíðavinnunni
MiniRent er ungt og mjög
upprennandi fyrirtæki
– sjá viðtal á síðu 4
Hugmyndin
fæddist í
matarklúbbi
Nýtur sín í
sveitasælunni
Magnús Jón Kjartansson í viðtali
Skoruðu
níu mörk í
Skotlandi
Stórvirk vinnuvél grefur upp leikskólabygginguna eftir að veðrinu slotaði. Að neðan má sjá smágröfu að störfum inni í leikskólabyggingunni. Myndir/Svanur Kristjánsson
16.–19. mars
Miðvikudagur 15. Mars 2023 // 11. tbl. // 44. árg.