Víkurfréttir - 08.03.2023, Blaðsíða 13
ORLOFSHÚS
Stjórnendafélags Suðurnesja
Sumarúthlutun 2023
Orlofshús félagsins eru á eftirfarandi stöðum:
n Furulundur á Akureyri
n Álfasteinssund í Hraunborgum í Grímsnesi
n Öldubyggð við Svínavatn í Grímsnesi
Sumarútleiga er frá 2. júní til 15. september.
Sótt er um orlofshús á orlofsvefnum: www.orlof.is/vssi
Innskráning á vefinn er með íslykli eða rafrænum skilríkjum.
Umsóknarfrestur er frá 15. mars til 28. mars 2023.
Úthlutað verður samkvæmt punktakerfi.
Umsækjendum verður tilkynnt um úthlutun með tölvupósti.
Hvers vegna Kiwanis?
Eftir rúmlega eitt ár, nánar tiltekið 14. janúar 2024, fagnar Kiwanis
60 ára starfi hér á Íslandi og Alþjóðahreyfing okkar samtaka, Kiw-
anis International verður 110 ára ári seinna eða þann 1. nóvember
árið 2025. Stofnfundur fyrsta Kiwanisklúbbsins á Íslandi, sem er
Kiwanisklúbburinn Hekla var haldinn 14. janúar 1964, frá þeim degi
hófst formlegt Kiwanis starf á Íslandi.
Kiwanisklúbbum fjölgaði
hratt á Íslandi og þegar
best lét, en það var árið
1983 voru starfandi 39
Kiwanisklúbbar á Ís-
landi og í Færeyjum og
félagatalan var þá 1239.
Frá fyrsta degi hefur
krafturinn í Kiwanis-
starfinu verið mikill og
má eiginlega segja að strax frá upp-
hafi hreyfingarinnar á Íslandi hafi
verið farið í að skipuleggja þjón-
ustuverkefni. Kiwanis er og verður
öflug þjónustuhreyfing, við förum
sjálfir í verkin og höfum til dæmis
hjálpað öldruðum, aðstoðað fatlað
fólk með ýmsum hætti, unnið við
skógrækt og svo mætti lengi telja.
Árið 1972 var ákveðið að fara í
sameiginlegt verkefni allra klúbba
á landinu og hafa sérstakan K-dag.
Fyrsti K-dagurinn var árið 1974,
landssöfnun þar sem safnað er
fé með sölu á K lykli og andvirði
sölunnar notað til að styðja geð-
sjúka. Ákveðið að gera það undir
kjörorðinu „Gleymum ekki geð-
sjúkum‘‘, það kjörorð hefur haldist
hefur fram á þennan dag. Kiwanis-
hreyfingin ákvað að verða rödd
þessa fólks. Ég fullyrði
að Kiwanishreyf ingin
hefur haft veruleg áhrif
til þess að bæta stöðu
geðfatlaðra og opnað um-
ræðuna um þetta mikil-
væga málefni.
K i w a n i s k l ú b b u r i n n
Kaldbakur hóf að gefa
ungum börnum reið-
hjólahjálma árið 1991, það varð
síðan að landsverkefni árið 2004
og nú hafa öll 6 ára börn frá árinu
2004 fengið reiðhjólahjálma frá
Kiwanis eða í 18 ár.
Að vinna þjónustuverkefni og
hjálpa öðrum er mikilvægt fyrir
samfélagið. Kiwanisfélagar sem
taka þátt í þjónusta samfélagið
öðlast betri sýn og skilning á
þörfum þess. Það er nauðsynlegt
fyrir alla og gerir okkur að betri
samfélagsþegnum. Konur og karlar
eiga samleið í Kiwanis og ekki síst
í þjónustustarfi hreyfingarinnar,
verkefnin eru unnin af meiri
skilning og alúð þegar bæði kynin
koma að verki.
„Þjónum börnum heims“ er kjörorð
hreyfingarinnar, þessi orð skýra
fullkomlega hver er megintil-
gangur okkar starfs og þarf ekki
frekari skýringa við.
Á Suðurnesjum eru starfandi þrír
Kiwanisklúbbar, Keilir og Varða í
Reykjanesbæ og Hof í Garði.Varða
er kvenna Kiwanisklúbbur, þær
funda tvisvar í mánuði og er næsti
fundur þeirra 4. apríl kl.19:00 í
Kiwanishúsinu Iðavöllum 3c og
eru allar konur velkomnar.
Keilir er karla Kiwanisklúbbur
sem fundar líka tvisvar í mánuði,
þeir eru næst með fund þann 16.
mars kl.19:30 í Kiwanishúsinu Iða-
völlum 3c.
Ég vil vekja sérstaka athygli á að
Hof í Garði verður með kynningar-
fund á starfsemi sinni þann 15.
mars kl.19:30 Heiðaúni 4 í Garði
og eru allir velkomnir.
Í Kiwanis myndast vinskapur á
milli félaga sem endist alla ævina.
Það er nefninlega þannig að Í
Kiwanis er félagslegi þátturinn í
starfinu mjög mikilvægur, það má
segja að kiwanis sé félagsskapur
þar sem enginn verður útundan.
Þess vegna átt þú að ganga í Kiw-
anis og vil ég bjóða öllum þeim
sem vilja ganga til liðs við okkur
velkomna í Kiwanis.
Eiður Ævarsson
Formaður kynningar- og
markaðsnefndar Kiwanisum-
dæmisins Ísland - Færeyjar
Hekla Sól er 16 ára gömul og á raunvísindabraut í FS. Hekla er jákvæð og
félagslind og er alltaf í stuði. Áhugamál Heklu eru að mála og teikna og er
hennar draumur að verða rík listakona. Hekla er FS-ingur vikunnar.
Hvað ert þú gömul? Ég er 16 ár.a
Hvers saknar þú mest við grunnskóla?
Listkennarans míns.
Hvers vegna ákvaðst þú að fara í Fs? Ég
komst ekki í fyrsta skólann sem ég valdi.
Hver er helsti kosturinn við Fs?
Félagslífið.
Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum?
Frábært.
Hvaða Fs-ingur er líklegur til að verða
frægur og hvers vegna? Ég veit það ekki.
Hver er fyndnastur í skólanum? Ég.
Hvað hræðist þú mest? Ég er lofthrædd.
Hvað er heitt og hvað er kalt þessa
stundina? Ég fylgist ekki mikið með því.
Hvert er uppáhalds lagið þitt?
The morning með The Weeknd.
Hver er þinn helsti kostur?
Ég er félagslynd.
Hvaða forrit eru mest notuð í símanum
þínum? Spotify og solitaire.
Hver er stefnan fyrir framtíðina?
Ég bara hef enga hugmynd.
Hver er þinn stærsti draumur?
Að verða rík listakona.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það og af hverju?
Jákvæð, því ég er alltaf í stuði.
Hólmfríður Eyja er 14 ára körfu-
boltamær sem er fædd og uppalin
Njarðvíkingur. Hólmfríður er dugleg
og jákvæð og stefnir á að fara í
snyrtifræði eða ná langt í körfunni
í framtíðinni. Hólmfríður er ung-
menni vikunnar.
Hvert er skemmtilegasta fagið? Örugglega
heimilisfræði
Hver í skólanum þínum er líklegur til að
verða frægur og hvers vegna? Örugg-
lega Patrik Joe útaf því hann myndi verða
frægur fyrir körfu og komast örugglega i
NBA.
skemmtilegasta saga úr skólanum: Þegar
við fórum á Úlfljótsvatn í 7. bekk, það fylgja
margar góðar minningar frá því.
Hver er fyndnastur í skólanum? Sara Björk
vinkona mín er alltaf eitthvað að flippa í
okkur.
Hvert er uppáhalds lagið þitt? Ég er eigin-
lega ekki með neitt uppáhalds lag. Ég
hlusta alveg á allskonar lög .
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn? Uppá-
haldsmaturinn minn er sushi og humar.
Hverjir eru uppáhalds þættir þín? Uppá-
halds þættirnir mínir a Netflix eru Ginny
and Georgia og OBX.
Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér á
eyðieyju og hvers vegna?
Mat, vatnsflösku og símann minn.
Hver er þinn helsti kostur? Ég myndi
örugglega segja fyndin og góð vinkona.
Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að
vera með restina af ævinni, hvað myndir
þú velja? Ég myndi velja að geta telli-
portast, svo ég gæti farið hvert sem er
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari
fólks? Þegar fólk er kurteis og jákvætt.
Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla?
Eg myndi vilja læra snyrtifræði eða komast
langt í körfunni og fara í skóla í útlöndum.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það? Dugleg.
Nafn: Hólmfríður Eyja Jónsdóttir
Aldur: 14 að verða 15 í október
Skóli: Njarðvíkurskóli
Bekkur: 9. bekkur
Áhugamál: Körfubolti og bakstur.
Nafn: Hekla Sól Harðardóttir
Aldur: 16 ára
Námsbraut: Raunvísindabraut
Áhugamál: Mála/teikna
Komast langt í körfunni
Lofthrædd,
jákvæð og
alltaf í stuði
Ungmenni vikunnar:
FS-ingur vikunnar:
Sólar ehf. hefur
ráðið Einar
Hannesson sem
nýjan fram-
kvæmdastjóra
Einar hefur
viðamikla reynslu af rekstri og
stjórnun en fram á síðasta haust
starfaði hann í tæp sex ár sem
framkvæmdastjóri Fastus. Þar áður
starfaði Einar lengstum sem úti-
bússtjóri Landsbankans í Reykja-
nesbæ og forstöðumaður hjá
Icelandair Ground Services. Einar
er með BSc gráðu í iðnaðartækni-
fræði og MBA gráðu frá Háskóla
Íslands.
Sólar eru eitt af stærstu ræst-
ingarfyrirtækjum landsins með um
450 starfsmenn.
Sigrún og Samúel til Kadeco
Kadeco hefur ráðið þau Sigrúnu
Ingu Ævarsdóttur og Samúel
Torfa Pétursson og hafa þau
þegar hafið störf.
Sigrún Inga stýrir viðskipta- og
markaðsmálum hjá Kadeco. Hún
kemur frá Isavia þar sem hún
starfaði sem deildarstjóri sam-
göngu- og fasteignatekna á Kefla-
víkurflugvelli og þar áður sem lög-
fræðingur viðskiptasviðs og sér-
fræðingur í viðskiptaþróun. Sigrún
er með BA og ML gráðu í lögfræði
frá Háskólanum í Reykjavík og
situr í núverandi stjórnum Aw-
arego og Samtökum atvinnurek-
enda á Reykjanesi.
Samúel Torfi hefur u.þ.b. 20 ára
reynslu af fjölbreyttum verkefnum
á sviði umhverfis- og skipulags-
mála. Hann er nýr þróunarstjóri
Kadeco en starfaði áður sem ráð-
gjafi á umhverfis- og skipulagssviði
hjá VSÓ ráðgjöf. Samúel hefur
sömuleiðis starfað við fasteigna-
þróun hjá Klasa og hjá Þyrpingu
og við verkfræðiráðgjöf í skipu-
lagi og samgöngum hjá Ramböll í
Danmörku og hjá Línuhönnun, nú
Eflu. Samúel er með M.Sc. í um-
hverfis- og byggingaverkfræði frá
Tækniháskólanum í Danmörku.
Einar til Sólar
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 13