Handbók fyrir hvern mann - 01.06.1939, Blaðsíða 6
6
8. Þeir, sem hafa atvinnu af rekstri bifreiða til mann- eða
vöruflutninga.
9. Þeir, sem reka kvikmyndahús, leikhús, hringleikhús
(cirkus) og fjölleikhús (varieté).
10. Þeir, sem taka að sér að flytja mál fyrir dómstólum eða
gegna öðrum málflutningsmannsstörfum.
11. Húsameistarar, verkfræðingar og aðrir, er taka að sér
að reisa hús og gera önnur mannvirki, eða gegna öðrum
húsameistara- eða verkfræðingastörfum.
12. Þeir, sem hafa atvinnu af því að lána öðrum fé.
13. Þeir, sem hafa atvinnu af að sjá um jarðarfarir.
Læknum, tannlæknum og prestum í kaupstöðum er skylt
að halda sjóðbók.
3. gr. — Undanskyldir bókhaldsskyldu eru þó þeir, er hér
greinir:
1. Mat- og veitingasali, sem að staðaldri rekur fyrirtæki
með aðstoð konu sinnar, barna innan 16 ára aldurs og
tveggja aðstoðarmanna eða færri, og bryti, sem ekki rek-
ur sjálfstæða atvinnu.
2. Handiðnaðarmaður, sem að staðaldri aðeins selur handa-
vinnu sjálfs sin, konu sinnar, bama innan 16 ára aldurs
og tveggja aðstoðarmanna eða færri.
3. Utgerðarmenn, einn eða fleiri, er reka fiskiveiðar eða
mann- eða vöruflutninga á 2 bátum eða færri, undir 12
smál. brúttó hvor, eða 1 bát allt að 20 smálesta.
4. Sá, sem rekur fiskverkun með konu sinni, bömum innan
16 ára aldurs og fjómm mönnum öðmm eða færri.
5. Þeir, sem eigi reka fleiri en tvær bifreiðar til mann- eða
vömflutninga.
6. Þeir byggingarmeistarar, málflutningsmenn og verkfræð-
ingar, sem ekki reka sjálfstæða atvinnu.
4. gr. — Allir þeir, sem bókhaldsskyldir em samkv. 2. gr.,
1.—13. tölulið, sbr. 3. gr., skulu hafa tvöfalt bókhald, en þessu
ákvæði er fullnægt með færslu þeirra bóka og yfirlitsreikn-
inga, sem um getur í 5.—8. gr.