Handbók fyrir hvern mann - 01.06.1939, Side 10
10
Eignir ber að tilfæra með þeirri fjárhæð, er raunverulega
svarar til verðmætis þeirra. Þó ber yfirleitt að tilfæra fast-
eignir, skip, áhöld og aðrar eignir, sem ætlaðar eru til stöð-
ugrar notkunar við reksturinn, með kostnaðarverði, að frá-
dregnum hæfilegum árlegum afskriftum fyrir fyrningu og
sliti. Sé frá þessu vikið, skulu reikningamir bera það greini-
lega með sér.
Kröfur, sem fyrndar eru að lögum, má eigi tilfæra sem
eignir á efnahagsreikningi.
12. gr. —• Efnahagsreikningi fylgi greingargerð um allar
veðsetningar á eignum hlutaðeiganda, að svo miklu leyti, sem
greindur reikningur ber slíkt ekki með sér, ennfremur allar
ábyrgðir, er hann hefir tekizt á hendur fyrir aðra.
13. gr. — Eigi má rita í bækur þær, sem fyrirskipaðar eru
með lögum þessum — aðrar en frumbækur — með blýanti.
Ennfremur eigi skafa út eða gera á annan hátt með ásetningi
ólæsilegt það, sem eitt sinn hefir verið í þær skráð, eða rita
ofan í skriftina, svo að ólæsilegt verði það, er áður stóð, enda
þótt fyrst hafi misritazt af vangá. Þurfi að gera breytingu á
því, sem eitt sinn er ritað, skal annaðhvort leiðrétta það með
annari innfærslu, er komi til jafnaðar annarsvegar við það,
er ofritað var hinsvegar, eða bæti því við, er vanritazt hafði,
eða þá þannig, að strika út það, sem rangt varð, án þess að
ólæsilegt verði það, er út var strikað, en rita leiðréttinguna
milli lína eða á spássíu, eftir því sem bezt hentar.
Eigi má rifa eða á annan hátt losa blöð úr þeim innbundn-
um bókum, sem fyrirskipaðar eru með lögum þessum.
14. gr. — Skylt er hverjum bókhaldsskyldum að geyma í
skipulegri röð öll bréf og símskeyti, er honum berast við-
komandi atvinnu hans, og ennfremur að halda eftir sam-
riti af öllum þeim bréfum og simskeytum, er hann ritar og
sendir öðrum viðkomandi atvinnunni, og geyma eftir sömu
reglum.