Breiðholtsblaðið - 01.01.2023, Blaðsíða 4

Breiðholtsblaðið - 01.01.2023, Blaðsíða 4
Sigurður Már Helgason tók við starfi prests við Seljakirkju á liðnu eftir að Bryndís Malla Elídóttir varð prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra. Sigurður Már er Reykvíkingur fæddur 1990. Hann lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 2010, stundaði nám í viðskiptafræði við Háskóla Íslands en leiðin lá svo í guðfræðideildina. Sigurður Már útskrifaðist með mag. theol. próf frá Háskóla Íslands vorið 2020. Hann var vígður til prestsþjónustu hjá Kristilegu skólahreyfingunni í mars 2021. Eiginkona Sigurðar Más er Heiðdís Haukadal Reynisdóttir, verkefnastjóri í rafrænum kennslumálum hjá Háskóla Íslands. Þau eiga eina dóttur. Hvaðan er Sigurður uppruninn? „Ég er ekki Breiðhyltingur en kem engu að síður úr Reykjavík. Ég er í minnihluta að því leyti sem prestur. Margir sem koma í guðfræðideildina eru utan af land eða eiga ættir á ýmsum stöðum vítt og breytt um landsbyggðina. Ég var einn af þeim fáu sem var eingöngu úr Reykjavík. Ég hef heldur aldrei starfað út á landi og endaði í Breiðholtinu.“ Sigurður Már er ættaður úr Leitunum í Austurbæ Reykjavíkur. Fyrst í Miðleitinu og síðan í Hvassaleitinu. Þegar hann stofnaði til fjölskyldu og fór að búa festu hann og kona hans kaup á íbúð á Grensásveginum sem er á sama reitnum og Leitin í borgarbyggðinni. „Við erum fjögur systkinin og búum öll hringinn í kringum foreldra okkar sem búa enn í Hvassaleitinu. Ýmsir kostir fylgja því að stórfjölskyldan búi að sama svæði. Stutt að skreppa á milli og stutt að fá pössun hjá skyldfólkinu.“ Merkilegt val miðað við fjölskyldusögu Sigurður Már valdið guðfræðina þegar koma að háskólanámi. Hvað stýrði honum inn á þá braut. Hann segir valið merkilegt miðað við fjölskyldu bakgrunn sinn. „Fólk býst ef til vill einhverri sögu um köllun sem svar við þessari spurningu. En í mínu tilfelli er engin slík saga til. Ég var í Verslunarskólanum. Verslunar- og viðskiptanám hefur verið hálfgert fjölskyldusport hjá mínu fólki. Faðir minn er viðskiptafræðingur og systkini mín lærðu hagfræði. Öll þrjú systkini mín starfa banka Ég er því svarti sauðurinn í þessari hag- og viðskiptafræðifjölskyldu. Valdi mér aðra leið.“ Fann mig ekki í fjölskyldu sportinu En hvernig kom guðfræðin til. „Ég byrjaði í viðskiptafræðinni en fann mig ekki í fjölskyldu sportinu ef ég orða það þannig. Ég var meira að leita fyrir mér um hvað ég ætti að gera. Þótt ég komi ekki úr kirkjurækinni fjölskyldu þá hef ég alltaf átt mína trú. Ég er alinn upp við að bera virðingu fyri trúnni. Ég fór að rækta trúarvitundina meira eftir að ég komst á unglingsár. Þessi ár þegar maður er að mynda sitt sjálf. Ákveða fyrir hvað maður vill standa. Þegar ég sá fram á að ég myndi ekki endast í viðskiptafræðinni fór ég að horfa meira í kringum mig og þá var það guðfræðin sem fór að heilla mig. Guðfræðinámið er mjög fjölbreytt. Það byggist meðal annars á tungumálum og heimspeki, siðfræði og sálgæslu. Þetta nám er með marga anga. Það eina sem vantar er stærðfræðin. Henni er alveg sleppt í guðfræðináminu. Ég byrjaði á að taka eitt námskeið. Athuga hvernig mér líkaði þetta og það varð úr, ég hélt áfram. Gallinn við Kaupmanna­ höfn er danskan Sigurður Már og Heiðdís lögðu lykkju á leið sína á námsárunum og fluttu til Kaupmannahafnar. Sigurður stundaði skiptinám þann tíma. Þau hjónin völdu sér áfangastað sem þau gátu bæði verið í námi. Hún í markaðsfræði en hann í guðfræði. Hann segir að megin gallinn á Kaupmannahöfn sé danskan sem nær ómögulegt sé að skilja. „Ég var svo heppinn að geta stundan námið að miklu leyti á ensku. Ég held að ég hafi lært eina setningu í dönsku. Að biðja um poka undir innkaupin „en pose“ í verslunum. Einu sinni var ég staddur á krá að panta mér bjór sem hét númer 16. Ég ætlaði að slá um mig og panta hann á dönsku. Konan á barnum skildi mig ekki og vildi greinilega ekki koma neitt til móts við mig. Svo benti ég á bjórinn sem ég vildi. „Ahh, sæksten“ sagði hún þá og ég hafði borið dönsku töluna fram með of hörðum hreim. Æ-hljóðið hafði ekki heyrst nægilega vel. Engin leið er að ná þessum framburði. Hann er svakalegur. Þeir eru líka að skipta 4 Breiðholtsblaðið JANÚAR 2023 V i ð t a l i ð Seljakirkja er ákveðinn þáttur í félagslífi í Seljahverfi Sigurður Már Helgason prestur við Seljakirkju. - segir Sigurður Már Helgason prestur við Seljakirkju

x

Breiðholtsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðholtsblaðið
https://timarit.is/publication/1113

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.