Vesturbæjarblaðið - jan. 2023, Blaðsíða 9

Vesturbæjarblaðið - jan. 2023, Blaðsíða 9
9VesturbæjarblaðiðJANÚAR 2023 Líf og fjör á Vesturbæjarblóti Mikið líf og fjör í Vesturbænum þegar þorrablót Vesturbæjar fór fram með glæsibrag í Frostaskjólinu á sl. laugardagskvöld. Guðmundur Benediktsson, betur þ ekktur s em Gummi B en st ýrði gleðskapnum sem fór vel fram þrátt fyrir að um 900 manns hafi komið saman til að taka forskot á þorrann tæpri viku fyrir bóndadag. Sóli Hólm hélt fjörinu gangandi þar til hljómsveitin Bandmenn tók við ásamt Sölku Sól og dönsuðu Vesturbæingar fram eftir nóttu. Er kominn tími til að gera eitthvað? Ný námsleið og námskeið hjá Hringsjá Hringsjá býður úrval af öðru- vísi og spennandi námskeiðum sem hafa hjálpað mörgum að komast aftur eða í fyrsta sinn af stað til meiri virkni, meiri lífsgæða og fleiri valkosta í námi eða starfi. Upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á staðnum að Hátúni 10d. Heimasíða: www.hringsja.is Netfang: hringsja@hringsja.is Facebook: facebook.com/hringsja Daglegt líf með ADHD Aukin þekking og skilningur á ADHD. Betri leiðir til að takast á við algenga erfiðleika sem oft fylgja ADHD eins og til dæmis skipulagsvanda, frestun, tímablindu, hvatvísi og gleymsku. Geðheilsa og lífsgæði Kenndar leiðir til að bæta líðan og lífsgæði með árangursríkum hætti. Ná betri tökum á reiði og öðrum tilfinningum Fræðsla um reiði, líkamleg einkenni hennar, hugsanir og aðrar erfiðar tilfinningar. Kenndar eru leiðir til að ná tökum á erfiðum hugsunum, tilfinningum og viðbrögðum. Matsbraut – ný námsleið Tveggja mánaða námsleið fyrir þá sem þurfa að auka daglega virkni og sem stefna á nám. Dagskráin miðar að því að styrkja sjálfsmynd þátttakenda og stuðla að jákvæðu viðhorfi til náms eða starfs. Nálgun er einstaklingsmiðuð og efnistök fjölbreytt. Ég heiti Svala Breiðfjörð Arnardóttir Ég er löggiltur bókari hjá Hringsjá náms- og starfsendurhæfingu. Ég var nemandi í Hringsjá náms- og starfsendurhæfingu. „Hringsjá breytti lífinu til hins betra. Í dag er ég í draumastarfi og elska að vakna á morgnana.“ STUÐ STUÐ 0 STUÐ 1 » Þarf stærri heimtaug? » Hvaða lausn hentar best? » Er kerfið búið álagasstýringu? » Sjálfvirkt greiðslu- og innheimtukerfi? Er hleðsla rafbíla hausverkur í húsfélaginu? Við aðstoðum við að leysa málið með hagsmuni húsfélagsins að leiðarljósi Hlutlaus úttekt og ráðgjöf fyrir húsfélög um fyrirkomulag rafbílahleðslu og framkvæmdaáætlun. Útvegum og berum saman tilboð og aðstoðum við styrkjaumsóknir. thjonusta@eignaumsjon.is | eignaumsjon.is Mikill kvennablómi einkenndi þorrablótið. Almennings­ sam göngur sem virkur ferðamáti Gera má ráð fyrir að notkun á almenningssamgöngum sem virkum ferðamáta muni aukast með tilkomu Borgarlínu. Aukin notkun almenningssamganga hefur jákvæð áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu og fækkar ótímabærum dauðsföllum., segir í frétt um lýðheilsumat frá fyrstu lotu Borgarlínu. Þá megi gera ráð fyrir að Borgarlínan bæti aðgengi að ýmsum áfangastöðum og þjónustu og auki félagslega samheldni og jöfnuð. Góðar og aðgengilegar almenningssamgöngur geta komið í veg fyrir einangrun og útilokun ákveðinna hópa. Bent er á að Reykjavíkurborg sé leiðandi í lýðheilsumálum og meðal aðgerða í lýðheilsustefnu borgarinnar sé innleiðing og þróun lýðheilsumats. Í samstarfi við Betri samgöngur var ákveðið að framkvæma fyrsta framsýna lýðheilsumatið á Íslandi, á fyrstu lotu Borgarlínunnar í Reykjavík. Verkefnið var styrkt af Lýðheilsusjóði. Markmiðið með lýðheilsumatinu var að kanna hvernig innviðir Borgarlínu og nýtt leiðanet almenningssamgangna getu hámarkað jákvæð áhrif á lýðheilsu og lágmarkað neikvæð áhrif. Var það gert með því að kanna hvernig Borgarlínan mun nýtast hinum almenna fullorðna íbúa í Reykjavík og hvernig hún nýtist íbúum sem eru annað hvort háðir núverandi samgöngum eða geta ekki nýtt þær, meðal annars börn og ungmenni, fatlað fólk, eldri borgarar og íbúar af erlendum uppruna. Þá var skoðað hvernig Borgarlínan mun nýtast þeim sem starfa við og sækja þjónustu Landspítala við Hringbraut, Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík. Til þess að fólk nýti sér Borgarlínuna þarf hún að vera aðgengileg og í lok lýðheilsumatsins eru helstu niðurstöður þess settar fram í formi ráðlegginga til þeirra sem koma að hönnun, framkvæmd og rekstri Borgarlínunnar. Snúa þær meðal annars að aðstæðum á borgarlandi, á Borgarlínustöðvum og í vögnunum sjálfum. Stjórn Betri samgangna ohf., ásamt Bjarna Benediktssyni, f jármála- og efnahagsráðherra og Davíð Þorlákssyni, framkvæmdastjóra Betri samgangna við undirritun samningsins. Gunni Ben og Sóli Hólm héldu uppi fjörinu á þorrablótinu.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.