Vesturbæjarblaðið - jan. 2023, Blaðsíða 14
14 Vesturbæjarblaðið JANÚAR 2023
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Góð mæting var og mikil
ánægja skein út úr augum gesta á
Þrettándahátíð Vesturbæjar sem
haldin var 6. janúar sl. Dagskráin
var nokkuð hefðbundin þ.e.
sungin nokkur lög undir stjórn
Sveins Bjarka við Melaskóla,
skrúð ganga þaðan að Ægisíðunni
í fylgd lögreglu og svo brenna og
flugeldasýning í framhaldinu.
Vöfflubíllinn var á staðnum og
seldi mikið af vöfflum, en allur
ágóði af sölunni rann í „Örninn“
sem er minningar og styrktarsjóður.
Skipuleggjendur, sem voru
forsvarsmenn í foreldrafélögum
Melaskóla, Vesturbæjarskóla,
Hagaskóla og Grandaskóla ásamt
Vesturmiðstöð vilja þakka öllum
kærlega fyrir komuna og um leið
þakka þeim aðilum sem styrktu þessa
hátíð með einum eða örðum hætti.
Mikil ánægja á þrettánda
hátíð Vesturbæjar
Dansskóli Birnu Björns hélt upp á 25 ára afmæli skólans í
ár. Við gerðum mjög margt skemmtilegt á árinu. Héldum árlegu
danskeppnina okkar, Dansfárið. Settum upp Galdrakarlinn í Oz
í Borgarleikhúsinu. Dansdeild og söngleikjadeild leiða þar
sýningarnar okkar með dansi söng og leiklist. Við fórum einnig á
heimsmeistaramót í dansi á Spáni með nokkur frábær atriði og
náðum við frábærum árangri.
Dansskólinn er með æðislegar dans æfingarbúðir á sumrin og mæta
nemendur skólans þangað í frábæra danstíma hjá ýmsum kennurum
í dansi, leiklist og söng í fimm daga. Fyrir utan æfingarnar þá er farið í
sund daglega – tekin upp dansmyndbönd – skemmtilegar kvöldvökur og
útileikir og margt fleira. Í fyrra komust færri að en vildu. Ár hvert fórum
við líka í okkar frábæru dansferð til London. Þar dönsum við hjá þekktum
danshöfundum í mörgum dansskólum, förum á söngleiki og njótum
þess að vera saman. Félagslífið í dansskólanum okkar er algjörlega til
fyrirmyndar og bjóðum við upp á marga viðburði á ári hverju til að
styrkja félagstengslin.
Kennsla hófst á nýju ári 9. janúar og er enn hægt að bæta við nýjum
nemendum. Við skólann starfa 25 kennarar en allir okkar kennarar eru
með menntun og mikinn bakgrunn í dansi, söng og leiklist.
Margt að gerast
í Dansskóla
Birnu Björns
Logar glatt í bálkesti á Ægisíðu.
Jólin skotin burt
á þrettándakvöldi.
Rakaskemmdir og mygla hafa
nú fundist í alls 28 leikskólum,
g r u n n s kó l u m o g f r í s tu n d a
h eimilum á þ e ssu ári . Eitt
nýjasta dæmið er Grandaborg. Í
minnis blaði sviðsstjóra skóla og
frístundasviðs um Grandaborg
segir að skolprör hafi farið í sundur
og þaðan borist skolpmengað loft
upp í húsnæði leikskólans.
Í minnisblaði Helga Grímssonar,
sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs
Reykjavíkurborgar kemur fram
að aðalorsök slæmra loftgæða á
leikskólanum hafi verið skriðkjallari
u n d i r hú s i nu o g h ö n nu n á
loftræstikerfi. Enn fremur hafi
komið í ljós að skolprör hafði farið
í sundur vegna þess að húsið hafi
sigið á liðnum árum. Þar af leiðandi
hafi skólp seytlað ofan í jarðveg
í kjallaranum. Loftræstikerfið
blæs svo lofti úr kjallaranum upp í
húsnæði leikskólans. Í kjölfar þessa
var ákveðið að loka leikskólanum
og í október var starfsemin flutt
á þrjá staði. Foreldrar óskuðu
eftir að starfsemi leikskólans yrði
færð á einn stað og í nærumhverfi
leikskólans. Ekki tókst að finna
hentugt húsnæði í Vesturbænum þar
sem hægt var að koma allri starfsemi
Grandaborgar fyrir.
Grandaborg er einn þeirra
Leikskólinn Grandaborg við Boðagranda.
Rakaskemmdir fundist í 28 leik- og grunnskólum