Feykir - 05.01.2022, Blaðsíða 3
Þeir eru fáir jafn duglegir og Valli á Blönduósi, eða Valdimar
Guðmarsson, áður bóndi í Bakkakoti, að tala bæinn sinn upp með
jákvæðum fréttum og ýmsum frásögnum úr bæjarlífinu. Oft hefur
fylgt með að Blönduós sofi aldrei enda margt í gangi sem vert er að
minnast á. Fyrir þessa eljusemi sína fékk Valli jólagjöf sem hitti
sannarlega í mark.
Blönduós sefur aldrei
Afinn fékk bol með
kjörorði ársins
Blönduós sefur aldrei, eru kjörorð Valla á Blönduósi og nú getur hann klæðst þeim
honum til mikillar gleði. MYND AÐSEND
Á Facebook-síðu sinni birtir
Valli mynd af sér í bol sem hann
fékk í jólagjöf frá afastelpunni
sinni, Stefönu Björgu Guð-
mannsdóttur, 13 ára nemanda í
Blönduskóla, sem fékk þá bráð-
snjöllu hugmynd að útbúa bol
með kjörorðum afans: Blöndu-
ós sefur aldrei!
„Þrátt fyrir að Stefana sé nú
mest í marki þá hitti hún beint í
mark með jólagjöfina fyrir afa
sinn,“ skrifar Valli á Facebook.
Í samtali við Feyki segist hann
hafa notað þetta kjörorð,
Blönduós sefur aldrei, á því ári
sem er að líða og hefur tengt það
við þær miklu framkvæmdir
sem hafa átt sér stað á staðnum,
bæði litlar og stórar. Hann hafi
því orðið mjög glaður þegar
hann fékk í jólagjöf frá einu afa-
barninu bol með þessari fínu
áletrun; Blönduós sefur aldrei. /PF
Jólahúnar í Húnavatnssýslum
Láta gott af sér leiða
Jólahúnar héldu fyrir jólin
tónleika á Blönduósi og
Hvammstanga sem tókust vel
en með kjörorð Skúla heitins á
Tannstaðabakka, Samstaða og
kærleikur, að leiðarljósi, rann
allur ágóði af tónleikunum til
góðgerðarmála.
Í Fésbókarfærslu Elvars
Loga Friðrikssonar, sem var í
hópi þeirra sem tóku við
Jólahúna-keflinu af Skúla,
kemur fram að þetta árið
söfnuðu Jólahúnar einni
milljón króna. Stærsti hlutinn
rann til Margrétar Eikar
Guðjónsdóttur sem fór í
krabbameinsaðgerð og sýndu
sveitungar hennar stuðning í
verki. Einnig nutu Orgelsjóður
Blönduóskirkju og Minningar-
sjóður Erlu Bjarkar Helgadóttur
góðs af því sem safnaðist.
„Ég er rosalega stoltur og
ánægður með alla sem gerðu
þessa tónleika báða frábæra,“
segir Elvar Logi. /ÓAB
Jólahúnarnir Elvar Logi og Kristinn Rúnar Víglundsson afhenda Margréti styrkinn.
MYND AF FACEBOOK
Álagning fasteignagjalda
í Sveitarfélaginu Skagafirði árið 2022
Álagning – breytingar – innheimta
Þess er óskað að ábendingar um breytingar og leiðréttingar á álagningu
eða innheimtu berist til sveitarfélagsins eftir einhverri eftirtalinna leiða;
í gegnum Íbúagáttina, símleiðis í síma 455 6000 eða með tölvupósti
á netfangið innheimta@skagafjordur.is
Álagningarseðlar
Álagningarseðlar fasteignagjalda verða ekki sendir bréfleiðis nema þess sé óskað.
Vinsamlegast sækið um það fyrir 14. janúar 2022.
Allir gjaldendur, lögaðilar og einstaklingar, geta nálgast rafræna útgáfu
álagningarseðilsins í Íbúagáttinni og á vefsíðu island.is undir „Mínar síður“
Gjalddagar
Gjalddagar fasteignagjaldanna verða níu frá 1. febrúar til og með 1. október 2022.
Hægt er að fá að greiða öll gjöldin á einum gjalddaga 1. maí 2022 eða fyrr séu
þau jöfn eða umfram 25.000 kr. Sækja verður um það fyrir 14. janúar 2022.
Greiðslumátar. Beingreiðslur
Innheimtur greiddar með beingreiðslum af bankareikningum greiðenda.
Vinsamlegast hafið samband við þjónustufulltrúa í viðkomandi
banka til að virkja þennan kost.. Boðgreiðslur
Tilkynna þarf til sveitarfélagsins ef óskað er eftir að greiða fasteignagjöld með
kreditkorti. Þetta á einungis við þá sem eru í fyrsta sinn að óska eftir
þessum greiðslumáta fasteignagjalda.
Óska þarf eftir breytingu á greiðslumáta fyrir 14. janúar 2022.. Greiðsluseðlar í tölvupósti.
Greiðsluseðill sendur í tölvupósti og birtist einnig í heimabönkum.
Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á netfangið innheimta@skagafjordur.is
sé þess óskað fyrir 14. janúar 2022.. Greiðsluseðlar
Innheimtur greiddar með heimsendum greiðsluseðlum.
Hvatt er til þess að aðrir greiðslukostir séu notaðir.
Elli- og örorkulífeyrisþegar
Lækkun fasteignaskatts á íbúðum tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega eru reiknuð
við álagningu til bráðabirgða og er stuðst við tekjur samkvæmt skattframtölum 2021
vegna tekna ársins 2020. Endanlegur útreikningur fer fram þegar álagningu 2022,
vegna tekna ársins 2021 er lokið. Afslátturinn er hlutfallslegur að teknu
tilliti til allra skattskyldra tekna skv. skattframtali 2022.
Ekki er þörf á að sækja um þennan afslátt.
Frekari upplýsingar
Frekari upplýsingar eru veittar á heimasíðu sveitarfélagsins
www.skagafjordur.is. Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið
innheimta@skagafjordur.is eða hringja í síma 455 6000.
Sauðárkróki 5. janúar 2022,
sveitastjóri
Sú hugmynd kom upp í haust að
halda, að sænskri fyrirmynd,
Lúsíuhátíð á Hvammstanga en
áætlunin fór á annan veg en lagt
var upp með í upphafi, vegna
aðstæðna sem allir þekkja. En
útfærslu hátíðarinnar var breytt
í samræmi við sóttvarnir og
reyndist mjög vel en þetta var í
fyrsta skiptið sem Lúsíuhátíð er
haldinn á Hvammstanga.
„Með þessa reynslu að baki
hlökkum við til að halda alvöru
Lúsíuhátíð næsta ár og óskum
öllum íbúum í héraði gleðilegra
jóla og margra bjartra og
skínandi daga á árinu sem er að
koma,“ segir Kathrin Schmitt
sem sendi Feyki myndband sem
hægt er að nálgast á Feykir.is.
Til stóð að hátíðin færi fram
þann 13. desember, á degi
heilagrar Lúsíu, en breyttist
vegna sóttvarnaaðgerða og sam-
einaðist sérstökum jólatónleik-
um sem Karlakórinn Lóuþrælar
hélt í Hvammstangakirkju.
Krakkarnir, sem brugðu sér í
Lúsíugervi og stjörnustrák, voru
allt frá leikskólaaldri og upp í 5.
bekk og segir Kathrin að stefnt
verði á að halda hátíðina að ári
en þá í stærri útgáfu. Hún segir
að hin sænska Eva-Lena Lohi
hafi átt hugmyndina að hátíð-
inni, séð um alla búninga og
framkvæmd en án hennar hefði
þetta ekki orðið að veruleika.
Vill hún að lokum þakka
öllum sem tóku þátt og hjálpuðu
til. /PF
Húnaþing vestra
Fyrsta Lúsíuhátíðin
Glæsilegar Lúsíur og einn stjörnustrákur á Hvammstanga. MYND: EVA-LENA LOHI