Feykir - 05.01.2022, Page 10
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Margrét Gísladóttir.
ÁRGANGUR: 1986.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Gift Teiti Birni Einarssyni og saman eigum við
synina Gísla Torfa og Einar Garðar.
BÚSETA: Geldingaholt í Skagafirði, en flytjumst í Mosfellsbæ eftir
áramótin [Rabbinu svaraði Margrét í byrjun desember].
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Dóttir séra Gísla Gunn-
arssonar og Þuríðar Kristjönu Þorbergsdóttur í Glaumbæ í
Skagafirði þar sem ég er alin upp.
STARF / NÁM: Vinn hjá Bændasamtökum Íslands og er í MBA námi
við Háskólann í Reykjavík.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Alltof mikið eiginlega. Við erum að flytja suður
í byrjun nýs árs þar sem ég hef störf á nýjum vettvangi. Auk þess
er ég að klára fyrstu önnina í MBA náminu og drengirnir báðir á
leikskólaaldri svo dagarnir eru ansi þéttir um þessar mundir.
Margrét Gísla
aðstoðarmanna ráðherra haust-
ið 2014 þar sem við hittumst
á kaffistofunni í forsætis-
ráðuneytinu, þá að aðstoða
ráðherra sitt hvors flokksins í
ríkisstjórn.
Hvað varstu að hlusta á þegar
þú fékkst bílprófið? Við Birna
vinkona hlustuðum eiginlega
bara á tvo diska á þessum tíma,
Bítlana og Stuðmenn.
Hvernig slakarðu á? Mér
finnst mjög gott að kjarna mig
þegar ég er að keyra á milli
Skagafjarðar og Reykjavíkur.
Þá hlusta ég á hljóðbók og nýt
þess að vera bara að keyra
ein með sjálfri mér. Annars er
góður matur og gott rauðvín í
góðra vina hópi líka alltaf jafn
góð slökun.
Hverju missirðu helst ekki af
í sjónvarpinu? Ég er forfallinn
aðdáandi Bachelor og það fer
lítið framhjá mér sem snýr að
þeim þáttum, hvort sem það
er Bachelor, Bachelorette eða
Bachelor in Paradise.
Besta bíómyndin? Midnight
in Paris. Hún er svo hugljúf
og uppfull af skemmtilegum
persónum og samræðum.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Mér fannst
Vala Flosadóttir brjálæðislega
svöl þegar ég var lítil. Í dag
fylgist ég lítið með íþróttum
en finnst mikið til Más Gunn-
arssonar, sundkappa, koma.
Hvað gerir þú betur en allir
aðrir á þínu heimili? Marga hluti
í einu.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Ýmsir kjúklinga-
réttir. Annars er Teitur meiri
kokkur en ég.
Hættulegasta helgarnammið?
Nammi er ekki hættulegt og
einskorðast ekki við helgar hjá
mér. Súkkulaði er ansi vinsælt.
Hvernig er eggið best? Steikt og
sólin upp.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Óþolinmæði.
Hvað fer mest í taugarnar á
þér í fari annarra? Hroki og
fordómar.
Uppáhalds málsháttur eða
tilvitnun? Hver er sinnar gæfu
smiður.
Hver er elsta minningin sem þú
átt? Pínulítið minningarbrot af
ættarmóti þegar ég var tveggja
ára. Tveir karlar, annar held
ég að hafi verið afi í Brúnahlíð,
klæddust trúðabúningum og
voru í risastórum buxum.
Þú vaknar einn morgun í líkama
frægrar manneskju og þarft
að dúsa þar einn dag. Hver
værirðu til í að vera og hvað
myndirðu gera? Dwayne the
Rock Johnson til að upplifa
hvernig það er að vera einhvers
konar mannlegt naut. Ég myndi
líklega bara arka um bæinn
og lyfta þungum hlutum og
njóta þess svo að borða þessar
5.000 kaloríur sem hann þarf á
hverjum degi.
Hver er uppáhalds bókin þín
og/eða rithöfundur? Yrsa er
í miklu uppáhaldi hjá mér og
Bergsveinn Birgisson er líka
skemmtilegur, en ég á engan
uppáhaldsrithöfund. Ég las
Kapítólu eftir E.D.E.N. South-
worth fyrir nokkrum árum, sem
er eftirminnilega skemmtileg,
frábær bók fyrir allan aldur.
Orð eða frasi sem þú notar
of mikið? Ég hef staðið mig
að því undanfarið að segja
„sjáumstum” í stað sjáumst.
Ákveðið orðskrípi og ég veit
ekkert hvaðan ég tók þetta.
Hvaða þremur persónum
vildirðu bjóða í draumakvöld-
verð ? Margréti Danadrottn-
ingu, Elizu Reid forsetafrú og
Katrínu Jakobsdóttur. Þrjár
þrælskemmtilegar konur og
samræðurnar yrðu líklega mjög
áhugaverðar.
Ef þú gætir farið til baka í
tímann, hvert færirðu? Ég efa
að það séu mörg betri tímabil
fyrir skoðanaglaða konu að
vera uppi á, svo ég sé enga þörf
á að fara neitt.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Skipulögð óreiða.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í
flugvél og réðir hvert hún færi,
þá færirðu... til Ástralíu eða
Nýja-Sjálands.
Bucket list spurningin: Nefndu
eitthvað þrennt sem þér finnst
þú mega til að gera áður en þú
gefur upp öndina: Ganga upp
á Mælifellshnjúk, ferðast um
skosku hálöndin og til Macchu
Picchu.
aldrei viljað festa mig við
eitthvað eitt og var ekki komin
á fermingaraldur þegar ég
tilkynnti foreldrum mínum
að það sem ég yrði þegar ég
yrði stór væri ekki sérstaklega
kennt í háskóla. Ég sá alltaf
fyrir mér að vera í alls konar og
það hefur sannanlega ræst.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki?
Líklega bangsi sem heitir
Stóri Bangsi og ég fékk frá
vini pabba fyrstu jólin mín.
Hann passar núna upp á Einar
Garðar, yngri son okkar.
Besti ilmurinn? Það er
ákveðin lykt í loftinu um kl.
3 á vornóttum, úti á túni í
sauðburði. Dögg á grasinu, ró
yfir öllu og þessi lykt. Gerist
ekki betra.
Hvar og hvenær sástu núver-
andi maka þinn fyrst? Á fundi
Hvernig nemandi varstu? Mér
gekk alltaf vel í skóla en í öllum
umsögnum frá kennurum frá
sex ára aldri segir að ég sé
ansi fljótfær og ég held það
hafi lítið breyst. Ég átti það
líka til að skipta mér af stjórn
og skipulagi í samtölum við
skólastjóra allt frá grunnskóla
og upp í háskóla svo ég hef
verið með sterkar skoðanir
á öllu frá blautu barnsbeini –
þeim líklega til ama.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Við Lilja
Rún vinkona fermdumst
saman og vorum í eins kjólum
sem voru saumaðir á okkur.
Alda á Króknum saumaði minn
og það var alltaf gaman að fara
til hennar í mátun. Svo er mjög
eftirminnilegt hvað það var
gott veður þennan dag.
Hvað ætlaðir þú að verða
þegar þú yrðir stór? Ég hef
Með Margréti á myndinni er Einar Garðar Teitsson
MYND AÐSEND
10 01/2022