Feykir


Feykir - 26.01.2022, Blaðsíða 3

Feykir - 26.01.2022, Blaðsíða 3
AÐSENT | Frá sveitarstjórn Skagafjarðar Í lok apríl 2021 hófust óformlegar viðræður milli sveitarfélaganna Skagafjarðar og Akrahrepps um samein- ingu sveitarfélaganna tveggja. Sveitarfélögin hafa alla tíð átt í umfangsmiklu samstarfi um ýmsa þjónustu og því þóttu viðræðurnar eðlilegt framhald á nánu og vaxandi samstarfi sveitarfélaganna undan- farin ár. Í kjölfarið var ákveðið að hefja formlegar viðræður þar sem hvort sveitarfélag tilnefndi fimm fulltrúa í samstarfsnefnd. Vinna fulltrúanna hefur eink- um falist í faglegu mati á kostum og göllum og þeim tækifærum sem kunna að felast í samein- ingu sveitarfélaganna tveggja. Kortlögð var sú uppbygging sem ráðast þarf í til að styrkja samkeppnishæfni og búsetu- skilyrði samfélagsins alls í Skagafirði. Undirrituð voru kosin til að vinna að verkefninu fyrir hönd Sveitarfélagsins Skagafjarðar og sitja í samstarfsnefndinni sem hefur farið yfir alla málaflokka sem snerta stjórnsýslu sveitar- félaganna sem og áhersluatriði gagnvart stjórnvöldum. Þá hafa íbúafundir verið haldnir sem jafnframt var streymt á Face- book-síðum sveitarfélaganna beggja þar sem kynnt var vinna og niðurstöður eftir yfirferð málaflokkanna. Sameiningu sveitarfélaganna tveggja fylgir um 730 milljón króna fjárframlag frá Jöfnunar- sjóði sem sveitarfélögin eru sammála um að nýta til að hraða uppbyggingu skólamannvirkja í Varmahlíð eins og kostur er. Þannig væri hratt og örugglega hægt að bæta verulega aðstæður til náms og vinnu, og styrkja þann grundvöll sem skólarnir í Varmahlíð eru fyrir fram- héraðið. Þetta framlag, til viðbótar góðri rekstrarstöðu, þýðir að geta sameinaðs sveitarfélags til að viðhalda eignum og sinna nýfram- kvæmdum annars staðar í hér- aðinu verður um leið meiri. Hafa ber í huga að nýtt og sameinað sveitarfélag verður fjölmennasta dreifbýlissveitar- félag landsins með um þriðj- ung íbúa í dreifbýli og tvo þriðju hluta íbúa búsetta í fimm þéttbýliskjörnum vítt og breytt um héraðið. Sameinað sveitar- félag allra Skagfirðinga mun hafa sterkari rödd og meiri slagkraft til að koma hags- munum íbúa í dreifbýli sem þéttbýli og atvinnulífs í Skaga- firði á framfæri við stjórnvöld. Sameinað sveitarfélag hefur alla burði til að veita góða þjónustu og ástunda faglega og skilvirka stjórnsýslu sem kallar eftir sjónarmiðum íbúa með skipulögðum og markvissum hætti, t.d. með beinni þátttöku íbúa í ákvarðanatöku um ein- stök mál, með skipulögðum íbúafundum eða einhvers kon- ar íbúa- eða hverfisráðum. Niðurstaða okkar eftir þessa vinnu er sú að við hvetjum íbúa beggja sveitarfélaga eindregið til að kjósa með sameiningu þeirra, þannig eflum við framtíð Skagfirðinga allra. Settur hefur verið á laggirnar vefurinn Skagfirdingar.is og hvetjum við íbúa héraðsins til að kynna sér þá vinnu sem þegar hefur farið fram, leita svara við spurningum og taka þátt í að gera gott samfélag enn betra. Gísli Sigurðsson Ingibjörg Huld Þórðardóttir Álfhildur Leifsdóttir Jóhanna Ey Harðardóttir Sigfús Ingi Sigfússon Kjósum já – fyrir framtíðina Tímamót vísnavina 800. vísnaþáttur Guðmundar Vísnaþáttur í einhverri mynd hefur verið fastur liður hjá Feyki í þá fjóra áratugi sem hann hefur komið út og ætíð notið mikilla vinsælda vísnavina. Á vordögum 1987 fyrir hartnær 35 árum tók Guðmundur Valtýsson, frá Eiríksstöðum í Svartárdal, þáttinn að sér og hefur stýrt honum af mikilli röggsemi allt fram á þennan dag. Stór tímamót eru nú þar sem þáttur númer 800 birtist í Feyki vikunnar. Guðmundur segir að það sem honum sé efst í huga á þessum tímamótum sé hversu mörgum hann hefur kynnst á þessum árum og hversu góð samskipti hann hafi átt við allflesta. „Svo hvað margir eru fallnir frá á þessum tíma sem höfðu mjög mikinn áhuga á þessu og voru að gera vísur og styðja að þættinum. Þegar maður lítur yfir þetta sér maður það að fjöldi af þessu fólki er farinn þó að komi annað í staðinn en þá hefur það breyst þó nokkuð mikið því að það er verra núna t.d. að fá upplýsingar. Maður er kannski með einhverja vísu sem mann langar að vita meira um og er jafnvel höfundarlaus. Það er miklu verra að eiga við það núna en var, fáir núna sem gefa sig fram til þess. Þó virðist mér þátturinn vera mikið lesinn ennþá því maður hittir fólk sem vill tala um hann og þá kemst maður að því að það er að lesa vísurnar og hefur gaman af. Ég veit meira að segja um fólk sem reynir bara að ná í annað hvert blað, það sem þátturinn er í.“ Feykir óskar Guðmundi til hamingju með tímamótin og minnir lesendur á að hægt er að hafa samband við hann, leynist vísukorn í handraðanum. /PF Gert er ráð fyrir breyttri legu Blöndulínu 3 sem þvera á framhérað Skagafjarðar í umhverfismatsskýrslu sem Landsnet vinnur nú að. Fallið er frá því að fara með línuna yfir Vatnsskarð, eins og fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir, en þess í stað farin svokölluð Kiðaskarðsleið. Línuleiðin mun liggja frá Blöndustöð í Húnavatnshreppi um Kiðaskarð og niður í Mælifellsdal í Skagafirði. Þaðan austur yfir Eggjar og Héraðsvötn rétt sunnan við ármót Norður- ár og inn í mynni Norðurárdals sunnan Norðurár. Þaðan liggur leiðin að mestu samhliða nú- verandi Rangárvallalínu 1 sem tekin verður niður, um Norður- árdal, Öxnadalsheiði, Öxnadal, Moldhaugaháls, Kræklingahlíð og í tengivirki að Rangárvöllum á Akureyri. Ljúka á vinnu við gerð um- hverfismatsskýrslu Landsnets sem svo verður send til Skipu- lagsstofnunar til yfirferðar áður en hægt verður að hefja opin- bera kynningu á umhverfis- matinu en í skýrslunni greinir Landsnet m.a. frá aðalvalkosti framkvæmdarinnar sem að framan greinir. Í frétt Landsnets segir að þrátt fyrir að á þessu stigi sé umhverfismatsskýrslan ekki fullfrágengin til kynningar, telji Landsnet eðlilegt að upp- lýsa sveitarfélög, landeigendur og aðra um hver sé fyrirhugaður aðalvalkostur. Sigfús Ingi Sigfússon, sveitar- stjóri í Svf. Skagafirði, segir skýrsluna ekki til umfjöllunar hjá sveitarfélögunum á línu- leiðinni fyrr en hún er full- frágengin og Skipulagsstofnun búin að fara yfir hana. „Það sem Landsnet hefur nú upplýst um varðandi niður- stöðu sína um aðalvalkost Blöndulínu 3 er áhugavert. Sveitarfélagið Skagafjörður lagði áherslu á að í um- hverfismati Landsnets yrðu greindir valkostir sem tækju a.m.k. til Efribyggðarleiðar, Héraðsvatnaleiðar og Kiða- skarðsleiðar. Jafnframt lagði sveitarfélagið áherslu á niður- tekt Rangárvallalínu í kjölfar lagningar Blöndulínu 3, auk fleiri skilmála. Tillit hefur verið tekið til þessara skilmála að hluta til. Hins vegar veldur vonbrigðum að í aðalvalkosti Landsnets fyrir Blöndulínu 3 sé ekki gert ráð fyrir að neinn hluti línunnar í Skagafirði fari í jörðu. Ferillinn framundan er sem fyrr segir sá að þegar skýrslan er tilbúin þá fer hún til Skipulagsstofnunar til yfir- ferðar og í umsagnarferli þar sem hagsmunaaðilum gefst kostur á að bregðast við,“ segir Sigfús Ingi. /PF Breytt lega Blöndulínu 3 Vilja að línan fari um Kiðaskarð Hér sést hvar Landsnet gerir ráð fyrir nýrri leið Blöndulínu 3, svokallaða Kiðaskarðsleið. MYND AF FB Guðmundur Valtýsson flettir gömlum Feyki í 35 ára afmæli blaðsins. MYND: FEYKIR 03/2022 3

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.