Feykir - 26.01.2022, Blaðsíða 15
RÉTTUR 1
Kjúklingur
með rauðu pesto
og spínati
4 kjúklingabringur
1 krukka rautt pesto
1 krukka salatostur
1 poki af spínatkáli
góður slatti af döðlum
Aðferð: Kjúklingur skorinn í bita
og settur í stórt eldfast mót eða Le
Creuset pott. Krukku af pestó
blandað saman við. Spínatkálið fer
allt í pottinn. Næst set ég salatostinn í
pottinn en það er betra að setja bara
ostinn en ekki alla olíuna með, ann-
ars verður of mikil olía í pottinum
eftir eldun. Í restina set ég góðan
slatta af döðlum og blanda öllu
saman. Potturinn er settur í ofn á
180°C með blæstri, í svona 40 til 50
mínútur. Ég tek pottinn út og hræri í
þessu einu sinni á eldunartíman-
um. Þetta er borið fram með hrís-
grjónum, fersku salati og hvítlauks-
brauði á sparidögum.
EFTIRRÉTTUR
Brauðbollur og
bollukrans
„Eftir að maður fór að vera meira
heima um helgar með krökkunum
þá finnst okkur gaman að baka
saman og þá bökum við stundum
bollur með kaffinu og læt ég fylgja
með brauðbollu-uppskrift sem við
gerum reglulega en hana er að
finna á síðunni Gott í matinn
(www.gottimatinn.is)
2 dl ylvolgt vatn
2 dl nýmjólk
2½ tsk. þurrger
2 msk. sykur
1 tsk. salt
50 g smjör, brætt
2 stk. egg, annað til pensunar
8 dl hveiti (um 8-10 dl)
Aðferð: Hrærið mjólk og vatn
saman í skál. Setjið þurrger saman
við. Hrærið þar til freyðir. Látið þá
sykur, salt, 1 egg og brætt smjör
(passa að það sé ekki of heitt) út í.
Hrærið. Setjið hveitið saman við
smátt og smátt. Hrærið og hnoðið
þar til þið hafið óklístrað deig. Þið
gætuð þurft minna eða meira
hveiti. Hnoðið í stutta stund.
Leggið deigið aftur í skálina og
breiðið hreint þvottastykki yfir og
látið hefast á hlýjum stað í 40
mínútur. Skiptið deiginu í 22 bita
og mótið bollur. Látið hefast í 20
mínútur. Penslið með þeyttu eggi
og bakið í 15-20 mínútur við
200°C.
Bollukrans
Aðferð: Fyrir sérstök tilefni er
gaman að raða bollunum upp í
fallegan krans. Klæðið bökunar-
plötu með bökunarpappír og
setjið hringlaga eldfast mót í
miðjuna. Gott er að mótið sé um
8-10 cm í þvermál. Raðið átta
bollum í kringum mótið. Passið að
þær snerti hvorki mótið né hver
aðra. Raðið restinni af bollunum
fyrir aftan þessar átta og gætið
þess að þær komi ekki við hver
aðra. Látið hefast í 20 mínútur.
Verði ykkur að góðu!
Andrés skorar á skólabróður sinn,
Árna Geir Sigurbjörnsson, að taka
við matgæðingaþætti Feykis.
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Skil.
Sudoku
Krossgáta
Feykir spyr...
Hefur þú
smitast
af Covid-
veirunni?
Spurt á Facebook
UMSJÓN: klara@nyprent.is
„Nei, ég er ekki búin
að fá hana.“
Ingibjörg Björnsdóttir
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum:
Ótrúlegt - en kannski satt...
Q er 22. stafur íslenska stafrófsins, nú aðeins notaður í erlendum
orðum, og þá borinn fram eins og k, eða í táknum og skammstöfunum
af erlendum rótum, eftir því sem fram kemur á veforðabókinni Snöru.
Ótrúlegt, en kannski satt, þá er þetta eini stafurinn í enska stafrófinu sem
ekki kemur fyrir í nokkru fylkisnafni Bandaríkjanna.
„Ég er svo duglegur að taka
lýsi þannig ég hef verið
blessunarlega laus við Covid.“
Gísli Pálsson
„Nei."
Aðalsteinn Orri Sigrúnarson
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Gömul frétt í fullu gildi.
FEYKIFÍN AFÞREYING F
„Nei, ég hef blessunarlega
sloppið enn sem komið er.“
Eva María
Kjúklingur með pestó
og bollukrans
Matgæðingar vikunnar eru þau Andrés Magnússon og konan hans
Anna Ágústsdóttir, en þau fengu áskorun frá Björgu Árdísi Kristjáns-
dóttur. Fjölskyldan er þessi venjulega vísitölufjölskylda, hjón með
tvö börn. Andres er 34 ára og vinnur sem tæknimaður hjá Tengli í
Reykjavík en Anna leggur stund á mastersnám við Háskólann í
Reykjavík þar sem hún lærir hagnýta atferlisgreiningu.
„Við eigum, eins og áður kom fram, tvö börn, dóttir okkar heitir
Hrafnkatla, hún er á 7. ári og sonur okkar heitir Birkir Ágúst, hann er
á 4. ári. Við búum í Grafarvogi en ég flutti frá Sauðárkróki til
Reykjavíkur þegar ég var 18 ára og hef búið þar síðan. Við erum ekki
mikið í tilraunum í eldhúsinu þessa dagana en ég ætla að setja inn
mína uppáhaldsuppskrift af klassískum kjúkling með pesto,“ segir
Andrés.
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Andrés og Anna | Reykjavík
Anna og Andrés ásamt börnunum tveimur.
MYND AÐSEND
Tilvitnun vikunnar
Þú verður ekki ríkur á því að skrifa vísindaskáldskap. Ef þú vilt verða
ríkur þá stofnarðu trúarbrögð. – L. Ron Hubbard
03/2022 15
Vísnagátur Sveins Víkings
Í greiðum vef þau glöggt má sjá.
Gott er að vita þau á sem flestu.
Þau eru hæsta ásnum á.
Í þeim að standa varðar mestu.